Spássían - 2012, Page 52

Spássían - 2012, Page 52
52 ÓFULLGERÐUR HEIMUR Tolkien var með sannkallaða fullkomnunaráráttu hvað varðaði bókaútgáfu. Hann sat á stórvirkinu Silmerillinum eins og drekinn Smeygur á gullinu í Erebor, endalaust að endurskrifa, bæta við og laga, alveg þangað til hann lést 81 árs gamall árið 1973 og aðrir fengu að taka við fjársjóðnum. Sonur hans, Christopher Tolkien, gaf verkið út fjórum árum síðar og hefur gert ævistarf úr því að fara í gegnum handritsbúta föður síns og gefa út óklárað efni í ýmsum myndum. Líklega hefði engu máli skipt þótt Tolkien hefði lifað heila öld í viðbót, sköpunarverk hans er svo gríðarstórt og mikilfenglegt að hann hefði eflaust aldrei náð að „klára“ það nema vegna inngrips utanaðkomandi aðila, hvort sem það voru aðdáendur, ritstjórar eða sjálfur dauðinn. En jafnvel útgefin verk Tolkiens voru aldrei fyllilega kláruð vegna þess að þau voru ávallt að breytast að einhverju leyti, að mótast og aðlagast víðara samhengi goðafræði og sagnahefðar sem Tolkien var endalaust að dútla við. Hringadróttinssaga stendur t.a.m. sem sjálfstæð heild, en viðbæturnar sem fylgdu síðasta bindinu bera því skýrt vitni hvernig Tolkien lék sér að því að staðsetja söguna innan þeirrar heimsmyndar sem hann hafði skapað. Þar er farið nákvæmlega út í sagnfræðina á bak við verkið, ættfræði persóna og útskýringar á atburðum sem dýpka mjög upplifun lesandans á efninu. Það sama má segja um sagnaflóruna sem leit dagsins ljós eftir dauða höfundarins og þá sérstaklega goðsögurnar í Silmerillinum.  Tolkien hefði eflaust legið mun lengur á Hringadróttinssögu ef útgefandinn hefði ekki setið yfir honum og heimtað framhald af Hobbitanum, sem hafði notið mikilla vinsælda eftir að hún kom fyrst út árið 1937. Það sem átti að vera saga af svipaðri lengd og fyrir svipaðan lesendahóp og fyrri bókin varð að lokum langtum lengra og flóknara verk. Í bréfi til útgefandans Stanley Unwin 19. desember 1939 segist Tolkien vera á fullu að skrifa framhaldið, en óttast að það sé að „stækka um of“ og muni „ekki beinlínis henta sama lesendahópi (fyrir utan þá sem eru nú þegar orðnir eldri).“ Sú varð raunin, enda liðu sautján ár á milli Hobbitans og Föruneyti hringsins sem leit loks dagsins ljós árið 1954 og reyndist vera mun alvarlegra og myrkara verk en upp var lagt með. Fyrrnefndir viðaukar áttu að fylgja þessu fyrsta bindi, en þeir birtust þó ekki fyrr en með þriðja bindinu í október 1955. Útgáfunni á því seinkaði einmitt vegna viðaukanna enda virðist sem svo að Tolkien hafi átt jafn erfitt með að segja skilið við þá eins og flest annað sem hann skrifaði. „Ég óska þess nú að hafa aldrei gefið loforð um viðauka!“ ritaði hann til útgefandans 6. mars 1955 undir mikilli pressu að ljúka verkinu endanlega.  Í sérstöku hefti tímaritins Empire sem tileinkað er Hobbitanum segir Tolkien-sérfræðingurinn Tom Shippey frá því að höfundurinn hafi verið svo mikill slóði við að senda frá sér eigið efni að það sé líklega hvatningu félaga hans, C.S. Lewis, að þakka að Hringadróttinssaga hafi komið út á annað borð. Að sama skapi hefði Tolkien líklega aldrei komið Hobbitanum í útgáfu ef fyrrum nemandi hans, Elaine Griffiths, hefði ekki gripið til sinna ráða. Hún fékk handritið lánað og gaukaði því að útgefanda, en sjálfur hafði Tolkien látið sér nægja að sýna nokkrum vinum efnið og skella því svo ofan í skúffu. „Það þurfti að rífa af honum handritið,“ útskýrir Shippey, „og skila því inn á meðan Tolkien sat fastur og sagði „En það er ekki tilbúið; ég þarf annað ár í viðbót!““ Því er ekki að undra að Silmerillinn hafi legið ókláraður í öll þessi ár, þrátt fyrir að Tolkien hafi verið samningsbundinn því að skrifa fleiri bækur. Í þessu samhengi er þó ekki hægt að líta framhjá bréfi sem Tolkien ritaði til aðdáanda 20. september 1963, þar sem hann játar efasemdir um réttmæti þess að fullgera sköpunarverk sitt og færir rök fyrir eigin útgáfutregðu: „Hluti af því sem heillar við Hringadróttin tel ég einmitt vera leiftursýnina á hina miklu sögu sem liggur í bakgrunninum: aðdráttaraflið sem ókönnuð eyja býr yfir úr fjarska, eða turnar í fjarlægri borg sem glitra í upplýstri þoku. Að fara þangað felur í sér að tortíma töfrunum, nema að nýr og óræður sjóndeildarhringur opnist um leið.“ ENGINN GEORGE LUCAS Þrátt fyrir miklar viðbætur við heildarverkið var Tolkien þó enginn George Lucas – sem hefur endalaust verið að krukka í upprunalegu Stjörnustríðs-myndirnar – og leyfði sjálfum ritsmíðunum að mestu að standa óáreittum. Aukalegar upplýsingar komu iðulega fram í gegnum jaðarinn, í óútgefnum sögum, fyrrnefndum viðaukum og alls kyns handritsbútum sem sýna fram á tilraunir höfundarins til að skapa sameinaða og ótruflaða heildarmynd af hinum forsögulega Miðgarði. Þó er ein undantekning á þeirri hefð og hana er að finna í Hobbitanum. Um leið og vinna var hafin á framhaldinu kom fljótlega í ljós ósamræmi á milli Hobbitans og Hringadróttinssögu. Þetta kom fyrst og fremst fram í kaflanum „Gátur í myrkri“ þar sem Gollri og töfrahringnum er lýst, en í fyrstu útgáfu Hobbitans var Gollrir allt öðruvísi skrímsli (hann var hvorki úrkynjaður hobbiti né spilltur af kröftum hringsins) og hringurinn ekkert sérstaklega merkilegur, utan þess að hann gerði mann ósýnilegan. Með aukinni áherslu á mátt hringsins í framhaldssögunni þurfti Tolkien að bregðast við þessu ósamræmi. Það gerði hann á tvo vegu. Í fyrsta lagi skrifaði hann útskýringu í innganginn að Föruneyti hringsins þar sem fram kemur að Bilbó (sem er titlaður höfundur Hobbitans) hafi einfaldlega sagt ósatt frá því þegar honum hlotnaðist dýrgripurinn. Misræmið er þannig leyst með því að gera söguhöfundinn óáreiðanlegan og láta Bilbó ljúga undir áhrifum frá hinum illa hring. Í öðru lagi endurskrifaði Tolkien kaflann um Gollri og hringinn og breytti honum töluvert svo að sagan passaði betur við megininntak Hringadróttinssögu – Gollrir er þá orðinn Rankin-Bass teiknimyndin frá 1977.

x

Spássían

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Spássían
https://timarit.is/publication/1454

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.