Víkurfréttir - 16.04.2020, Blaðsíða 72
– Hvernig varðir þú páskunum?
Í endurbætur á húsnæði sem dóttir
og tengdasonur voru að kaupa, einn-
ig í tiltekt og vorverkin heima við.
– Hvernig páskaegg fékkstu og
hver var málshátturinn?
Nr. 7 frá Nóa og málsháttur var:
„Áfram lifir eikin þó laufin falla.“
– Hvaða aðferðir ertu að nýta til
að eiga í samskiptum við fólk?
Hef þurft að breyta aðeins sam-
skiptamáta svona vinnulega séð en
núorðið fara samskipti meira fram
með símtölum, tölvupóstum, Mes-
senger og FaceTime.
– Ef þú fengir bara að hringja eitt
símtal í dag, hver fengi það símtal
og hvers vegna?
Erfitt að svara þessu en líklega færi
það svolítið eftir ástæðu þess að
geta bara hringt eitt símtal. Gefum
okkur það að þetta símtal væri líkt
og í bíómyndum þá væri það Sandra
Sif, dóttir mín, sem fengi það sím-
tal þar sem hún er í lögreglunni og
þekkir til þar. :-)
– Hvernig ertu að upplifa nýjustu
tíðindi um að það muni jafnvel
taka margar vikur inn í sumarið að
aflétta hömlum vegna COVID-19?
Leggjast ekki vel í mig, bæði atvinnu-
lega séð sem og persónulega. En hef
samt ákveðið að vera bjartsýnn á
þetta allt saman, er ekki að leggjast í
þunglyndi yfir þessu.
– Hvaða lærdóm getum við dregið
af heimsfaraldrinum?
Geyma ekki öll eggin í sömu körf-
unni samanber hversu stór ferða-
mannaiðnaðurinn hefur verið hér á
landi, þurfum „eitthvað annað“ með.
Einnig verður vonandi vitundar-
vakning hjá fólki varðandi smit-
leiðir, t.d. ekki hnerra í hálsmálið á
næsta manni í Bónus-röðinni. Einn-
ig mætti nefna breyttar aðferðir við
vinnu, t.d. eru í dag fjarfundir bara
eðlilegustu hlutir, nú er hægt að
ganga frá ýmsum hlutum rafrænt
sem ekki var hægt áður. Annað að
hér áður óku menn hundruði kíló-
metra eða ferðuðust með flugi á
fundi sem tóku kannski minna en
eina klukkustund. Einnig opnast
frekari möguleikar fyrir margar
starfsstéttir að „vinna heima“ í stað
þess að sækja alltaf vinnu útí bæ.
– Ertu liðtækur í eldhúsinu?
Er mjög góður í því að setja í upp-
þvottavél og taka úr henni. Eigin-
konan, Sigrún Halldórsdóttir, sér
yfirleitt um matseldina. Ég get þó
alveg bjargað mér við matseld þó
mínir hæfileikar njóti sín betur á
öðrum sviðum.
– Hvað finnst þér virkilega gott
að borða?
Kótilettur í raspi með öllu tilheyr-
andi en bara heimamatreitt, ekki það
hollasta sem hægt er að finna en gott
í hófi. Annars finnst mér fiskur besti
maturinn svona almennt.
– Hvað var í páskamatinn?
Grillað lambafille fyrir tvö. Frekar
fámennt aldrei þessu vant í páska-
matinn á mínu heimili.
– Hvað finnst þér skemmtilegast
að elda?
Er ekki mikill matreiðslumaður en
það er alltaf gaman að standa við
grillið með fjölskyldu og vinum og
þá sérstaklega í útilegum.
– Hvað var bakað síðast á þínu
heimili?
Terta sem Díana Dröfn, dóttir mín,
bakaði af engu tilefni ef ég man rétt.
– Ef þú fengir 2000 krónur. Hvað
myndir þú kaupa í matinn?
Færi á Villa bar og fengi mér kjúkl-
ingaborgara með káli og sósu og eina
pylsu á meðan ég væri að bíða eftir
borgara.
– Hvað hefur gott gerst í vikunni?
Ánægjulegast að sjá fram á að geta
boðið öllum mínum starfsmönnum
áframhaldandi fulla vinnu, svona
miðað við stöðuna í dag.
– Hvað hefur vont gerst í vikunni?
Ekkert sem tekur því að dvelja við.
Geyma ekki öll eggin
í sömu körfunni
Hvaða spurningu hefðir þú viljað fá að svara í þessu viðtali?
Hver er spurningin og svarið við henni?
Hafa orðið miklar breytingar á fyrirhuguðum
ferðaplönum fyrir sumarið?
Líkt og öll önnur sumur var ætlunin að ferðast mikið innan-
lands, held að þar verði ekki mikil breyting á og kannski
það verði pláss á vegum og tjaldsvæðum. Það voru tvær
utanlandsferðir á döfinni, ein til Ítalíu með kirkjukór Kefla-
víkurkirkju og svo ein til Prag með öllum starfsmönnum og
mökum, að öllum líkindum verður þeim frestað.
N
etspj@
ll
Benedikt Jónsson, framkvæ
mdastjóri og pípulagningam
eistari hjá Benna Pípara
ehf., segir að lærdómurinn
sem megi draga af heimsfa
raldrinum sé að vera ekki
með öll eggin í sömu körfun
ni, samanber hversu stór fe
rðamannaiðnaðurinn
hefur verið hér á landi.
72 // VíKurFrÉttir á SuÐurNESJum í 40 ár
Fimmtudagur 16. apríl 2020 // 16. tbl. // 41. árg.