Íþróttablaðið


Íþróttablaðið - 01.12.1967, Page 12

Íþróttablaðið - 01.12.1967, Page 12
efnis, að menningarlega yrði að vera að öllu starfi og samstarfi á Laugarvatni staðið, falla í góðan jarðveg hjá stjórn ÍKÍ, og kvaðst hann ganga fagnandi til samstarfsins í framtíðinni. Vilhjálmur Einarsson ræddi nokkuð galla og kosti Laugarvatns sem íþróttamiðstöðvar. Til galla taldi harm: Of mikla fjarlægð frá Þorsteinn Einarsson, íþróttafulltrúi, fagnaði því, að samningur væri nú kominn á, og kvað hann öll undirbúningsstörf þess hafa verið ánægjuleg og einkennzt af einlægni og góðmn samstarfsvilja. Þá rakti Þorsteinn lauslega sögu IKI og þörf- ina á eflingu skólans, þar sem skortur á íþrótta- Frá formannafundi ISl 12. nóv.: Úlfar Þórðarson, formaður IBR, er fremst á myndinni til vinstri, en aðrir, sem sjást, eru frá vinstri: Þórir Þorg-eirsson, sambandsráðs- fulltr. Suðurl., Þórarinn Þórarins- son, sambandsráðsfulltr. Austurl., Kristján Benjamínsson, form. BSl, Sveinn Björnsson, ritari ISl, Her- mann Guðmundsson, framkv.stjóri ISl, Guðjón Einarsson, varaforseti ISl, Gísli Halldórsson, forseti ISl, Gunnlaugur Briem, gjaldk. ISl og Þorvarður Árnason, fundar. ISI. Reykjavík. Mikinn ferðamannastraum. Hótel- rekstur á staðnum. Of nauman þann tíma, sem ISl hefði ráð á aðstöðunni á Laugarvatni árlega. Hvað kostina snerti, tók hann mjög undir mál Árna Guðmundssonar. Starfsemi, sem reka bæri á Laugarvatni, taldi Vilhjálmtu*: 1. Þjálfun landsliða fyrir landskeppni. 2. Sérþjálfun landsliða undir handleiðslu sér- þjálfara, og þyrfti hún að fara fram í júní. 3. Leiðbeinendanámskeið. 4. Afnot íþróttafélaga og héraðssambanda. 5. TJtbreiðslunámskeið ISl fyrir þá æsku, sem einhverra hluta vegna er ekki í íþrótta- félögum. Mötuneyti kvað Vilhjálmur nauðsyn í sam- bandi við íþróttamiðstöðina, og þyrfti að vera hægt að selja íþróttahópum mat á mötuneytis- verði. Kennslutæki og íþróttatæki, t. d. til móts- halds þyrftu að vera öll til á staðnum. Að lokum kvaðst Vilhjálmur vona, að héraðs- og sérsamböndin bæru gæfu til að færa sér þá möguleika í nyt, sem þarna skapast, og enn- fremur á þeim skólastöðum, sem samþykktir eru og verða sem héraðsíþróttamiðstöðvar. kennurum væri mikill, bæði fyrir skóla lands- ins og hina frjálsu íþróttastarfsemi í landinu. Ræddi Þorsteinn um íþróttamiðstöðina og nokkuð þá galla, sem Vilhjálmur ræddi í sínu erindi. Taldi hann þá smávægilega og benti jafnframt á, að hér væri enn aðeins um að ræða upphaf starfs, og væru allir möguleikar á, hver þróun stofnunarinnar yrði í framtíðinni. Óskar Ágústsson kvaðst þakklátur fyrir það, að samþykkt hefði verið að gera Laugar að hér- aðsíþróttamiðstöð. Skýrði hann frá reynslu þeirra Þingeyinga í æskulýðsstarfi og ræddi þörfina á leiðbein- endanámskeiðum fyrir þá menn, sem sinna vilja íþróttakennslu unglinga og barna, þótt þeir ekki geti sótt ÍKl. Bauð Óskar, að slíkt námskeið yrði haldið á Laugum næsta vor fyrir einn mann úr hverj- um hreppi í Þingeyjarsýslum, Eyjafirði, Skaga- firði og Húnavatnssýslum. Enn bauð hann til móts, þar sem kæmi einn í hverja grein úr hverri sýslu á aldrinum 10— 15 ára, og yrði sú keppni byggð á líkum grund- velli og HSÞ hefur haldið sín unglingamót. Síðan var máli þessu vísað til nefndar og gefið kaffihlé. Að kaffihléi loknu var fundi fram haldið. 328

x

Íþróttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Íþróttablaðið
https://timarit.is/publication/1455

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.