Víkurfréttir - 16.04.2020, Blaðsíða 64
Ósk Wall hefur verið búsett ásamt fjölskyldu sinni í Esbjerg í Danmörku
síðan maí 1998. Maki hennar er Óskar Snorrason, húsasmiður, og þau
eiga þrjú börn og eitt barnabarn. Þá er annað barnabarn á leiðinni.
„Ég starfa hjá verkalýðsfélaginu
Fødevareforbundet NNF sem
atvinnuskaða- og félagsráðgjafi
(Arbejdsskade og Social konsulent).
Yfirmenn mínir eru í Kaupmanna-
höfn en ég er með skrifstofu í Esb-
jerg, Holstebro og Rødekro. Starf
mitt felst í að hjálpa meðlimum
okkar að fá þá hjálp sem þeir eiga rétt
á í sambandi við veikindi og atvinnu-
slys hjá yfirvöldum í Damörku og
áfrýja ákvörðunum sem við metum
að séu rangar. Sem félagsráðgjafi er
þetta mjög spennandi starf sem gefur
aukinn möguleika á að grafa niður
í löggjöfina,“ segir Ósk um það sem
hún er að fást við.
Okkur hjá Víkurfréttum lék for-
vitni á að vita hvernig Suðurnesjafólk
í útlöndum er að upplifa heimsfar-
aldur COVID-19. Þar sem Ósk hefur
búið á þriðja áratug í Esbjerg í Dan-
mörku, það er það hennar heima-
völlur, enda segist hún lítið fylgjast
með því sem er að gerast á Íslandi,
nema ef náttúruhamfarir verða.
– Hvernig ert þú að upplifa
ástandið í kringum COVID-19?
Hræðilegt ástand og eiginlega mjög
hrollvekjandi hve fljótt svona smit
getur dreift sér. Þetta er ástand sem
engin hefur prófað áður og engin
hefur 100% lausn í sambandi við
hvernig maður bregst við. Heimur-
inn er lamaður, við erum öll í sömu
aðstöðu, þó mismikilli hættu að
sjálfsögðu.
– Hefurðu áhyggjur?
Já, að sjálfsögðu hefur maður
áhyggjur. Ég vona að það lyf sem
Danirnir eru að prófa þessa stundina
virki svo það sé hægt að fara að gefa
lyf við þessum vírus.
– Hvaða áhrif hefur faraldurinn
á þitt daglega líf? Hvernig eru
dagarnir hjá þér núna? Hefur þú
gert miklar breytingar í daglegu
lífi?
Skrifstofurnar okkar hafa verið lok-
aðar síðan 15. mars og verða áfram
til 10. maí. Allir vinna heima. Okkar
meðlimir eru í vinnu þar sem þeir
starfa við matvælaiðnaðinn.
Ég hef verið meira og minna heima
þar sem ég hef haft einkenni í langan
tíma. Þó ég sé testuð neikvætt með
COVID-19 hefur minn læknir upp-
lýst að testin eru ekki örugg. Svo við
minnstu einkenni, þá á fólk að vera
heima. Ég hef ekki séð dóttur mína
og hennar fjölskyldu sem búa í Skan-
derborg síðan í lok febrúar. Það er
gott við höfum tæknina til að geta
séð og talað saman.
Sá yngsti hefur verið heima síðan
15. mars og verður áfram þangað
til fyrirvöld eru tilbúin til að opna
skólana að fullu en þau yngstu, frá
0. til 5. bekk, byrja í skóla eftir páska.
– Hefur þú þurft að gera miklar
breytingar varðandi vinnu eða
daglegt líf?
Við vinnum heima. Öll samskipti eru
í gegnum síma. Við hittum ekki vini
eða vandamenn. Við tökum þetta
öll alvarlega. Tökum enga áhættu.
Ósk Wall hefur búið í Esbjerg í Danmörku síðan 1998 og vinnur að heiman vegna heimsfaraldursins:
„Hér er öllu frestað fram að hausti“
Ég hafði smá
áhyggjur af því að
við gætum sýkst
í flugvélinni á
leiðinni heim.
En mér hefði aldrei
dottið í hug að
ástandið yrði eins
og við þekkjum
í dag.
Hilmar Bragi Bárðarson
hilmar@vf.is
64 // VíKurFrÉttir á SuÐurNESJum í 40 ár
Fimmtudagur 16. apríl 2020 // 16. tbl. // 41. árg.