Íþróttablaðið


Íþróttablaðið - 01.12.1967, Blaðsíða 20

Íþróttablaðið - 01.12.1967, Blaðsíða 20
skyni af heimavistarhúsnæði iKl í nefndu húsi ásamt geymslu og skála í kjallara og mötuneytisaðstöðu. Þá skal ÍSl einnig fá afnot af íþróttamannvirkjum skólans. Ekki er ISl heimilt að leigja húsnæðið til annarra aðila eða annarra nota en þeirra, er hér að framan greinir. 4. gr. Menntamálaráðuneytið áskilur sér rétt til aðstöðu í heimavistarhúsi og íþróttamannvirkjum um tveggja vikna skeið á hverju sumri, svo halda megi þar nám- skeið fyrir íþróttakennara. Æskilegt er, ef ekki fer í bága við starfsemi iKl og samningar takast við starfsfóik, að ISl geti fengið að- stöðu til námskeiða í húsnæði og á íþróttavöllum, þótt skóli sé starfandi, en nemendur í leyfi. 5. gr. Iþróttakennaraskóli Islands skal greiða leigu fyrir afnot húsnæðis ISl. Á sama hátt skal Iþróttasam- band Islands greiða leigu fyrir afnot húsnæðis iKl. Þá skal ISl greiða leigu fyrir afnot af íþróttamann- virkjum og taka þátt í viðhaldskostnaði þeirra. Leigan skal metin árlega af skólastjóra iKl og trúnaðarmanni ISl. Verði ágreiningur á milli þeirra, sker menntamálaráðuneytið úr. 6. gr. íþróttakennaraskóli Islands og Iþróttasamband Is- lands greiða rekstrarkostnað hússins hvort í sínu lagi eftir starfstímanum. iKl og ISl greiða viðhaldskostnað húss og muna í hlutfalli við eignina, starfstímann og notkun hússins. Hvor aðili um sig skal afhenda hús og muni í góðu ástandi til hins, er starfstímabili lýkur. Skólastjóri iKl og trúnaðarmaður ISl skulu meta það hverju sinni, hvort viðgerða sé þörf á eigninni. Verði ekki samkomulag þar um, sker menntamála- ráðuneytið úr. 7. gr. Iþróttasamband Islands skal skipa trúnaðarmann, er sér um starfsemi ISl á Laugarvatni. Fyrir lok hvers árs skulu ISl og ÍKl hafa lagt fram áætlun um sumarstarf sitt að Laugarvatni. 8. gr. Reglur skulu samdar samkvæmt samningi þessum, þar sem kveðið verður nánar á um ýmis framkvæmdar- atriði. Reglurnar skulu hljóta samþykki menntamálaráðu- neytisins og framkvæmdastjórnar ISl. 9. gr. Samningsaðilar hafa gagnkvæman rétt til uppsagn- ar þessum samningi. Óski menntamálaráðuneytið að segja upp samningi þessum, skal uppsögnin taka gildi 1. janúar næsta ár á eftir uppsögn, og er þá ISl .skylt að selja ríkissjóði umræddan eignarhluta sinn í heimavistarhúsinu, og skal ríkissjóður fá til eignar hiuta ISl eigi síðar en þremur árum eftir uppsögn, enda hafi ríkissjóður þá greitt ISl andvirði eignar- hluta þessa samkvæmt mati matsmanna. Ef ISl óskar að segja upp samningnum að sínum hluta og selja eignarhluta sinn í heimavistarhúsinu, þá hefur ríkissjóður forkaupsrétt samkvæmt mats- verði. Greiðsla og afhending eignarhluta ISl skal þá fara fram eftir sérstökum samningi, en ríkissjóður skal hafa neytt forkaupsréttar síns eigi síðar en fimmtán mánuðum eftir, að menntamálaráðuneytinu barst skrifleg tilkynning þar um frá ISl. Um mat það, sem gert er ráð fyrir í grein þessari, skulu þær reglur gilda, að hvor samningsaðili um sig tilnefnir einn matsmann. Ef þeir ná ekki samkomu- lagi um matsupphæðina, þá skal sýslumaðurinn í Ár- nessýslu fenginn til að dómkveðja oddamann, sem sker úr ágreiningnum. Við framkvæmd á þessari grein samningsins skal ráðuneytið stuðla að því, að ISl verði gefinn kostur á landi til byggingar á öðrum ákjósanlegum stað. 10. gr. Nú ris ágreiningur um túlkun eða framkvæmd þessa samnings, og skal sá ágreiningur lagður fyrir sérstakan gerðardóm, sem skal skipa á sama hátt og gert er ráð fyrir um skipun matsmanna í 9. gr. Úr- skurður gerðardómsins er bindandi fyrir báða aðila. 11. gr. Samningur þessi er gerður í tveim samhljóða ein- tökum, og heldur hvor aðili sínu. Reykjavík, 26. maí 1967. Menntamálaráðuneytið Gylfi Þ. Gislason (sign.) Framkvæmdastjórn Iþróttasambands Islands Gisli Halldórsson (sign.) Vitundarvottar: Birgir Thorlacius (sign.) Þorsteinn Einarsson (sign.) Byggingu heimavistar íþróttakennaraskólans miðar nú vel áfram, og hinn 14. október fór framkvæmdastjórnin til Laugarvatns ásamt formanni skólanefndar, Þorsteini Einarssyni íþróttafulltrúa. Mannvirki voru skoðuð og þegnar góðar veit- ingar á heimili Árna Guðmundssonar skóla- stjóra. Iþróttasambandið hefur nú greitt eina 336
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Íþróttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Íþróttablaðið
https://timarit.is/publication/1455

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.