Íþróttablaðið


Íþróttablaðið - 01.12.1967, Blaðsíða 25

Íþróttablaðið - 01.12.1967, Blaðsíða 25
Bikarkeppni KKÍ 1967 Bikarkeppni KKÍ 1967, hin 3. í röðinni, fór fram í október s.l. Alls tóku þátt í keppninni 8 lið, og er það minnsta þátttaka í keppninni til þessa, 1966 voru 9 lið, og 1965 alls 15 lið. Heldur fór mótið seinna af stað en áður, og háði það nokkuð þátttökuliðunum, þar sem allra veðra er von svo síðla hausts. I fyrsta sinn fór nú úrslitakeppnin fram á Akureyri, en ekki er við Akureyringa að sak- ast, bótt hún hafi ekki orðið eins góð og skyldi. Þar kom til þátttökuleysi og veðrátta. I 1. umferð fóru leikar: Reykjavík: KR—Ármann 40:36 (28:16) Vesturland: KFl—Snæfell 52:51 (26:22) (leikurinn fór fram á Isafirði) Norðurland: Tindastóll—KA 31:25 (leikurinn fór fram á Akureyri) Suðurland: UMF. Laugdæla—Selfoss (Selfoss gaf leikinn) 2. umferð og úrslit áttu að fara fram á Akur- eyri helgina 15. og 16. okt., en þegar til kom, mættu aðeins KR og Tindastóll, þar sem UMF Laugdæla hætti keppni og ófært var frá ísa- firði. Fór því aðeins einn leikur fram á Akur- eyri, milli KR og Tindastóls, og sigraði KR með 68 stigum gegn 31, en í hálfleik var stað- an 28:12. Það varð svo að samkomulagi milli KR og KFl, að úrslitaleikurinn færi fram í Reykjavík sunnudaginn 22. okt. KR sigraði í þeim leik og vann þar með keppnina. Lauk leiknum með 75:35 sigri KR í hag, en í hálfleik stóðu leik- ar 39:14. Eins og að framan greinir varð úrslitahelg- in á Akureyri ekki eins góð og til stóð í fyrstu, en hins vegar höfðu Akureyringar gert sitt til að láta keppnina fara sem bezt fram, m.a. látið prenta góðar götuauglýsingar, og þegar sýnt þótti, að aðeins 2 keppnislið myndu mæta, fengu þeir Menntaskólanema til að leika gegn IBA á laugardaginn, en síðari daginn héldu þeir hraðmót með þátttöku Þórs, K. A. og 2ja liða frá KR. Er í fyllsta máta athugandi að láta einnig næstu bikarkeppnisúrslit fara fram á Akureyri, þar sem aðstæður allar til körfuknattleiksiðk- ana þar eru hinar ágætustu. KR sigraði nú í keppninni annað árið í röð og skoruðu 183 stig gegn 102 í þrem leikjum. Engu er hægt að spá um framtíð bikarkeppn- innar. Það verður í fyrsta lagi að finna ein- hver ráð til þess að koma sem flestum utan- bæjarliðum í keppnina með einhverju móti, og í öðru lagi er álitamál, hvort ekki eigi að leyfa 1. deildar liðunum þátttöku í keppninni; fyrir- komulag og tilgangur bikarkeppninnar þarf ekki að raskast við það. GG. Vetrarólympíuleikirnir í Grenoble fara fram dagana 6.—18. febrúar 1968. Isknattleiks- keppnin hefst strax fyrsta daginn, en daginn eftir hefst keppni í alpagreinum og norrænum skíðagreinum karla, listhlaup á skautum og sleðakeppnin. Keppni kvenna á skíðum og skautum hefst 9. febrúar, en skautakeppni karla ekki fyrr en 14. febrúar. Prakkar hafa einskis látið ófreistað, til þess að leik- irnir mættu verða sem allra bezt undirbúnir, og hefur kostnaðurinn við undirbúninginn numið sem næst 10 000 milljónum ísl. króna. Byggt hefur verið áhorfendasvæði fyrir 60 000 manns í kringum svæðið, þar sem setning leikjanna og lokaathöfn fara fram, íþróttamannvirki margs konar, svo sem stökkbrautir og skautahallir, að ógleymdu ólympiuþorpi, sem rúmar 10 000 íbúa og blaðamanna- þorpi, sem rúmar 2500 blaða- og sjónvarpsmenn. En það eru ekki aðeins íþróttamannvirki, sem byggð hafa verið fyrir þessa peninga. Grenoble hefur fengið nýtt andlit, ef svo mætti segja. Ný járnbrautarstöð hefur verið tekin í notkun, nýtt pósthús og ný lög- reglustöð, og glæsilegt ráðhús í nýtízkulegum stíl. Þá hafa verið lagðar nýjar akbrautir milli allra þeirra staða, sem keppni fer fram á, og síðast, en ekki sízt, ber að nefna flugvöll, sem byggður hefur verið fyrir mynni dalsins um 40 km frá Grenoble. 341
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Íþróttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Íþróttablaðið
https://timarit.is/publication/1455

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.