Víkurfréttir


Víkurfréttir - 16.04.2020, Blaðsíða 4

Víkurfréttir - 16.04.2020, Blaðsíða 4
HREINSUM RIMLAGARDÍNUR OG MYRKVUNARGARDÍNUR NÁNARI UPPLÝSINGAR Á ALLTHREINT.IS RI TS TJ Ó RN A RP IS TI LL Mann rekur eiginlega í rogastans þegar maður gengur inn í nýtt 150 herbergja hótel í Reykjanesbæ sem bíður eftir fyrstu gestunum og landið er lokað á tímum COVID-19. Þetta er óvana- leg staða að svona bygging sé tilbúin með öllu sem skiptir máli líka eins og veitingastað, bar og herbergjum og nú sé bara beðið eftir viðskipta- vinum. Sagan hefur meira verið þannig að það séu enn framkvæmdir þegar fyrstu gestirnir mæta. Frændsystkinin Keflvíkingurinn Ingvar Eyfjörð og Njarðvíkingurinn Rósa Ingvarsdóttir lögðu saman hesta sína í skemmtilega ferð þar sem þau leituðu að fjárfestingatæki- færum í sinni heimabyggð sem væri ígildi samfélagsverkefnis. Úr varð að setja í gang uppbyggingu versl- unar- og þjónustutorgs undir nafn- inu Aðaltorg en staðsetningin vísar í nafnið. Stefnan var sett á að byggja flugvallarhótel í móanum skammt frá flugvellinum og fá tengingu við stóra, alþjóðlega hótelkeðju. Eftir nokkra þrautargöngu tókst þeim að fá með sér í lið sterkan fjárfesti og síðar bættist í hóp hluthafa á bygg- ingartímanum – og þau náðu samn- ingi við Marriott, sem er stærsta hótelkeðja heims. Víkurfréttir hittu þau frænd- systkin og þeirra lykilfólk í vik- unni, úr varð viðtal sem við birtum í blaði og í sjónvarpsþætti vikunnar, Suðurnesjamagasíni. Eftir að hafa hlustað á söguna í þessu ævintýri er ekki hægt annað en að dást að frumkvæði þeirra frændsystkina sem og ásetningnum, að samfélagið myndi líka njóta góðs af. Þau hafa notað eftir fremsta megni nær ein- göngu heimamenn í öll verk og vilja með öllum mætti styrkja Reykja- nesið sem þau hafa mikla trú á sem ferðamannastað og telja hann van- nýttan. Tækifærin séu mörg og hægt að gera miklu betur. Þau eru með framtíðarhugmyndir sem koma ekki allar fram í viðtalinu en það verður spennandi að fylgjast með þegar Aðaltorg fer í gang af fullum krafti. Við segjum bara: „Vel gert og gangi ykkur vel með Suðurnesjaverkefni af bestu gerð!“ Í rafrænu blaði vikunnar má líka lesa ferðasögu Brynju Bjarnadóttur sem lokaðist inni í Nepal en þar segir frá ævintýralegri heimför. Við erum einnig með fjölda viðtala við Suðurnesjamenn um COVID-19 og fleira en við heyrum líka í Suður- nesjafólki í Danmörku, Spáni og Bandaríkjunum. Sækjum okkur heim er fyrirsögn Ragnheiðar Elínar Árnadóttur í lokaorðum Víkurfrétta vikunnar. Hún ræðir þar um afleiðingar og möguleika ferðaþjónustunnar á Suðurnesjum eftir COVID-19 en eins og allir vita er ferðaþjónustan gríðarlega mikilvæg atvinnugrein hér á Suðurnesjum. Ragnheiður kemur líka með góða punkta varð- andi nærumhverfið sem þarf að vera aðlaðandi og vel hirt þegar við viljum fá landsmenn í heimsókn. Hún segir m.a.: „Fallegur, vel hirtur bær í dásamlegu umhverfi með heimsklassa þjónustu, að ég tali nú ekki um í dásamlegu sumarveðri. Ég held að fólk myndi vilja koma ... það þarf bara að vita af okkur.“ SAMFÉLAGSLEGT SUÐURNESJAVERKEFNI AF BESTU GERÐ Viðruðu sig í dymbilviku Þegar sólin skín í heiði er ástæða til að fara út og viðra sig, það gerðu þessir íbúar á Nesvöllum í Reykjanesbæ. VF-mynd: Hilmar Bragi 4 // VíKurFrÉttir á SuÐurNESJum í 40 ár Fimmtudagur 16. apríl 2020 // 16. tbl. // 41. árg.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.