Íþróttablaðið - 01.12.1967, Page 50
Danir komi til 2ja landsleikja hér í Reykjavík 6.—7.
apríl 1968. Svíþjóð óskar eftir heimsókn okkar 1969.
6. Fundurinn staðfesti þá eldri skoðun okkar, að nor-
rænt samstarf á gagnkvæmum grundvelli væri fylli-
lega tímabært.
Móttaka gestgjafanna var á allan hátt lofsverð, og
næsti fundur verður 18. nóvember í Næstved.
Frœðslumál.
1 sambandi við Norðurlandamót pilta, sem fram fór
í Svíþjóð um mánaðamótin marz-apríl 1967, ákváðu
handknattleikssamböndin á Norðurlöndum að efna til
námskeiðs fyrir leiðbeinendur, sem hefðu einkum með
þjálfun unglinga að gera. Hvert Norðurlandanna hafði
rétt til að senda tvo þátttakendur á námskeið þetta,
og var ákveðið, að þeir Hilmar Björnsson og Viðar
Símonarson tækju þátt í námskeiðinu fyrir hönd
H.S.l. Þeir hafa báðir starfað við þjálfun unglinga-
landsliða okkar. Námskeiðið tókst mjög vel og var
mjög vel framkvæmt af sænska handknattleikssam-
bandinu.
Eins og kunnugt er, hefur handknattleiksleiðbein-
andi verið fenginn til að halda stutt námskeið
fyrir nemendur á Iþróttakennaraskóla Islands að
Laugarvatni í lok hvers kennsluárs. Hafa ýmsir ágætir
leiðbeinendur tekið að sér námskeið þessi á undan-
förnum árum. Að þessu sinni sá Viðar Símonarson
um námskeiðið.
1 tilefni af komu sænska landsliðsins til Islands fór
stjórn H.S.l. þess á leit við formann sænska hand-
knattleikssambandssins, Poul Högberg, sem er skóla-
stjóri sænska ríkisíþróttaskólans, að hann héldi fund
með leiðbeinendum hér á landi og öðrum, er hafa
áhuga á þjálfun.
Fundur þessi var haldinn og þótti takast mjög vel.
Svo sem á undanförnum árum tókust samningar við
danska handknattleikssambandið um, að 2 Islending-
ar tækju þátt í námskeiði á vegum sambandsii.s í
Vejle fyrir leiðbeinendur. Var auglýst eftir þátttakend-
um, og voru þeir Stefán Sandholt og Stefán Ólafsson
valdir til fararinnar. Gera má ráð fyrir, að áfram-
hald verði á þessum samskiptum við Dani.
Leikreglur.
Á vegum dómaranefndar var gengizt fyrir fræðslu í
túlkun leikreglna. Formaður dómaranefndarinnar,
Hannes Þ. Sigurðsson, hefur einkum séð um fræðslu
þessa, og færir stjórnin honum beztu þakkir fyrir vel
unnin störf.
Eins og skýrt var frá í síðustu ársskýrslu, fór ný-
lega fram á vegum Alþjóða handknattleikssambands-
ins endurskoðun á leikreglum.
Formaður dómaranefndar H.S.I., Hannes Þ. Sig-
urðsson, tók að sér að sjá um nýja útgáfu á þeim.
Leikreglurnar hafa nú verið gefnar út í handhægu
broti, og er ennfremur að finna í sömu bók reglugerð
H.S.l. um handknattleiksmót, reglugerð H.S.l. um
handknattleiksdómara og lög H.S.l.
Norðurlandamót unglinga.
Norðurlandamót pilta, hið áttunda, fór fram í
Vanersborg í Svíþjóð 31. marz til 2. apríl. Eins og und-
anfarin 5 ár sendu öll Norðurlöndin flokka til þessarar
keppni.
1 fyrstu umferð á föstudagskvöld sigruðu Danir
Norðmenn með 22:11, og virtust Danir sigurstrangleg-
astir eftir þennan leik. Strax að þessum leik loknum
léku Islendingar við gestgjafana. Svíar náðu fljótlega
góðum tökum á leiknum, og í hálfleik var staðan 6:2.
Islenzka liðið komst aldrei almennilega í gang í þess-
um leik, sem lauk með sigri Svía 16:6.
Næsta umferð var svo leikin á laugardag frá kl.
13—15. Þá mættust fyrst Finnland og Island. Islend-
ingar komust nú betur í gang, en náðu þó aldrei fylli-
lega upp í fullan styrkleika. Staðan í hálfleik var 8:5
fyrir Island. I síðari hálfleik sóttu Finnar sig og náðu
að jafna undir lokin, en á síðustu mínútu tryggði
Brynjólfur Markússon sigurinn með marki skoruðu úr
erfiðri stöðu úti í horni. Lokastaðan varð 16:15 okkur
í vil. Síðari leikinn í þessari umferð léku Svíar og
Danir. Færðist fljótlega mikil harka í leikinn, og þurfti
Karl Jóhannsson, sem dæmdi þennan leik, að vísa fjór-
um Dönum og einum Svia af leikvelli í leiknum. Fyrri
366