Spássían - 2012, Side 18

Spássían - 2012, Side 18
18 GUNNAR Helgason er flinkur að skrifa hressilegar og fyndnar sögur. Þetta sannaði hann þegar bækurnar Goggi og Grjóni (1992) og Goggi og Grjóni vel í sveit settir (1995) komu út og lesendur veltust um af hlátri. Nú eru sögurnar um Jón Jónsson orðnar tvær talsins og auk þess að kitla hláturtaugar sýnir Gunnar Helgason að hann er lunkinn að skrifa um tilfinningar stálpaðra stráka.  Bækurnar um Jón bera titlana Víti í Vestmannaeyjum (2011) og Aukaspyrna á Akureyri (2012) og augljóst er hvert sögusviðið er hvoru sinni. Hvor saga um sig gerist á stærsta knattspyrnumóti ársins í árgangi söguhetjanna, Shell-mótinu og N1-mótinu, en Jón og félagar hans í Þrótti gera sér nokkuð góðar vonir um sigur. Þetta eru þó ekki eingöngu sögur af vítaspyrnum, aukaspyrnum, tæklingum og innköstum heldur fjalla þær um vináttu, þroska, svik og fyrirgefningu, missi, öfund og heimilisofbeldi og er þá ekki allt upp talið.  Fótboltalýsingar og átök tengd boltanum, innan vallar og utan, eru fyrirferðarmikil málefni í bókunum og lýsingar á einstökum leikjum geta orðið helst til langdregnar. Gunnari tekst betur upp við að gera grein fyrir tilfinningalegum hliðum knattspyrnunnar en sjálfum spörkunum og aukaspyrnunum. Hann læðir líka inn umfjöllun um það hvernig íþróttamenn eiga að haga sér og af hverju, en boðskapurinn er stundum nánast í prédikunartón. Grófar og einfaldar myndskreytingar Ránar Flygenring af skoppandi boltum og leikmönnum Þróttar og myndrænar lýsingar á mörkunum sem strákarnir skora gæða þó þennan hluta bókanna lífi. Í heild falla myndir hennar mjög vel að þeirri gleði og þeim húmor sem ríkir í bókunum og kápumyndirnar eru sérlega vel heppnaðar og byggðar upp með sama hætti. Þar svífur Jón í loftinu yfir fótboltavelli og er í þann mund að senda frá sér hörkubolta. Í fyrri bókinni gýs hvalur í baksýn, eldfjall í þeirri síðari.  Það er heilmikil spenna tengd fótboltanum; strákarnir leggja allt í sölurnar til að vinna hvern leik og þrá ekkert heitara en standa uppi sem sigurvegarar að því loknu. Þetta á við um báðar bækurnar en einnig á það við um þær báðar að mestu átökin og helsta dramað á sér stað utan vallar. Í Víti í Vestmannaeyjum snúast átökin mestmegnis um Ívar, strák sem býr í Eyjum, er í ÍBV og er því mótherji Jóns og félaga hans. Ívar býr við heimilisofbeldi. Faðir hans, Tóti, er drykkjusvoli, en fyrrverandi fótboltahetja. Þar til Jón og hinir Þróttararnir mæta á svæðið er lítið gert í því þótt Tóti gangi í skrokk á syni sínum, enda er tvíburabróðir hans lögga í plássinu. Í seinni bókinni er Ívar genginn til liðs við Þróttara og fluttur til Reykjavíkur. Allt virðist með kyrrum kjörum en Tóti dúkkar upp á Akureyri og veldur alls kyns vandræðum.  Persónusköpunin er full grunn í Víti í Vestmannaeyjum en lesendur kynnast sumum persónum þó betur í seinni bókinni, einkum aðalpersónunni Jóni Jónssyni. Jón er heillandi karakter en hann er gjörsamlega ómeðvitaður um eigin kosti – bæði á vellinum og utan hans – auk þess sem hann er langt í frá fullkominn. Fótboltabækurnar eru þroskasögur Jóns þar sem hann þarf að takast á við og viðurkenna eigin bresti og þótt það sé erfitt þarf hann stundum að biðjast afsökunar. Einnig þarf hann að læra að meta sjálfan sig. Það er Jón sem segir sögurnar og sögumannsröddin er ágætlega sannfærandi. Bækurnar eru skrifaðar á hressilegan og eðlilegan hátt, þ.e. málfarið gengur vel upp miðað við þann aldur sem bækurnar fjalla um auk þess sem þær falla vel að tíðarandanum.  Víti í Vestmannaeyjum og Aukaspyrna á Akureyri eru langar og efnismiklar bækur, önnur um 260 síður og hin tæpar 300. Þetta ætti þó ekki að fæla unga lesendur frá bókunum heldur þvert á móti. Bækurnar eru báðar nægilega spennandi til að maður verði hálf svekktur þegar flett er á lokasíðuna og það er alltaf kostur, á svolítið öfugsnúinn hátt. Gunnar Helgason. Víti í Vestmannaeyjum. Myndskreytingar: Rán Flygenring. Mál og menning. 2011. Gunnar Helgason. Aukaspyrna á Akureyri. Myndskreytingar: Rán Flygenring. Forlagið. 2012. Spenna, gleðiog sorg innan og utan vallar Eftir Helgu Birgisdóttur YFIRLESIÐg a g n r ý n i

x

Spássían

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Spássían
https://timarit.is/publication/1454

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.