Víkurfréttir


Víkurfréttir - 16.04.2020, Blaðsíða 39

Víkurfréttir - 16.04.2020, Blaðsíða 39
Eins og fleiri viðmæl- endur í þessu tölublaði svaraði Jóhann Axel nokkrum laufléttum spurningum Víkurf- rétta: – Nafn og staða/atvinna: Jóhann Axel Thorarensen, flugstjóri hjá Icelandair ehf. – Hvernig varðir þú páskunum? Ég var að fljúga heim frá Kína á skír- dag með lækninga- og hjúkrunar- vörur. Annars hef ég notið páskanna heima í faðmi fjölskyldunnar að borða góðan mat og spila með krökkunum. Einnig hef ég verið að dytta að ýmsu hérna heima eins og svo margir aðrir. – Hvernig páskaegg fékkstu og hver var málshátturinn? Súkkulaðiegg frá Nóa Síríus nr. 5 og málshátturinn var: „Sælla er að gefa en þiggja.“ – Hvaða aðferðir ertu að nýta til að eiga í samskiptum við fólk? Aðallega hefðbundin símtöl en hef notað Teams og Snapchat til að taka hópsímtöl við vinina. Fórum m.a. í Pub Quiz með vinahópnum á Teams sem var algjör snilld og gott að geta hitt fjölskyldu og vini á þennan hátt. – Ef þú fengir bara að hringja eitt símtal í dag, hver fengi það símtal og hvers vegna? 95 ára gömul amma mín fengi það símtal. Hún býr ein og er í sjálfskip- aðri sóttkví og við megum því ekki heimsækja hana. – Hvernig ertu að upplifa nýjustu tíðindi um að það muni jafnvel taka margar vikur inn í sumarið að aflétta hömlum vegna COVID-19? Þetta eru ekki tíðindi sem maður var að óska eftir en ef það er það sem þarf til að tryggja að þessi óværa láti undan þá tekur maður því. Þetta eru því miður mjög slæmar fréttir fyrir vinnuveitanda minn og ferðaþjón- ustuna í heild sinni. – Hvaða lærdóm getum við dregið af heimsfaraldrinum? Fólk þarf að standa saman og hugsa vel um hvert annað. Tökum litlu hlutunum eins og faðmlögum og knúsum ekki sem sjálfsögðum hlut. – Ertu liðtækur í eldhúsinu? Ég á mína spretti. – Hvað finnst þér virkilega gott að borða? Góða nautasteik með Bearnaise og frönskum og góðu rauðvíni. – Hvað var í páskamatinn? Ali hamborgarhryggur með öllu til- heyrandi, í eftirrétt vorum við með Sherry-ís að hætti ömmu og Toble- rone-ís að hætti mömmu. – Hvað finnst þér skemmtilegast að elda? Allskyns grillmat á kolagrilli eins og lambalæri og nauta Ribeye-steikur. – Hvað var bakað síðast á þínu heimili? Dæturnar og eiginkonan hafa verið mjög duglegar að baka í samko- mubanninu, kræsingar eins og t.d. bananabrauð, makkarónur, hafrak- latta og ýmsar tertur. – Ef þú fengir 2000 krónur. Hvað myndir þú kaupa í matinn? Hægt er að versla á heimkaup.is heilar máltíðir fyrir fjóra sem kosta undir 2000 krónur. Ætli ég myndi ekki nýta mér eitthvað þar eins og marineraða kjúklingaleggi. – Hvað hefur gott gerst í vikunni? COVID-smitum fækkar jafnt og þétt sem er mjög jákvætt. Einnig verð ég að minnast á flugið til Kína fyrir nokkrum dögum þegar ég og vinnufélagar mínir sóttum sautján tonn af lækningabúnaði. Búið er að staðfesta að allur búnaðurinn stenst þær kröfur sem gerðar eru sem er virkilega frábært. – Hvað hefur vont gerst í vikunni? Dauðsföll vegna COVID-19. Hvaða spurningu hefðir þú viljað fá að svara í þessu viðtali? Hver er spurningin og svarið við henni? – Verður gott veður í sumar og hvað stefnir þú á að gera í sumar? Ég er bjartsýnismaður að eðlisfari og ég er viss um að veðrið verði gott í sumar. Það var einn góður maður sem sagði eitt sinn við mig: „Það er ekki neitt vont veður, bara léleg föt.“ Þannig að þetta er líka spurning um hugarfar, að láta ekki veðrið fara í taugarnar á sér bara klæða sig eftir því hvernig það er hverju sinni. Í sumar ætla ég að renna fyrir fisk, spila golf og keyra um landið með fjölskyldunni með fellihýsið aftan í bílnum og njóta alls þess sem Ísland býður upp á yfir sumartímann. Er nýja heimilið þitt á Ásbrú kannski hjá okkur? Skoðaðu lausar leigueignir á heimavellir.is Fimmtudagur 16. apríl 2020 // 16. tbl. // 41. árg. VíKurFrÉttir á SuÐurNESJum í 40 ár // 39
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.