Víkurfréttir - 16.04.2020, Page 47
Gaman og gefandi
að hjálpa fólki
Alda Björg Sveinsdóttir er 36 ára
nemandi á sjúkraliðabraut við
Fjölbrautaskóla Suðurnesja.
„Ég valdi sjúkraliðabraut af því
mér finnst gaman og gefandi
að hjálpa fólki. Ég er að klára
fyrsta árið. Námið er mjög fjöl-
breytt og skemmtilegt. Hjúkrun
er spennandi og áhugaverð. Ég
hef bæði starfað á sjúkrahúsi
og við umönnun aldraðra og er
mjög spennt að fá að starfa sem
sjúkraliði en stefni ekki á áfram-
haldandi nám í náinni framtíð en
hver veit. Mig er búið að langa
að læra sjúkraliðann í mörg ár, svo þetta er draumur að rætast. Ég er
mjög ánægð í FS, þar erum við lítill, samheldinn hópur með frábæra
kennara og gott andrúmsloft, krakkarnir taka mér vel og mér líður
ekki eins og ég sé helmingi eldri en þau. Ég er búin að kynnast sam-
nemendum og kennurum. Stemmninginn er góð, við erum ekki mörg
svo við fáum góða kennslu og erum dugleg að hjálpast að í tímum,
kennararnir eru frábærir eins og áður sagði, það skiptir öllu máli að
manni líði vel í skólanum. Það er alltaf gaman að læra eitthvað sem
maður hefur áhuga á. Ef þú hefur áhuga á hjúkrun þá mæli 100% með
sjúkraliðabraut í FS, hvort sem þú ætlar í framhaldsnám eða ekki,
sjúkraliðinn er góður undirbúningur fyrir framhaldssnám, svo vantar
alltaf sjúkraliða, það er auðvelt að fá vinnu.“
vísar til ástandsins vegna kóróna-
veirunnar sem hefur skapað enn
meiri eftirspurn eftir þessari mikil-
vægu starfsstétt í landinu en næg var
eftirspurnin fyrir.
Mjög fjölbreytt starf
„Starf sjúkraliða felur í sér eftirlit
og umönnun einstaklinga og fjöl-
skyldna á heilbrigðisstofnunum eða
á heimilum. Starfið er fjölbreytt,
allt frá því að veita stuðning og
hvatningu við athafnir daglegs lífs
til þess að hjúkra mikið veikum ein-
staklingum á sérhæfðum deildum.
Í starfi sjúkraliða eru algengir vinnu-
staðir sjúkrahús, hjúkrunarheimili,
heilsugæslustöðvar eða aðrar heil-
brigðisstofnanir. Sjúkraliðar taka
þátt í þverfaglegri teymisvinnu um
hjúkrun og meðferð, eiga samskipti
við ólíka einstaklinga undir ýmsum
kringumstæðum og þurfa að geta
metið líkamlegt, andlegt og félagslegt
ástand einstaklinga og fjölskyldna
í samráði við hjúkrunarfræðinga,
lækna og annað heilbrigðisstarfsfólk.
Sjúkraliði er lögverndað starfsheiti.“
Nýtt sjúkraliðanám fyrir
þá sem eru í vinnu
„Á haustönn mun FS bjóða upp á
sérskipulagða námslínu á sjúkra-
liðabraut sem ætluð er þeim sem
eru starfandi eða hafa starfað við
aðhlynningu á heilbrigðisstofn-
unum og vilja sækja sér menntun
til að starfa sem sjúkraliðar. Nám
og kennsla verður sambland af stað-
bundinni kennslu/námi, með dreif-
og fjarnámssniði og mun taka mið
af þörfum fólks sem er í vinnu með
námi.“
Fordæmalaus kennsla
á tímum veirunnar
Nú hafa allir framhaldsskólar lands-
ins verið lokaðir nemendum vegna
kórónaveirunnar frá 13. mars, hvern-
ig hefur Ása leyst málin með nem-
endum sínum?
„Á meðan á samkomubanni
stendur leysum við málið þannig að
við höldum okkar striki og sinnum
náminu samkvæmt stundaskrá um
fjarfundabúnað. Okkur hefur fund-
ist þetta fyrirkomulag takast nokkuð
vel, þó mikið vanti þegar bein mann-
leg samskipti vantar. Ekki liggur fyrir
núna hvernig önninni verður lokið
– en henni mun ljúka og þeir nem-
endur sem eiga að útskrifast munu
útskrifast þó ekki sé ljóst á þessari
stundu hvernig það verður gert,“
segir Ása að lokum og hvetur þá sem
eru að íhuga nám á sjúkraliðabraut í
haust endilega að kynna sér brautina
á vef skólans.
Langar að
hjálpa öðrum
Neil Einar Christian Einarsson er
nítján ára nemandi á sjúkraliðabraut
við Fjölbrautaskóla Suðurnesja.
„Ég valdi þetta nám því ég hef
áhuga á að hjálpa öðrum sem
þurfa á því að halda, líka það
að margir í fjölskyldunni hjá
mömmu vinna sem heilbrigðis-
starfsmenn og mig langaði að
halda þeirri hefð gangandi. Ég
er að útskrifast á þessari önn og
mun fara í viðbótarnám. Sjúkra-
liðanámið við FS er fínt og lær-
dómsríkt. Það sem mér finnst
spennandi við námið er að ég fæ
að kynnast mörgu mismunandi
fólki og læra eitthvað nýtt. Tækni-
lega hef ég ekki unnið á spítala en
ég hef verið í starfsnámi og var að
læra inn á mismunandi deildir til
að afla mér reynslu og bæta við
þekkingu mína. Ég er spenntur að vinna sem sjúkraliði en mun einnig
halda áfram að læra og stefni á að fá réttindi sem hjúkrunarfræðingur
sem sérhæfir sig í svæfingum. Ég læri svo margt í gegnum sjúkraliða-
námið, það opnar líka mörg tækifæri fyrir framtíðina. Ég er búinn að
eignast ágætlega marga vini í FS, stemmningin er fín og kennararnir
líka. Það er gaman að læra.“
Sjúkraliðanám opnar ýmsar dyr
Fimmtudagur 16. apríl 2020 // 16. tbl. // 41. árg.
VíKurFrÉttir á SuÐurNESJum í 40 ár // 47