Víkurfréttir - 16.04.2020, Blaðsíða 49
Það er alltaf nóg að gera og alls kyns
tilfallandi verkefni koma upp sem
þarf að ganga í,“ segir Sólmundur.
Sólmundur segir að stærsta verk-
efnið sé að efla og bæta starfsemina í
heild. „Við erum stöðugt að úthugsa
hvernig við getum þróast, bæði
innanhúss hjá okkur og hvernig við
getum bætt þjónustuna við okkar
stóra viðskiptahóp. Við erum að
finna leiðir til þess að geta viðhaldið
og bætt gæðin og aukið fjölbreytn-
ina í þjónustunni okkar. Það er ærið
verkefni en sem betur fer starfar frá-
bær hópur fólks hjá Skólamat. Allir
starfsmenn leggjast á eitt og vinna
saman til þess að þetta verkefni geti
orðið að möguleika.“
Úr háloftunum í nýtt
starf í samkomubanni
Í mars hóf Katla Hlöðversdóttir störf
sem markaðsstjóri hjá Skólamat.
Katla er 29 ára gömul Suðurnesja-
mær. Hún er viðskiptafræðingur
og er að ljúka MS gráðu í verkefna-
stjórnun frá Háskóla Íslands. Katla
starfaði áður sem flugfreyja hjá Ice-
landair. Kötlu býður fjöldi spennandi
verkefna en hún mun leiða sölu- og
markaðsstarf Skólamatar.
„Ég er ótrúlega spennt fyrir nýja
starfinu og þeim áskorunum sem því
fylgir. Ég tók við nýja starfinu á svo-
lítið sérstökum tíma en ég hóf störf
16. mars, sama dag og samkomu-
bannið gekk í gildi. Það var aðdá-
unarvert að sjá hversu vel fyrirtæk-
inu gekk að aðlaga sig að breyttum
aðstæðum. Samstaðan í fyrirtækinu
er til fyrirmyndar og allir starfsmenn
eru ákveðnir í því að finna leiðir til
þess að takast á við þessa krefjandi
tíma á sem bestan hátt.
Leiðarljós mitt í nýju starfi verður
meðal annars að kynna þjónustu
Skólamatar enn frekar fyrir við-
skiptavinum okkar. Við erum mjög
stolt af starfseminni okkar og því
að vera að bjóða nemendum upp á
hollan og ferskan mat sem er eldaður
frá grunni. Ég er afar lánsöm að vera
orðin hluti af þessu frábæra fyrirtæki
sem Skólamatur er og hlakka mikið
til komandi tíma,“ segir Katla Hlöð-
versdóttir.
Vegna aukinna umsvifa hefur þurft
að bæta við bifreiðum og stækka
húsnæði Skólamatar. Í vetur hafa
verið keyptir tveir Benz Sprinter
sendibílar. Bílafloti fyrirtækisins
telur nú átta sendibíla með vörulyftu
og tvo minni sendibíla sem sjá um
að koma matnum hratt og örugglega
milli staða.
Lager fyrirtækisins var stækkaður
í vetur um 150 m2 og nú í janúar
var húsnæði fyrir vörudreifingu
stækkað um 170 m2. Þar var útbú-
in sérstök kæliaðstaða fyrir græn-
meti og ávexti. Mikil aukning hefur
orðið í neyslu nemenda á ávöxtum
og grænmeti. Nemendum stendur
alltaf til boða úrval grænmetis og
ávaxta með hádegismatnum og í
ákveðnum sveitarfélögum er boðið
upp á ávexti og grænmeti í morgun-
og síðdegisnesti. Skólamatur starfar
því núna í 1.700 fermetra húsnæði
á Iðavöllum 1 og 3 í Reykjanesbæ.
Gjörbreyttir starfshættir
á veirutímum
Jón Axelsson, framkvæmdastjóri
Skólamatar, segir að takmörkunin
á skólahaldi sem hefur verið í gildi
undanfarnar vikur hafi sett mark
sitt á starfsemi Skólamatar. Fyrir-
tækið hefur þurft að gjörbreyta sín-
um starfsháttum til þess að aðlaga
sig að breyttum aðstæðum. Flest
skólamötuneytin eru lokuð og sem
stendur er ekki hægt að bjóða upp á
hefðbundinn, heitan mötuneytismat.
Þrátt fyrir óvissuástandið þessa dag-
ana eru að sögn Jóns mörg spenn-
andi verkefni framundan hjá Skóla-
mat.
„Undanfarin sumur hefur mikil
aukning orðið í því að leikskólar fá
tímabundna þjónustu frá Skólamat,
til að leysa starfsfólk mötuneyta af
í sumarfríi eða öðrum forföllum.
Þá hefur líka færst í vöxt að boðið
sé upp á heita máltíð á leikjanám-
skeiðum og öðrum viðburðum á
sumrin. Sumarstarfsemi Skólamatar
hefur því verið í vexti eins og önnur
verkefni.
Næsta stóra verkefnið hjá Skólamat
er þátttaka í útboði fyrir skólamál-
tíðir leik- og grunnskóla á Seltjarnar-
nesi. Gangi það vel gæti það leitt til
aukinna verkefna og vonandi skapað
fleiri störf hér á Suðurnesjum.“
Skólamatur í fimmtíu skóla
Allar máltíðir Skólamatar eru for-
lagaðar í framleiðslueldhúsum fyrir-
tækisins í Reykjanesbæ og þaðan eru
þær svo sendar á 50 leik- og grunn-
skóla í sex mismunandi sveitar-
félögum þar sem lokaeldun fer fram.
Fyrirtækið rekur tvö aðskilin fram-
leiðslueldhús en í öðru þeirra fer
fram framleiðsla á sérfæði fyrir þá
viðskiptavini sem geta ekki, sökum
ofnæmis, óþols eða annarra sérþarfa,
neytt matar af matseðli. Ávallt er
reynt að gæta þess að bjóða upp á
mat sem er líkastur þeim mat sem
er á almenna matseðlinum þann
daginn.
Starfsmenn Skólamatar hafa þurft
að bregðast við á tímum COVID-19
með breytingum á réttum.
Jón Axelsson,
framkvæmdastjóri
Skólamatar.
Fimmtudagur 16. apríl 2020 // 16. tbl. // 41. árg.
VíKurFrÉttir á SuÐurNESJum í 40 ár // 49