Víkurfréttir


Víkurfréttir - 16.04.2020, Page 49

Víkurfréttir - 16.04.2020, Page 49
Það er alltaf nóg að gera og alls kyns tilfallandi verkefni koma upp sem þarf að ganga í,“ segir Sólmundur. Sólmundur segir að stærsta verk- efnið sé að efla og bæta starfsemina í heild. „Við erum stöðugt að úthugsa hvernig við getum þróast, bæði innanhúss hjá okkur og hvernig við getum bætt þjónustuna við okkar stóra viðskiptahóp. Við erum að finna leiðir til þess að geta viðhaldið og bætt gæðin og aukið fjölbreytn- ina í þjónustunni okkar. Það er ærið verkefni en sem betur fer starfar frá- bær hópur fólks hjá Skólamat. Allir starfsmenn leggjast á eitt og vinna saman til þess að þetta verkefni geti orðið að möguleika.“ Úr háloftunum í nýtt starf í samkomubanni Í mars hóf Katla Hlöðversdóttir störf sem markaðsstjóri hjá Skólamat. Katla er 29 ára gömul Suðurnesja- mær. Hún er viðskiptafræðingur og er að ljúka MS gráðu í verkefna- stjórnun frá Háskóla Íslands. Katla starfaði áður sem flugfreyja hjá Ice- landair. Kötlu býður fjöldi spennandi verkefna en hún mun leiða sölu- og markaðsstarf Skólamatar. „Ég er ótrúlega spennt fyrir nýja starfinu og þeim áskorunum sem því fylgir. Ég tók við nýja starfinu á svo- lítið sérstökum tíma en ég hóf störf 16. mars, sama dag og samkomu- bannið gekk í gildi. Það var aðdá- unarvert að sjá hversu vel fyrirtæk- inu gekk að aðlaga sig að breyttum aðstæðum. Samstaðan í fyrirtækinu er til fyrirmyndar og allir starfsmenn eru ákveðnir í því að finna leiðir til þess að takast á við þessa krefjandi tíma á sem bestan hátt. Leiðarljós mitt í nýju starfi verður meðal annars að kynna þjónustu Skólamatar enn frekar fyrir við- skiptavinum okkar. Við erum mjög stolt af starfseminni okkar og því að vera að bjóða nemendum upp á hollan og ferskan mat sem er eldaður frá grunni. Ég er afar lánsöm að vera orðin hluti af þessu frábæra fyrirtæki sem Skólamatur er og hlakka mikið til komandi tíma,“ segir Katla Hlöð- versdóttir. Vegna aukinna umsvifa hefur þurft að bæta við bifreiðum og stækka húsnæði Skólamatar. Í vetur hafa verið keyptir tveir Benz Sprinter sendibílar. Bílafloti fyrirtækisins telur nú átta sendibíla með vörulyftu og tvo minni sendibíla sem sjá um að koma matnum hratt og örugglega milli staða. Lager fyrirtækisins var stækkaður í vetur um 150 m2 og nú í janúar var húsnæði fyrir vörudreifingu stækkað um 170 m2. Þar var útbú- in sérstök kæliaðstaða fyrir græn- meti og ávexti. Mikil aukning hefur orðið í neyslu nemenda á ávöxtum og grænmeti. Nemendum stendur alltaf til boða úrval grænmetis og ávaxta með hádegismatnum og í ákveðnum sveitarfélögum er boðið upp á ávexti og grænmeti í morgun- og síðdegisnesti. Skólamatur starfar því núna í 1.700 fermetra húsnæði á Iðavöllum 1 og 3 í Reykjanesbæ. Gjörbreyttir starfshættir á veirutímum Jón Axelsson, framkvæmdastjóri Skólamatar, segir að takmörkunin á skólahaldi sem hefur verið í gildi undanfarnar vikur hafi sett mark sitt á starfsemi Skólamatar. Fyrir- tækið hefur þurft að gjörbreyta sín- um starfsháttum til þess að aðlaga sig að breyttum aðstæðum. Flest skólamötuneytin eru lokuð og sem stendur er ekki hægt að bjóða upp á hefðbundinn, heitan mötuneytismat. Þrátt fyrir óvissuástandið þessa dag- ana eru að sögn Jóns mörg spenn- andi verkefni framundan hjá Skóla- mat. „Undanfarin sumur hefur mikil aukning orðið í því að leikskólar fá tímabundna þjónustu frá Skólamat, til að leysa starfsfólk mötuneyta af í sumarfríi eða öðrum forföllum. Þá hefur líka færst í vöxt að boðið sé upp á heita máltíð á leikjanám- skeiðum og öðrum viðburðum á sumrin. Sumarstarfsemi Skólamatar hefur því verið í vexti eins og önnur verkefni. Næsta stóra verkefnið hjá Skólamat er þátttaka í útboði fyrir skólamál- tíðir leik- og grunnskóla á Seltjarnar- nesi. Gangi það vel gæti það leitt til aukinna verkefna og vonandi skapað fleiri störf hér á Suðurnesjum.“ Skólamatur í fimmtíu skóla Allar máltíðir Skólamatar eru for- lagaðar í framleiðslueldhúsum fyrir- tækisins í Reykjanesbæ og þaðan eru þær svo sendar á 50 leik- og grunn- skóla í sex mismunandi sveitar- félögum þar sem lokaeldun fer fram. Fyrirtækið rekur tvö aðskilin fram- leiðslueldhús en í öðru þeirra fer fram framleiðsla á sérfæði fyrir þá viðskiptavini sem geta ekki, sökum ofnæmis, óþols eða annarra sérþarfa, neytt matar af matseðli. Ávallt er reynt að gæta þess að bjóða upp á mat sem er líkastur þeim mat sem er á almenna matseðlinum þann daginn. Starfsmenn Skólamatar hafa þurft að bregðast við á tímum COVID-19 með breytingum á réttum. Jón Axelsson, framkvæmdastjóri Skólamatar. Fimmtudagur 16. apríl 2020 // 16. tbl. // 41. árg. VíKurFrÉttir á SuÐurNESJum í 40 ár // 49

x

Víkurfréttir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.