Víkurfréttir - 16.04.2020, Blaðsíða 34
– Hvernig varðir þú páskunum?
Við hjónin tókum Víði á þetta og
ferðuðumst innanhús þessa páskana,
stunduðum æfingar, fórum í langa
göngutúra í Keflavík og nutum
páskanna í samskiptum við fjöl-
skyldu.
– Hvernig páskaegg fékkstu og
hver var málshátturinn?
Við hjónin tókum sameiginlega Nóa
Síríus nr. 4. „Þá koma dagar og þá
koma ráð,“ sem á vel við á þessum
sérstöku tímum.
– Hvaða aðferðir ertu að nýta til að
eiga í samskiptum við fólk?
Við notumst mest við Facebook og
FaceTime.
– Ef þú fengir bara að hringja eitt
símtal í dag, hver fengi það símtal
og hvers vegna?
Móður mín sem býr í Pensicola, Flo-
rida fengi það símtal. Hún er þar og
ég hér.
– Hvernig ertu að upplifa nýjustu
tíðindi um að það muni jafnvel
taka margar vikur inn í sumarið að
aflétta hömlum vegna COVID-19?
Fyrst og fremst finnst mér þríeykið
okkar, Víðir, Þórólfur og Alma, hafa
staðið sig með eindæmum vel. Gott
að vita að íslenska þjóðin hefur valið
sér þá gæfu að láta fagfólk stjórna
okkar aðgerðum. Það sló örlítið á
bjartsýnina að heyra þetta frá Þór-
ólfi EN við erum svo fljót að aðlagast
breytingum í okkar umhverfi svo ég
veit að við vinnum vel úr þessu.
– Hvaða lærdóm getum við dregið
af heimsfaraldrinum?
Að mannkynið var komið langt
fram úr náttúrunni og ég vona að
við náum að endurmeta verðgildi
okkar með tilliti til hvernig við for-
gangsröðum hvar styrkur samfélags-
ins liggur.
– Ertu liðtækur í eldhúsinu?
Já, er það þegar ég tek mig til EN
þar sem betri helmingur minn er svo
sterk þar þá vík ég á örgurstundum
eins og t.d. á hátíða- og tyllidögum.
– Hvað finnst þér virkilega gott
að borða?
Finnst svo til allur matur góður en
ef ég ætti að velja eitthvað eitt þá er
það íslenska lambið.
– Hvað var í páskamatinn?
Hamborgarhryggur og kalkúna-
bringa.
– Hvað finnst þér skemmtilegast
að elda?
Held bara kjúkling í ýmsu formi.
– Hvað var bakað síðast á þínu
heimili?
Vöfflur.
– Ef þú fengir 2000 krónur. Hvað
myndir þú kaupa í matinn?
Grískt jógurt, jarðaber, bláber og
rjóma.
– Hvað hefur gott gerst í vikunni?
Samvera, æfingar og náð að hjálpa
öðrum að halda sér í líkamsrækt.
– Hvað hefur vont gerst í vikunni?
Allir þeir sem hafa sýkst og dáið af
COVID-19.
Víkur úr
eldhúsinu
á ögurstundu
fyrir betri
helmingnum
– Þórður Þorbjörnsson,
innkaupastjóri Íslenskra
aðalverktaka hf og þjálfari hjá
Flott Þrek, stefnir á að fara
hringinn í sumar og nýta sér
bændagistingu.
Hvaða spurningu hefðir þú viljað fá að svara í þessu viðtali?
Hver er spurningin og svarið við henni?
Hvernig sérð þú fyrir þér næsta ferðlag þitt?
Ísland er málið. Nú þegar við sjáum fram á að ferðalög
erlendis verða ekki á döfinni líklega stærsta hluta þessa árs
þá hlakkar mig mikið til að ferðast heima og fara t.d hring-
inn sem ég hef ekki gert áður og nýta mér bændagistingu.
Hlakka mikið til.
N
etspj@
ll
vf is
Þú finnur allar nýjustu fréttirnar
frá Suðurnesjum á
34 // VíKurFrÉttir á SuÐurNESJum í 40 ár
Fimmtudagur 16. apríl 2020 // 16. tbl. // 41. árg.