Íþróttablaðið


Íþróttablaðið - 01.09.1978, Síða 6

Íþróttablaðið - 01.09.1978, Síða 6
Valur og ÍA mel vcl þjálfub og ögub liÖ sem voru í sérflokki í íslandsmótinu Viðburðaríku og annasömu keppnistímabili knattspyrnu- manna er nú lokið. Skórnir verða lagðir á hilluna um sinn, og knattspyrnumennirnir taka sér frí sem sennilega er orðið langþráð. Ef að líkum lætur verður það þó ekki langt, þar sem flest félag- anna, a.m.k. þau sem eiga lið 11. deild fara að hugsa sér til hreyf- ings þegar kemur fram yfir ára- mótin. Samkeppnin er nú orðin svo hörð og ströng að aldrei má slaka hið minnsta á, ef ekki á illa að fara. Nýliðið keppnistímabil var staðfest- ing á því að íslenzk knattspyrna er í stöðugri sókn, ef miðað er við það sem gerist erlendis. Að vísu kvarta þeir sem fylgzt hafa með knattspyrnunni hér í áratugi yfir því að íþróttin sé ekki eins skemmtileg nú og var áður fyrr og víst er að íslendingar hafa oft áður átt mjög góð lið og skemmtilega knattspyrnu- menn. En oft vill nú verða þannig að „fjarlægðin gerir fjöllin blá og mennina mikla,“ — árangur í leikjum við erlend lið hefur í það minnsta sjaldan verið betri en í sumar, og sá tími er tvímæla- laust liðinn að íslendingar bera ugg í brjósti þegar gengið er til slíkra leikja og varpa öndinni léttar ef landinn sleppur við útreið í leikjunum. Enn skortir þó auðvitað mikið að ís- lendingar standi jafnfætis öðrum þjóð- um í þessari íþróttagrein, sem og öðr- um. Knattspyrna er ein vinsælasta íþróttagreinin víða um lönd og fjöl- margar þjóðir leggja gífurlega áherzlu á að eiga góð landslið og að þau sýni ár- angur. Heimsmeistarakeppnin í Argentínu í sumar var staðfesting á slíku. Leikmenn þeir er þar áttust við fengu ekki milljónir, heldur fremur tugi milljóna í sinn hlut fyrir þátttökuna þar. Langt er í land með atvinnu- Steinar J. Lúövíksson: Eftirmæli Islands- mótsins . mennsku í knattspyrnu hér, og kemur þar margt til, og af þeim sökum einum ríkir ekki jafnrétti þegar okkar menn keppa við erlend lið. Aðstæður til þess að iðka þessa íþróttagrein eru að auki verri hérlendis en víðast hvar annars staðar — sá tími mun styttri árlega sem unnt er að æfa og keppa við sæmilegar aðstæður. Á undanförnum árum hefur það því fyrst og fremst verið metnaður og dugnaður leikmanna og aðstandenda íþróttafélaganna sem fleygt hefur knatt- spyrnunni hér fram á við. Knatt- spyrnumenn margra liða æfa lítið minna en gerist hjá sumum atvinnulið- um, og oft vekur það furðu hversu mikið leikmennirnir leggja á sig til þess að ná árangri. Eftir fullan vinnudag er haldið á völlinn til æfinga, og matar- tíma og það sem kallað er eðlilegur frí- tími er fórnað til þess að ná árangri. Tony Knapp, fyrrverandi landsliðs- þjálfari sagði einu sinni, að íslenzku knattspyrnumennirnir næðu jafngóð- um árangri og raun ber vitni, vegna þess að þeir hefðu svo stórt hjarta. Og víst er að áhugamaðurinn leggur tíðast ekki minna á sig þegar komið er út í leikinn sjálfan en atvinnumaðurinn, sem jafnvel á þó von á miklum bónus- greiðslum, ef vel gengur. Hápunktur nýlokins keppnistímabils var ágætur árangur íslenzku liðanna sem tóku þátt í Evrópubikarkeppninni. Frammistaða íslenzkra liða í þessari keppni, hefur oft orðið íslenzkri knatt- spyrnu lítil auglýsing, en því var á ann- an veg farið að þessu sinni. Vest- mannaeyingar tryggðu sér þátttökurétt í 2. umferð EIEFA-bikarkeppninnar og bæði Valur og Akranes gerðu jafntefli við heimsþekkt lið í heimaleikjum sín- um. Þannig var t.d. fullkomið jafnræði með liði Ákraness og FC Kölnar í leiknum á Laugardalsvellinum, og fyrir ókunnuga hefði erið erfitt að átta sig á því hvort liða ia var skipað tómum áhugamönnu og hvort atvinnumönn- 6

x

Íþróttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Íþróttablaðið
https://timarit.is/publication/1455

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.