Spássían - 2012, Side 6

Spássían - 2012, Side 6
6 og ræða um þær bækur eftir íslenskar konur sem eru að koma út þetta haustið – þær eru svo margar að þær endast vafalaust langt fram á næsta ár. Í síðasta leshring sagði Ragnheiður Margrét okkur hinum líka frá nokkrum nýlegum bandarískum skáldsögum sem hún las þegar hún dvaldi í New York í nóvember. Nefna má til dæmis The Emperor‘s Children eftir Clarie Messud, en hún kom út 2006 og sló í gegn.“  Leshringurinn hefur brallað ýmislegt saman sem hópur. „Við höfum gert útvarpsþætti og skrifað greinar bæði saman og hver fyrir sig. Margar okkar hafa starfað sem gagnrýnendur til lengri eða styttri tíma, flestar verið kennarar til lengri eða styttri tíma og við höfum allar lagt okkar af mörkum til að útbreiða kvennabókmenntaþekkingu og feminískt sjónarhorn. Ef litið er til starfa einstaklinganna innan hópsins held ég að við höfum áorkað miklu á þessu sviði í formi greinaskrifa, útvarps- og sjónvarpsþátta, gagnrýni, þýðinga, kennslu og listrænnar sköpunar. Þær sem luku prófum í bókmenntafræði hafa allar skrifað lokaritgerðir á kvennabókmenntasviði og nefna má t.d. að Sigurrós skrifaði fyrstu MA-ritgerðina um Guðrúnu frá Lundi, Gyða Jónsdóttir skrifaði fyrstu BA-ritgerðina um minningargreinar um konur og Ragnhildur Richter skrifaði fyrstu fræðibókina um sjálfsævisögur kvenna.“  Á 25 ára afmæli leshringsins fóru lessystur saman til Parísar. „Það var frábær ferð. Rannveig kom með en þar sem hún á orðið erfitt með gang vegna síns háa aldurs, leigðum við hjólastól undir hana og rúlluðum henni um götur Parísar, söfn og veitingastaði.“ Hrefna og Ragnhildur voru skipaðar fararstjórar og þær skipulögðu ferðina út í ystu æsar og lögðu línurnar með klæðaburð og annað. Ragnheiði Margréti má kalla hirðskáld leshringsins og hún orti margar skemmtilegar dróttkvæðar vísur í ferðinni okkur.“ Tvær þeirra fengu að fljóta hér með: Farardragtin dýra dula létt, ei kular í París er stúlkur stórar stika um götur og hik´ei. Liti vara líta í Leifsstöð og bjórinn kneyfa, ef rignir lekkri regnhlíf renna upp og spenna. Laumast systur í lestri læðast með bókaskræður; stýru hótels stór(r)i stríða með smjaðri blíðu. Inn í borgarargið allar lausar við kalla; París kunna að kanna kerlingar -festar með perlu. Leshringurinn í París í september 2006. Frá vinstri: Ragnheiður Margrét Guðmundsdóttir, sjálfstætt starfandi íslenskufræðingur og þýðandi, Edda Kjartansdóttir, forstöðumaður SSR menntavísindasviðs H.Í. og ritstjóri, Þórunn Sigurðardóttir, bókmenntafræðingur og fræðimaður með 17. öldina sem sérsvið, Hrefna Haraldsdóttir, bókmenntafræðingur og fyrrum stjórnandi Listahátíðar í Reykjavík, Soffía Auður Birgisdóttir bókmenntafræðingur og fræðimaður með 20. öldina og kynjafræði sem sérsvið, Sigurrós Erlingsdóttir, bókmenntafræðingur og íslenskukennari í MS sem var „fótósjoppuð“ inn á myndina þar sem hún komst ekki með í ferðina, Ragnheiður Jónsdóttir, dr. í menntunarfræðum og stofnandi Hannesarholts, Ragna Steinarsdóttir, bókavörður á háskólabókasafni, Ragnhildur Richter, bókmenntafræðingur og íslenskukennari í MH, Hrund Ólafsdóttir, bókmenntafræðingur, leikskáld og leiklistarkennari og Rannveig Löve, fyrrverandi kennari og einn af stofnendum SÍBS.

x

Spássían

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Spássían
https://timarit.is/publication/1454

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.