Víkurfréttir - 16.04.2020, Blaðsíða 52
Hlýddi Víði
og tók sér páskafrí frá námi
Hvaða spurningu hefðir þú viljað fá að svara í þessu viðtali?
Hver er spurningin og svarið við henni?
– Uppáhaldstilvitnun?
Einu mistökin eru þegar þú hættir að reyna.
– Sigríði Erlingsdóttur, forstöðumanni Krabbameinsfélags Suðurnesja og
stjórnmálafræðinema í HÍ, finnst gaman að elda góðan mat og hún elskar fisk –
sérstaklega sushi.
– Hvernig varðir þú páskunum?
Ég ferðaðist innanhúss og hlýddi
Víði, málaði nokkur húsgögn og naut
samveru með börnunum mínum.
Tók mér líka páskafrí frá náminu
sem var notalegt.
– Hvernig páskaegg fékkstu og
hver var málshátturinn?
Ég lét mér nægja nr. 1 því það er
nóg af páskaeggjum í kringum mig.
Málshátturinn var: „Það er ekki
glæpur að skipta um skoðun.“
– Hvaða aðferðir ertu að nýta til
að eiga í samskiptum við fólk?
Fyrir utan hefðbundin símtöl þá
er FaceTime mikið notað. Gott að
geta séð í andlitin þar sem samverur
hafa minnkað mikið. Svo er Zoom
og Teams notað í háskólanum þar
sem staðnám breyttist snögglega í
fjarnám og fyrir fundi í vinnunni.
– Ef þú fengir bara að hringja eitt
símtal í dag, hver fengi það símtal
og hvers vegna?
Ætli ég myndi ekki hringja í dóttur-
ina. Við tökum FaceTime daglega og
þá er bara best að halda í þá rútínu.
– Hvernig ertu að upplifa nýjustu
tíðindi um að það muni jafnvel
taka margar vikur inn í sumarið að
aflétta hömlum vegna COVID-19?
Þetta eru mjög skrítnir tímar og ég
held að það þurfi að fara varlega að
aflétta hömlunum. Þríeykið er búið
að standa sig frábærlega og ber ég
mikla virðingu fyrir þeim. En þetta
reynir á þolinmæðina að geta ekki
farið á þá staði sem manni langar á
og hitta vini og ættingja. Svo er þetta
erfitt fyrir okkur golfara en tímabilið
er að byrja og við erum vön að byrja
með golfmótin á vorin þannig að það
verður smá bið í það.
– Hvaða lærdóm getum við dregið
af heimsfaraldrinum?
Við sjáum hvað við erum vanmáttug
gagnvart slíkri ógn sem varla sést.
Það er enginn eyland. Það er margt
sem við lærum á svona tímum og ég
held að við lærum að bera virðingu
fyrir því sem við höfum og lærum
að meta litlu hlutina.
– Ertu liðtæk í eldhúsinu?
Já, það er ég og finnst ekkert
skemmtilegra en að elda góðan mat
fyrir börnin mín og tengdabörn.
– Hvað finnst þér virkilega gott
að borða?
Fiskur er í miklu uppáhaldi og þá
sérstaklega sushi.
– Hvað var í páskamatinn?
Ég eldaði bláberjamarenerað lamba-
læri
– Hvað finnst þér skemmtilegast
að elda?
Það er mjög fátt sem mér finnst
leiðinlegt að elda en ef ég ætti að
velja eitt þá væri það eitthvað fisk-
meti.
– Hvað var bakað síðast á þínu
heimili?
Ég bakaði Rólómarengstertu með
jarðaberum á páskadag. Krakkarnir
eru hrifin af henni.
Ef þú fengir 2000 krónur. Hvað
myndir þú kaupa í matinn?
Sushi, ekki spurning.
– Hvað hefur gott gerst í vikunni?
Góðu fréttirnar eru að það eru
færri að greinast með COVID-19
og fleiri að batna. Og svo er sam-
takamátturinn svo mikill hjá okkur
Íslendingum og næstum allir hlýða
Víði. Í dag fylgist maður með sam-
félaginu á netinu og það lyftir manni
upp að sjá alla þessa samkennd og
hjálpsemi í samfélaginu. Það má
heldur ekki gleyma gríninu en það
er margt sprenghlægilegt sem fólk
er að gera en það er nauðsynlegt að
hlægja líka og má ekki gleyma því á
svona tímum.
– Hvað hefur vont gerst í vikunni?
Maður er með hugann hjá þeim sem
misst hafa ástvini úr COVID-19 og
þeim sem eru veikir.
N
etspj@
ll
52 // VíKurFrÉttir á SuÐurNESJum í 40 ár
Fimmtudagur 16. apríl 2020 // 16. tbl. // 41. árg.