Spássían - 2012, Side 27

Spássían - 2012, Side 27
27 litla Kárason, sem er aukapersóna úr Njálu, að aðalpersónu í ljóði. Það var gaman að tosa hann fram á sjónarsviðið, þennan litla dreng sem kemst upp með það að ganga í eldinn með afa sínum og ömmu, þeim Njáli og Bergþóru, og finnst svo undir nautshúð. Öll þessi kvöldu börn í heiminum verða að eiga sinn dýrling.“ „Stjarna fæðist á Vestdalseyri“ er bjart og fallegt ljóð ort til Vilborgar Dagbjartsdóttur skálds. Gerður las ævisögu Vilborgar eftir Þorleif Hauksson, Úr þagnarhyl, og fannst hún bæði góð og skemmtileg. „Hún sat í mér, þessi mynd af barninu Vilborgu að klöngrast heim um nótt þegar breskur hermaður kveikir skyndilega á kastara til að lýsa henni leiðina heim. Mér fannst gaman að geta sýnt Vilborgu virðingarvott og ort henni ljóð. Ég las það fyrir hana í síma þegar það var fullort og hún benti mér á að hún hefði átt vaðstígvél sem barn en ekki strigaskó eins og ég hafði klætt hana í.“ Gerður yrkir um fleiri skáld; Bill Holm sem lést árið 2009, og „Í minningu skáldbróður“ er ort um Jónas Þorbjarnarson sem lést fyrr á þessu ári. „Ég setti undir mig hausinn í London í sumar og ákvað að yrkja erfiljóð um Jónas. Andlát hans var svo óvænt og dapurlegt.“ KULDI, SNJÓR OG KRAP Ljóðin sem gerast á Íslandi, einkum Strandasýslu, einkennast af kulda og snjó en hvergi er kuldinn þó meiri en í bálkinum „Skautaferð“. Þar krafsar veturinn „með klónum / í hurðina“ og „vindar / geisa um gáttir“. „Lesendum er ráðlagt að renna upp í háls, muna eftir vettlingunum og jafnvel líka endurskinsmerki áður en þeir byrja á „Skautaferð“,“ segir Gerður, sem upphaflega hugsaði sér að bálkurinn kæmi út í sér bók. „En síðan voru bæði bálkurinn og stöku ljóðin tilbúin á sama tíma svo ákveðið var að gefa hvort tveggja út í sömu bókinni.“ Við kuldann fléttar skáldið handavinnu því útsaumur leikur stórt hlutverk í bálkinum svo úr verður listaverk; myndrænn bálkur og nístingskaldur, hraður og heillandi. Þótt í „Skautaferð“ séu saumuð blóm með „blíðgulum þræði“ (56) þvertekur Gerður fyrir að vera lunkin með nálina. „Ég er algjör rati í handavinnu. Ég hafði enga eirð í mér í handavinnutímum svo kennarinn lét mig sitja við hlið sér í tímum og snúa út í bekkinn. Mér fannst aukafög frekar leiðinleg og vildi bara læra þau bóklegu. Sem betur fer gat mamma mín dregið mig að landi í handavinnuverkefnunum.“ Í „Skautaferð“ leikur Gerður sér að tungumálinu í línum eins og „Á dauða þínum / á ég von“ (63) og vísar í barnavísuna „Ein sit ég og sauma“ (61). Þegar ljóðmælandi hefur svo spennt á sig skautana og spyrnt sér af stað birtist tunglið sem á hverju ári færist „fjær jörðinni / svo nemur / barnsfingri“ (77). „Þetta er alveg satt. Ég fór í stjörnuver út í Melaskóla með syni mínum og þar var sagt að tunglið færðist sífellt fjær jörðinni. Ég viða víða að mér hugmyndum.“ FYRIR BÖRN OG MEÐ BÖRNUM Í fyrrasumar kenndi Gerður börnum ritlist í Borgarbókasafninu í Gerðubergi og nú í vetur hefur hún kennt 5. bekkingum í Melaskóla sömu kúnst. Hún segir ritlistarkennsluna vera mjög skemmtilega og eiga vel við sig. „Það er gaman að kenna 5. bekkingum ritlist því þau eru svo jákvæð í garð hvers annars. Þeim fannst það sem bekkjarsystkini þeirra lásu upp svo skemmtilegt. Ég er alltaf að hitta krakka sem njóta þess að lesa bækur. Það er svolítið kúnstugt að íslensk börn skuli geta skráð sig til dæmis í breikdans og badminton en ekki í leshring á næsta bókasafni og hitt þar með aðra krakka sem Ég hefði aldrei skrifað barnabók um konu sem er rænt heiman frá sér og seld mansali og ég hefði aldrei ort bálk um konu sem setur kransaköku upp á bílþakið sitt svo bakkelsið hendist af um leið og hún ekur af stað. Mér finnst dásamlegt að hafa komist upp með að skrifa bæði fyrir börn og fullorðna án þess að vera stimpluð bara annað hvort. “ „

x

Spássían

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Spássían
https://timarit.is/publication/1454

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.