Víkurfréttir


Víkurfréttir - 16.04.2020, Blaðsíða 34

Víkurfréttir - 16.04.2020, Blaðsíða 34
– Hvernig varðir þú páskunum? Við hjónin tókum Víði á þetta og ferðuðumst innanhús þessa páskana, stunduðum æfingar, fórum í langa göngutúra í Keflavík og nutum páskanna í samskiptum við fjöl- skyldu. – Hvernig páskaegg fékkstu og hver var málshátturinn? Við hjónin tókum sameiginlega Nóa Síríus nr. 4. „Þá koma dagar og þá koma ráð,“ sem á vel við á þessum sérstöku tímum. – Hvaða aðferðir ertu að nýta til að eiga í samskiptum við fólk? Við notumst mest við Facebook og FaceTime. – Ef þú fengir bara að hringja eitt símtal í dag, hver fengi það símtal og hvers vegna? Móður mín sem býr í Pensicola, Flo- rida fengi það símtal. Hún er þar og ég hér. – Hvernig ertu að upplifa nýjustu tíðindi um að það muni jafnvel taka margar vikur inn í sumarið að aflétta hömlum vegna COVID-19? Fyrst og fremst finnst mér þríeykið okkar, Víðir, Þórólfur og Alma, hafa staðið sig með eindæmum vel. Gott að vita að íslenska þjóðin hefur valið sér þá gæfu að láta fagfólk stjórna okkar aðgerðum. Það sló örlítið á bjartsýnina að heyra þetta frá Þór- ólfi EN við erum svo fljót að aðlagast breytingum í okkar umhverfi svo ég veit að við vinnum vel úr þessu. – Hvaða lærdóm getum við dregið af heimsfaraldrinum? Að mannkynið var komið langt fram úr náttúrunni og ég vona að við náum að endurmeta verðgildi okkar með tilliti til hvernig við for- gangsröðum hvar styrkur samfélags- ins liggur. – Ertu liðtækur í eldhúsinu? Já, er það þegar ég tek mig til EN þar sem betri helmingur minn er svo sterk þar þá vík ég á örgurstundum eins og t.d. á hátíða- og tyllidögum. – Hvað finnst þér virkilega gott að borða? Finnst svo til allur matur góður en ef ég ætti að velja eitthvað eitt þá er það íslenska lambið. – Hvað var í páskamatinn? Hamborgarhryggur og kalkúna- bringa. – Hvað finnst þér skemmtilegast að elda? Held bara kjúkling í ýmsu formi. – Hvað var bakað síðast á þínu heimili? Vöfflur. – Ef þú fengir 2000 krónur. Hvað myndir þú kaupa í matinn? Grískt jógurt, jarðaber, bláber og rjóma. – Hvað hefur gott gerst í vikunni? Samvera, æfingar og náð að hjálpa öðrum að halda sér í líkamsrækt. – Hvað hefur vont gerst í vikunni? Allir þeir sem hafa sýkst og dáið af COVID-19. Víkur úr eldhúsinu á ögurstundu fyrir betri helmingnum – Þórður Þorbjörnsson, innkaupastjóri Íslenskra aðalverktaka hf og þjálfari hjá Flott Þrek, stefnir á að fara hringinn í sumar og nýta sér bændagistingu. Hvaða spurningu hefðir þú viljað fá að svara í þessu viðtali? Hver er spurningin og svarið við henni? Hvernig sérð þú fyrir þér næsta ferðlag þitt? Ísland er málið. Nú þegar við sjáum fram á að ferðalög erlendis verða ekki á döfinni líklega stærsta hluta þessa árs þá hlakkar mig mikið til að ferðast heima og fara t.d hring- inn sem ég hef ekki gert áður og nýta mér bændagistingu. Hlakka mikið til. N etspj@ ll vf is Þú finnur allar nýjustu fréttirnar frá Suðurnesjum á 34 // VíKurFrÉttir á SuÐurNESJum í 40 ár Fimmtudagur 16. apríl 2020 // 16. tbl. // 41. árg.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.