Íþróttablaðið - 01.12.1967, Page 42
GLÍMUFÖRIN TIL KAIMADA
SUMARIÐ 1967
IJr skýrslu fararstjóra, Þorsteins Einarssonar
Stjórn Glímusambands Islands (GLl) skipaði á sl.
vetri eftirtalda í nefnd til þess að undirbúa glimuför
til heimssýningarinnar í Montreal í Kanada:
Sigurð Geirdal, formann, Valdimar Óskarsson, Sig-
urð Xngason, Sigtrygg Sigurðsson og Þorstein Einars-
son.
Nefndin hafði fljótt samband við framkvæmdastjóra
islenzku sýningardeildarinnar, hr. framkvæmdastjóra
Gunnar Friðriksson. Tjáði hann nefndinni, að íslenzku
aðilarnir að sýningunni byðust til þess að greiða allan
ferða- og dvalarkostnað 5 glímumanna. Skyldi miða
við, að sýnt yrði á degi Norðurlandanna, sem stæðu
saman að einum sýningarskála. Var í fyrstu gert ráð
fyrir, að sýnt yrði með finnskum kvenleikfimiflokki og
að sýningartími yrði 45 mín. Síðar kom í ljós, að leik-
fimiflokkurinn frestaði för sinni, og var þá sýningar-
tími glímunnar lengdur í klukkutlma.
Samkvæmt ósk framkvæmdastjórans voru honum af-
hentar tvær frásagnir um glímu á ensku og nokkrar
mjmdir. Einnig var honum skýrt frá sýningaratriðum.
Hér var um för á vegum GLÍ að ræða eða för lands-
liðs í glimu til þess að leysa verkefni á sambandsins
vegum á heimssýningu, og skipaði því stjórn GLl
þriggja manna landsliðsnefnd. 1 henni áttu sæti:
Þorsteinn Einarsson, formaður, Hafsteinn Þorvalds-
son og Rögnvaldur Gunnlaugsson.
Þorsteinn Kristjánsson, landsþjálfari GLl, var nefnd-
inni til ráðuneytis.
Með aðstoð landsþjálfara var aflað upplýsinga um
glímuæfingar utan Reykjavíkur og horft á glímumót.
Að lokinni Landsflokkaglímu, sem háð var 19. marz
1967, samdi nefndin skrá yfir gllmumenn, sem iðkað
höfðu glímu um veturinn 1966—’67 og keppt I glímu.
Samdi nefndin skrá yfir glímuiðkendur félaganna I
Reykjavík með aðstoð glímukennara félaganna. Var I
þessari skrá leitazt við að meta færni eða hæfni
glímumanna samkvæmt þessum þáttum:
Lífaldur.
Hve lengi æft gllmu.
Hver mæting á æfingar.
Siðgæði.
Framkoma.
Limaburður.
Vöxtur.
Snyrtimennska.
Hver árangur I glímukeppni.
Þátttakandi I hve mörgum glímumótum.
Þar sem hér var um trúnaðarmál að ræða milli
nefndarinnar og kennaranna og fyrstu tilraun um slikt
mat, verður skráin ekki birt. Nefndin vill benda á, að ef
glímumenn mega vænta slíks mats I lok hvers vetrar
og ákveðin frammistaða eða einkunn veitti þeim færslu
milli getuflokka eða ávinning ákveðins stigs I stiga-
kerfi, þá mætti með slíku án efa efla glímufærni, og
sambandið eða félögin vissu betur, yfir hvaða liðsstyrk
glíman byggi.
1 viðtölum var kannað, hversu færni þeirra glímu-
manna væri varið, sem tók þátt I glímumótum utan
Reykjavíkur, t. d.:
1) Austfirðir (Aðalsteinn Eirlksson, Reyðarfirði).
Austfjarðaglíma háð á Reyðafirði.
2) Norðurland (Haraldur Sigurðsson, Akureyri, og
Þráinn Þórisson, Mývatnssveit, S.-Þing.).
Fjórðungsglíma Norðlendinga háð á Akureyri 30.
apríl 1967 og glímumót I Hörgárdal 14. apríl 1967.
3) Vestfirðingafjórðungur (Már Sigurðsson og Sveinn
Guðmundsson, Stykkishólmi).
Glímumót Vestfirðingafjórðungs háð 8. apríl 1967 I
Stykkishólmi.
4) Glímumót Sunnlendingafjórðungs háð að Aratungu
(Hafsteinn Þorvaldsson, Selfossi, og Þorsteinn
Kristjánsson, Rvík).
Bikarglíma Skarphéðins háð á Selfossi.
5) Upplýsingar Þorsteins Kristjánssonar, landsþjálf-
ara, um glímumenn og glímuiðkanir I Vestmanna-
eyjum.
6) Upplýsingar Sigurðar Geirdals um glímuiðkanir I
Kópavogi.
Samkvæmt athugun nefndarinnar voru 24 gllmumenn
á aldrinum 17—30 ára hæfir til úrvals í landslið og 7
á aldrinum 30 ára og eldri.
Ákvað nefndin að leggja til, að úr hópi 17—30 ára
skyldi gefa 20 glímumönnum kost á að mæta til sam-
æfinga undir Kanadaför, en eftir 10 æfingar skyldu
valdir úr 10 aðalmenn og 2 varamenn, þar sem stjórn
GLl að tillögu heimssýningarnefndar GLl hafði fallizt
á, að fara skyldi með eigi færri en 10 gllmumenn vest-
ur um haf til sýningar I Montreal.
Fimm gátu ekki mætt til æfinga vegna vinnu eða
náms.
Fjórtán hófu æfingar og sá fimmtándi eftir 6 æf-
ingar. Að loknum 11 æfingum, sem þessir 15 glímu-
menn sóttu 90% (10 sóttu allar æfingar), felldi Lands-
liðsnefnd GLl lokadóm sinn og valdi 10 aðalmenn og
358