Íþróttablaðið - 01.09.1978, Blaðsíða 24
James Hunt. Honum tókstmeð miklu
snarræði og hugrekkl að ná Ronnie
Petterson út úr logandi flakinu, en
það dugði þvi miður ekki til.
Ég elska hraða og peninga, sagði And-
retti, — en ég er fyrst og fremst maður
og það snertir mig djúpt þegar slík
óhöpp sem þetta verða, ekki sízt þegar
vinur minn Petterson á í hlut. Það er
ekki heiður, frægð og peningar sem ég
hugsa um núna, heldur vonin um að
vinur minn nái sér. Við kappaksturs-
menn erum ekki mótherjar, þótt enginn
sé annars bróðir í leik. Við erum stór
fjölskylda og þegar slys henda vonum
við og biðjum sameiginlega.
Um kvöldið, þegar búið var að gera
að beinbrotum Ronnie Pettersons, gáfu
læknar út þá yfirlýsingu að hann myndi
ná sér fljótlega af meiðslunum, en
bættu því síðan brosandi við að Petter-
son yrði tæplega tilbúinn í slaginn aftur
fyrr en eftir ár eða svo. Framan af nóttu
virtist líðan Pettersons bærileg, eftir at-
vikum, en skyndilega tók honum að
hraka. Barbara, kona hans, sat við rúm
hans og hélt í höndin aá honum, þegar
Reykjavík: Síðumúla 33, sími
86915 Akureyri: Símar 96-21715
— 23515 VW-1303 — VW-9 sæta,
VW-sendiferðabíiar. Opel As-
cona, Mazda, Amigo, Lada Top-
as, 7-9 manna Land Rover, Range
Rover, Blazer, Scout.
Petterson fluttur á sjúkrahús í Míl-
anó. Hvað skeði þar verður senni-
lega aldrei vitað, en kappaksturs-
mennirnir fullyrða að unnthefði verið
að bjarga lífi hans með réttum að-
gerðum.
læknarnir gerðu sér grein fyrir því að
mikil alvara var á ferðum. Þeir hófu
meðhöndlun að nýju, en aðstoð þeirra
kom of seint. Ronnie Petterson lézt í
höndum þeirra.
Mikið hefur verið rætt og ritað um
andlát Pettersons, og hvort unnt hafi
verið að bjarga lífi hans með réttum
aðgerðum. Þá hafa, í kjölfar þessa slyss,
komið upp háværar raddir um að
banna beri kappakstur, og er talið mjög
sennilegt að nokkur lönd muni á næst-
unni setja löggjöf þar að lútandi.
Kappakstursmennirnir sjálfir, telja þó
fráleitt að banna þessa í þróttagrein, og
benda á að hún sé í rauninni ekki
hættulegri en aðrar íþróttagreinar, svo
fremi að öllum öryggisatriðum sé
framfylgt. En það var ekki gert í
Monza. Brautin þar var sannkölluð
dauðagildra, og sennilega verður hún
aldrei aftur notuð í Grand Prix-kapp-
akstri.
24