Íþróttablaðið


Íþróttablaðið - 01.12.1967, Page 8

Íþróttablaðið - 01.12.1967, Page 8
34. SAMBANDSRAÐSFUNDUR Í.S.Í. Haldinn í Reykjavík 10. nóv. 1967 34. fundur Sambandsráðs ISl var haldinn í Leifsbúð á Hótel Loftleiðum föstudaginn 10. nóvember 1967. Forseti ÍSÍ, Gísli Halldórsson, setti fundinn, og bauð hann sérstaklega velkomna fulltrúa, sem langt að voru komnir, svo og Kristján Benjamínsson, nýkjörinn formann hins ný- stofnaða Badmintonsambands Islands. Síðan var gengið til dagskrár. Skýrsla framkvœmdastjórnar. Gísli Halldórsson flutti skýrslu framkvæmda- stjórnar ÍSl fyrir tímabilið 6. maí—10. nóv. þ.á., en útdráttur úr þeirri skýrslu er birtur annars staðar í blaðinu, og er hún því ekki rakin hér nánar. Þó ber að geta þess, að forseti notaði tæki- færið og afhenti Þóri Þorgeirssyni, Laugar- vatni, gullmerki ÍSl, sem framkvæmdastjórn samþykkti að veita honum í tilefni af 50 ára afmæli hans. Að skýrslu lokinni drap forseti á, að fram- kvæmdastjórnin hefði rætt það nokkuð, að fella bæri niður haustfundi sambandsráðs, þar sem formannafundirnir gætu komið í þeirra stað, en þeir eru fastir liðir í starfi ISl þau haust, þegar ekki eru íþróttaþing. Olympíunefnd. Hermann Guðmundsson, ritari Olympíu- nefndar Islands, gerði grein fyrir fundargerð- um nefndarinnar, sem lagðar voru fjölritaðar fyrir fundinn, og Jens Guðbjörnsson, gjald- keri nefndarinnar, gerði grein fyrir nokkrum punktum úr reikningum nefndarinnar, en þeir lágu ekki fyrir að öðru leyti. Síðan tók til máls formaður KSl, Björgvin Schram. Kvað hann fulla ástæðu til að þakka framkvæmdastjórninni vel unnin störf á ofan nefndu tímabili, en síðan bar hann fram fyrir- spurn til gjaldkera Olympíunefndar um sjóð, sem ON hefði lagt í bók, en sá sjóður væri ágóði af þátttöku knattspyrnumanna í Olym- píukeppni 1959. Kvað hann knattspyrnumenn hafa hug á að fá sjóð þennan til ráðstöfunar. Jens Guðbjörnsson skýrði frá því, að Olympíusjóður Islands B-deild, sem væri um- ræddur ágóði af knattspyrnuþátttöku 1959, væri nú kr. 52.641,00. Þórður Sigurðsson bar fram fyrirspurn, hvort KSl hefði ekki fengið greiddan kostnað vegna olympíuþátttöku á þessu ári. Björgvin Schram upplýsti, að enn hefði ekki komið til þess, að tap yrði af þátttöku knatt- spyrnumanna í olympíukeppni. Gísli Halldórsson skýrði frá, að umræddu fé yrði ekki ráðstafað, nema í samráði við knatt- spyrnumenn. Ennfremur upplýsti hann, að um- deilt væri nokkuð, hvort undankeppnin væri olympíuþátttaka, en hér hefði Olympíunefnd þó frekar aðhyllzt þá skoðun, og vildi nefndin án efa gjarnan nota umræddan sjóð til að greiða ferðakostnað knattspyrnumanna til OL. Garðar Sigurðsson, formaður SSl, bar fram fyrirspurn um, hvort umsókn Sundsambands- ins um styrk frá ON hefði ekki komið fram, en þeirrar umsóknar var ekki getið í fundargerð- um ON. Upplýst var, að umsóknin hefði komið fram, en þar sem ON hefði enn ekki tilkynnt þátt- töku í sundi, gæti nefndin heldur ekki sam- þykkt styrk til SSl. Iþróttamiðstöð á Laugarvatni. Forseti ÍSÍ, Gísli Halldórsson, drap á styrk- 324

x

Íþróttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Íþróttablaðið
https://timarit.is/publication/1455

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.