Íþróttablaðið - 01.12.1967, Page 9
Frá formann&fundi ISl 12. nóv-
ember sl.
veitingar ÍSl til íþróttamiðstöðva, en skýrði
síðan frá, hversu liði íþróttamiðstöð á Laug-
arvatni.
Er málið einnig rakið í skýrslu fram-
kvæmdastjórnarinnar, og þar er birtur samn-
ingur, sem menntamálaráðuneytið og fram-
kvæmdastjórn ISl hafa gert með sér.
Rakti Gísli nokkuð, hvernig bygging heima-
vistar gengi, og loks færði hann þær gleði-
fréttir, að vonir stæðu til, að starfsemi ISl og
sérsambanda þess gæti hafizt á Laugar-
vatni næsta sumar. Nefnd hefur verið skip-
uð til að sjá um rekstur íþróttamiðstöðvar á
Laugarvatni, og er Gunnlaugur Briem for-
maður hennar. Forseti kvað sérsamböndin og
þurfa að skipa hvert sinn mann til starfa með
þessari nefnd, því að það væri þeim nauðsyn
að undirbúa vel og með góðum fyrirvara, hvern-
ig þau vilja nýta íþróttamiðstöðina.
Örn Eiðsson lýsti ánægju FRl yfir þessu
máli og taldi þarna merkasta mál, sem fram-
kvæmdastjórnin hefði unnið að.
Stefán Kristjánsson kvað það hafa verið
rætt á fundum sambandsráðs, sérsambanda og
héraðssambanda, að bættum fjárhag ISl ætti
að beina til sérsambandanna, en sagðist per-
sónulega hafa verið hlynntur íþróttamiðstöðv-
um. Þá vakti hann á því athygli, hvort ekki
væri rétt, að sama gilti um vetraríþróttamið-
stöðina, þannig að nefnd væri látin sjá um eða
fylgjast með rekstri hennar.
Gunnlaugur Briem ræddi málið, kvaðst ekki
vera hræddur um fjárhagsgrundvöllinn, en
taldi, að leggja bæri áherzlu á, að þarna færi
allt fram íþróttum og íþróttamönnum til sóma.
Keppnisreglur fyrir lyftingar.
Stefán Kristjánsson skýrði frá, að hann
hefði tekið við langt komnu verki Benedikts
heitins Jakobssonar að þýða reglur um keppni
Frá formannafundi I.S.I. 12. nóv-
ember sl.
325