Víkurfréttir - 16.04.2020, Qupperneq 4
HREINSUM
RIMLAGARDÍNUR OG
MYRKVUNARGARDÍNUR
NÁNARI UPPLÝSINGAR Á ALLTHREINT.IS
RI
TS
TJ
Ó
RN
A
RP
IS
TI
LL Mann rekur eiginlega í rogastans þegar maður gengur inn í nýtt 150 herbergja
hótel í Reykjanesbæ sem bíður eftir
fyrstu gestunum og landið er lokað
á tímum COVID-19. Þetta er óvana-
leg staða að svona bygging sé tilbúin
með öllu sem skiptir máli líka eins
og veitingastað, bar og herbergjum
og nú sé bara beðið eftir viðskipta-
vinum. Sagan hefur meira verið
þannig að það séu enn framkvæmdir
þegar fyrstu gestirnir mæta.
Frændsystkinin Keflvíkingurinn
Ingvar Eyfjörð og Njarðvíkingurinn
Rósa Ingvarsdóttir lögðu saman
hesta sína í skemmtilega ferð þar
sem þau leituðu að fjárfestingatæki-
færum í sinni heimabyggð sem væri
ígildi samfélagsverkefnis. Úr varð
að setja í gang uppbyggingu versl-
unar- og þjónustutorgs undir nafn-
inu Aðaltorg en staðsetningin vísar
í nafnið. Stefnan var sett á að byggja
flugvallarhótel í móanum skammt
frá flugvellinum og fá tengingu við
stóra, alþjóðlega hótelkeðju. Eftir
nokkra þrautargöngu tókst þeim að
fá með sér í lið sterkan fjárfesti og
síðar bættist í hóp hluthafa á bygg-
ingartímanum – og þau náðu samn-
ingi við Marriott, sem er stærsta
hótelkeðja heims.
Víkurfréttir hittu þau frænd-
systkin og þeirra lykilfólk í vik-
unni, úr varð viðtal sem við birtum
í blaði og í sjónvarpsþætti vikunnar,
Suðurnesjamagasíni. Eftir að hafa
hlustað á söguna í þessu ævintýri
er ekki hægt annað en að dást að
frumkvæði þeirra frændsystkina
sem og ásetningnum, að samfélagið
myndi líka njóta góðs af. Þau hafa
notað eftir fremsta megni nær ein-
göngu heimamenn í öll verk og vilja
með öllum mætti styrkja Reykja-
nesið sem þau hafa mikla trú á sem
ferðamannastað og telja hann van-
nýttan. Tækifærin séu mörg og hægt
að gera miklu betur. Þau eru með
framtíðarhugmyndir sem koma ekki
allar fram í viðtalinu en það verður
spennandi að fylgjast með þegar
Aðaltorg fer í gang af fullum krafti.
Við segjum bara: „Vel gert og gangi
ykkur vel með Suðurnesjaverkefni
af bestu gerð!“
Í rafrænu blaði vikunnar má líka
lesa ferðasögu Brynju Bjarnadóttur
sem lokaðist inni í Nepal en þar
segir frá ævintýralegri heimför. Við
erum einnig með fjölda viðtala við
Suðurnesjamenn um COVID-19 og
fleira en við heyrum líka í Suður-
nesjafólki í Danmörku, Spáni og
Bandaríkjunum.
Sækjum okkur heim er fyrirsögn
Ragnheiðar Elínar Árnadóttur í
lokaorðum Víkurfrétta vikunnar.
Hún ræðir þar um afleiðingar og
möguleika ferðaþjónustunnar á
Suðurnesjum eftir COVID-19 en
eins og allir vita er ferðaþjónustan
gríðarlega mikilvæg atvinnugrein
hér á Suðurnesjum. Ragnheiður
kemur líka með góða punkta varð-
andi nærumhverfið sem þarf að
vera aðlaðandi og vel hirt þegar við
viljum fá landsmenn í heimsókn.
Hún segir m.a.: „Fallegur, vel hirtur
bær í dásamlegu umhverfi með
heimsklassa þjónustu, að ég tali nú
ekki um í dásamlegu sumarveðri. Ég
held að fólk myndi vilja koma ... það
þarf bara að vita af okkur.“
SAMFÉLAGSLEGT SUÐURNESJAVERKEFNI
AF BESTU GERÐ
Viðruðu sig í dymbilviku
Þegar sólin skín í heiði er ástæða til að fara út og viðra sig,
það gerðu þessir íbúar á Nesvöllum í Reykjanesbæ.
VF-mynd: Hilmar Bragi
4 // VíKurFrÉttir á SuÐurNESJum í 40 ár
Fimmtudagur 16. apríl 2020 // 16. tbl. // 41. árg.