Íþróttablaðið


Íþróttablaðið - 01.12.1967, Blaðsíða 45

Íþróttablaðið - 01.12.1967, Blaðsíða 45
Tveir fram á sviðið. Allir glíma á sviðinu Hlaupið í hring. Sungið eitt erindi af „Dýravísum" og stiginn við- komandi dans. Hringurinn leystur upp og gengið í einni röð af sviðinu. Kynning glimu og íslenzks þjóðlífs: Pétur Karlsson. Flokkurinn gengur aftur á sviðið og þá í glímubún- ingum. Allir fram á sviðið, tveir og tveir andspænis hvor öðrum. Heilsazt. Tekið vinstra handartak á belti. Tekið hægra handartak á belti. Stigið í glímustöðu. Tekin stígandi. Lagzt á hné og framhandlegg (ekki fall). Lagzt niður (fall). f>essi atriði skýrði Pétur Karlsson. Staðið upp. Sýnd 9 brögð ásamt vörnum, allir í einu eða tveir og tveir. Kvaðzt. Sex stakar glímur. Ekki hætt, þó að fall verði. Full alvara, en samvinna. Aftur allir fram, tveir og tveir andspænis hvor öðr- um. Sýnd 8 brögð og varnir. Kvaðzt. Sex stuttar, snarpar glímur. Hætt á falli. Bændaglíma. Tvær skipshafnir og því fyrirfram búið að skipa mönnum í flokka. Bændur: Sigtryggur Sigurðsson og Ingi Árnason. Sipshöfn Sigtryggs: Þorvaldur, Ágúst, Óskar, Rögn- valdur, Valgeir. Skipshöfn Inga: Guðmundur, Gunnar, Garðar, Sveinn, Magnús. Sigursveitin kynnt. Skipað í röð þvert fyrir. Fánakveðja. Gengið af sviði með söng. Að lokinni sýningu hafði flokkurinn vart frið til baðs og fataskipta fyrir heimsóknum Vestur-lslendinga, sem þarna voru komnir úr nágrannahéruðum og sumir frá Winnipeg, eins og t.d. séra Philip Pétursson og Grettir Jóhannsson ræðismaður. Er flokkurinn kom upp úr búningsklefum, beið fólk við sviðið, sem vildi hafa viðtöl við hann. Góð æfing og haldgóð þjálfun, samhugur og agi ásamt leiðbeiningum og stjórn tveggja samhentra kenn- ara leiddi af sér góða sýningu á glímu. Flokkurinn naut skemmtilegrar samveru með fjölda manns af öllum þjóðernum Norðurlanda í 3 klst. í skála Norðurlanda. Um kvöldið dvaldist flokkurinn saman við góðan kvöldverð, þar sem Pétur Karlsson var gestur flokks- ins. Var Pétri við þetta tækifæri færð gjöf frá flokkn- um og GLl. Við hádegisverð, sem Gunnar Friðriksson bauð kennurum flokksins til á föstudaginn 9. júní, þakkaði hann hjartanlega sýningu og störf flokksins og róm- aði þá landkynningu, sem hann hefði veitt í sjónvarpi. Ambassadorar Islands, Pétur Thorsteinsson og Hannes Kjartansson, aðstoðuðu Þorstein Einarsson við að fá löglegt ferðamannsvísa fyrir þann piltanna, sem hafði orðið fyrir því að vera með ónógt vísa að heim- an. Þegar frjáls stund gafst, skoðaði flokkurinn heims- sýninguna. Var alltaf ákveðið, hvar og hvenær skyldi hittast, og voru þær ákvarðanir dyggilega haldnar. Aldrei kom til meiðsla á æfingum, en á aðalsýning- unni snerist Óskar Baldursson um ökla. Laugardaginn 10. júní kl. 21.00 var komið til Toronto. Voru gestgjafar flokksins mættir á járnbraut- arstöðinni. Forystu um móttökur höfðu: ólafur Gisla- son, Erla McColey og Vilbergur Kristjánsson. Bjuggu tveir saman á heimili. Sunnudagsmorgunninn var notaður til þess að skoða Toronto. Upp úr hádegi var haldið út fyrir Toronto til bóndabæjar Gordons Rögnvaldssonar, R. R. 4 Acton. (Mairy Farm). Söfnuðust þangað upp úr kl. 14,00 200— 300 manns. Sumt var komið alla leið sunnan úr New York-ríki. I flestum tilfellum var hér um fjölskyldur að ræða, þar sem bæði eða annaðhvort hjónanna var af íslenzkum ættum. Var sýnt á grasflöt framan við bóndabæinn. Var sýn- ingunni hagað sem í Montreal. Að sýningu lokinni var setzt að kræsingum undir berum himni með þessu ágæta fólki. Safnazt var sam- an og sungin Islenzk þjóðlög. Var dvalizt á bóndabæn- um til kvölds í góðum fögnuði. Um kvöldið dreifðist flokkurinn til hinna ýmsu heimila, en nokkrir komu saman með Vestur-Islendingum á heimili Vilbergs Kristjánssonar, þar sem Þorsteinn Einarsson sýndi kvikmynd frá Islandi og litskuggamyndir. Mánudaginn 12. júní var svo haldið til New York og þar dvalizt til þriðjudagskvölds 13. júní, að flogið var heim og komið til Reykjavíkur 14. júní um hádegi. Föstudaginn 16. júní var höfð glímuæfing til þess að undirbúa glímusýningu á Laugardalsvelli 17. júní. 1 rigningu og austanroki var glímusýning Kanada- fara á Laugardalsvelli. Var gllmt á grasi. Fimmtudaginn 27. júlí sýndu Kanadafararnir glímu á kvöldvöku í Iþrótta- og sýningarhöllinni í Laugar- dal, sem efnt var til fyrir þátttakendur í Norrænu æskulýðsmóti á vegum Norræna félagsins. Hér með lýkur þessari skýrslu um Kanadaför glímu- flokks á vegum GLl. Skal að lokum stjórn GLl þökkuð störf hennar að þessari för svo og þeim, er styrktu ferðina, svo að kostnaður varð þátttakendum eigi eins tilfinnanlegur og ella hefði verið. Þeir, sem styrki veittu, voru: Iþróttasamband Islands, Glímusamband Islands, Iþróttabandalag Reykjavíkur, Iþróttabandalag Akur- eyrar, Gllmufélagið Ármann, Umf. Víkverji, Knatt- spyrnufélag Reykjavíkur og heimssýningarnefnd Is- lands. 361
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Íþróttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Íþróttablaðið
https://timarit.is/publication/1455

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.