Víkurfréttir


Víkurfréttir - 16.04.2020, Blaðsíða 47

Víkurfréttir - 16.04.2020, Blaðsíða 47
Gaman og gefandi að hjálpa fólki Alda Björg Sveinsdóttir er 36 ára nemandi á sjúkraliðabraut við Fjölbrautaskóla Suðurnesja. „Ég valdi sjúkraliðabraut af því mér finnst gaman og gefandi að hjálpa fólki. Ég er að klára fyrsta árið. Námið er mjög fjöl- breytt og skemmtilegt. Hjúkrun er spennandi og áhugaverð. Ég hef bæði starfað á sjúkrahúsi og við umönnun aldraðra og er mjög spennt að fá að starfa sem sjúkraliði en stefni ekki á áfram- haldandi nám í náinni framtíð en hver veit. Mig er búið að langa að læra sjúkraliðann í mörg ár, svo þetta er draumur að rætast. Ég er mjög ánægð í FS, þar erum við lítill, samheldinn hópur með frábæra kennara og gott andrúmsloft, krakkarnir taka mér vel og mér líður ekki eins og ég sé helmingi eldri en þau. Ég er búin að kynnast sam- nemendum og kennurum. Stemmninginn er góð, við erum ekki mörg svo við fáum góða kennslu og erum dugleg að hjálpast að í tímum, kennararnir eru frábærir eins og áður sagði, það skiptir öllu máli að manni líði vel í skólanum. Það er alltaf gaman að læra eitthvað sem maður hefur áhuga á. Ef þú hefur áhuga á hjúkrun þá mæli 100% með sjúkraliðabraut í FS, hvort sem þú ætlar í framhaldsnám eða ekki, sjúkraliðinn er góður undirbúningur fyrir framhaldssnám, svo vantar alltaf sjúkraliða, það er auðvelt að fá vinnu.“ vísar til ástandsins vegna kóróna- veirunnar sem hefur skapað enn meiri eftirspurn eftir þessari mikil- vægu starfsstétt í landinu en næg var eftirspurnin fyrir. Mjög fjölbreytt starf „Starf sjúkraliða felur í sér eftirlit og umönnun einstaklinga og fjöl- skyldna á heilbrigðisstofnunum eða á heimilum. Starfið er fjölbreytt, allt frá því að veita stuðning og hvatningu við athafnir daglegs lífs til þess að hjúkra mikið veikum ein- staklingum á sérhæfðum deildum. Í starfi sjúkraliða eru algengir vinnu- staðir sjúkrahús, hjúkrunarheimili, heilsugæslustöðvar eða aðrar heil- brigðisstofnanir. Sjúkraliðar taka þátt í þverfaglegri teymisvinnu um hjúkrun og meðferð, eiga samskipti við ólíka einstaklinga undir ýmsum kringumstæðum og þurfa að geta metið líkamlegt, andlegt og félagslegt ástand einstaklinga og fjölskyldna í samráði við hjúkrunarfræðinga, lækna og annað heilbrigðisstarfsfólk. Sjúkraliði er lögverndað starfsheiti.“ Nýtt sjúkraliðanám fyrir þá sem eru í vinnu „Á haustönn mun FS bjóða upp á sérskipulagða námslínu á sjúkra- liðabraut sem ætluð er þeim sem eru starfandi eða hafa starfað við aðhlynningu á heilbrigðisstofn- unum og vilja sækja sér menntun til að starfa sem sjúkraliðar. Nám og kennsla verður sambland af stað- bundinni kennslu/námi, með dreif- og fjarnámssniði og mun taka mið af þörfum fólks sem er í vinnu með námi.“ Fordæmalaus kennsla á tímum veirunnar Nú hafa allir framhaldsskólar lands- ins verið lokaðir nemendum vegna kórónaveirunnar frá 13. mars, hvern- ig hefur Ása leyst málin með nem- endum sínum? „Á meðan á samkomubanni stendur leysum við málið þannig að við höldum okkar striki og sinnum náminu samkvæmt stundaskrá um fjarfundabúnað. Okkur hefur fund- ist þetta fyrirkomulag takast nokkuð vel, þó mikið vanti þegar bein mann- leg samskipti vantar. Ekki liggur fyrir núna hvernig önninni verður lokið – en henni mun ljúka og þeir nem- endur sem eiga að útskrifast munu útskrifast þó ekki sé ljóst á þessari stundu hvernig það verður gert,“ segir Ása að lokum og hvetur þá sem eru að íhuga nám á sjúkraliðabraut í haust endilega að kynna sér brautina á vef skólans. Langar að hjálpa öðrum Neil Einar Christian Einarsson er nítján ára nemandi á sjúkraliðabraut við Fjölbrautaskóla Suðurnesja. „Ég valdi þetta nám því ég hef áhuga á að hjálpa öðrum sem þurfa á því að halda, líka það að margir í fjölskyldunni hjá mömmu vinna sem heilbrigðis- starfsmenn og mig langaði að halda þeirri hefð gangandi. Ég er að útskrifast á þessari önn og mun fara í viðbótarnám. Sjúkra- liðanámið við FS er fínt og lær- dómsríkt. Það sem mér finnst spennandi við námið er að ég fæ að kynnast mörgu mismunandi fólki og læra eitthvað nýtt. Tækni- lega hef ég ekki unnið á spítala en ég hef verið í starfsnámi og var að læra inn á mismunandi deildir til að afla mér reynslu og bæta við þekkingu mína. Ég er spenntur að vinna sem sjúkraliði en mun einnig halda áfram að læra og stefni á að fá réttindi sem hjúkrunarfræðingur sem sérhæfir sig í svæfingum. Ég læri svo margt í gegnum sjúkraliða- námið, það opnar líka mörg tækifæri fyrir framtíðina. Ég er búinn að eignast ágætlega marga vini í FS, stemmningin er fín og kennararnir líka. Það er gaman að læra.“ Sjúkraliðanám opnar ýmsar dyr Fimmtudagur 16. apríl 2020 // 16. tbl. // 41. árg. VíKurFrÉttir á SuÐurNESJum í 40 ár // 47
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.