Spássían - 2012, Page 24

Spássían - 2012, Page 24
24 EKKI HVERJU SEM VAR HLEYPT INN Kápan á Ströndum, nýjustu ljóðabók Gerðar Kristnýjar, minnir helst á bútasaumsteppi eða pappírslistaverk. Hönnuðurinn Alexandra Buhl virðist hafa ofið saman mjóa renninga í bláum og hvítum tónum. Þeir virðast ýmist ætla að stökkva fram eða sökkva ofan í bókina. Þarna sjást ský, himinn, ísjakar, jökull, sjór – eða jafnvel þetta allt saman. Titill bókarinnar, Strandir, stekkur líka fram, ritaður á appelsínugulan borða. Hann er fenginn úr fyrsta ljóði bókarinnar þar sem ort er um Strandasýslu en þaðan á Gerður rætur að rekja. Í öðrum ljóðum er staðnæmst við æskuslóðir skáldsins í Safamýri í Reykjavík og hugað að vorinu í Skerjafirðinum þar sem Gerður býr nú. Í „Hólavallagarði“ er lesandinn harkalega minntur á stríðsátök úti í hinum stóra heimi. Sum ljóðin gerast í útlöndum og segja má að í Ströndum fari Gerður víðar en áður og þótt oft sé nístingskuldi í ljóðunum eru þar líka afslappaðri og hlýlegri ljóð. Gerður tekur ekki fyrir að svo sé. Gerður Kristný hefur hlotið fjölda verðlauna, bæði fyrir barnabækur sínar og fullorðinsbækur. Fyrir tveimur árum fékk hún síðan Íslensku bókmenntaverðlaunin fyrir Blóðhófni en nú eru það Strandir sem gagnrýnendur hafa skreytt hverri stjörnunni á fætur annarri, enda er skáldið þar í fantagóðu formi. Ljóðin virðast í fyrstu láta lítið yfir sér en reynast oft geyma stóra sögu. Myndirnar sem dregnar eru upp eru fágaðar og meitlaðar. Helga Birgisdóttir ræddi við Gerði Kristnýju um hvernig hún hefur slakað á landamæravörslunni í ljóðheimi sínum.

x

Spássían

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Spássían
https://timarit.is/publication/1454

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.