Íþróttablaðið - 01.09.1978, Blaðsíða 39
aurana í banka. Skammtaði hann Stanley
þó vasapeninga, en þeir voru ekki það
miklir að þeir nægðu fyrir strætisvagnafar-
gjaldi þá þrjá kílómetra sem voru milli
Henley og Victoria Ground þar sem Stoke
City æfði. — Þú hefur bara gott af því að
ganga, það gerir þig hraustan, sagði
faðirinn.
Á sautján ára afmælisdegi sínum undir-
ritaði Stanley atvinnusamning við Stoke
City, og hann varð strax fastur maður í lið-
inu og skoraði allmörg mörk fyrsta keppn-
istímabilið. Sinn fyrsta landsleik lék hann
þegar hann var 19 ára og var svo heppinn að
skora mark í honum. Framtíð hans í lands-
liðinu var þó óviss, þar sem margir sögðu að
hann væri alltof hægfara og daufur. Stanley
sýndi þó brátt að það er ekki nóg að geta
hlaupið hratt í knattspyrnu, það þarf að
kunna ýmislegt annað, og í landsleik sem
Englendingar léku við Tékka árið 1937
skoraði hann þrjú af fimm mörkum Eng-
lendinga í leiknum.
Sir Stanley Matthews lék með Stoke City
í 16 ár. Tvívegis bað hann um að vera seldur
frá félaginu, en í fyrra skiptið neituðu for-
ráðamenn þess að gefa hann lausan. Sögðu
að fólkið krefðist þess að hann yrði kyrr, og
ef hann væri óánægður með eitthvað þá
skyldu þeir sjálfir fara fremur en hann. Níu
árum síðar fékk hann vilja sínum fram-
gengt. Hann átti þá við meiðsli að stríða og
var settur út úr aðalliði Stoke. Forráðamenn
liðsins töldu að hann væri búinn að vera og
samþykktu að setja hann á sölulista. Sam-
dægurs keypti Blackpool hann fyrir upp-
hæð sem svarar til 1 milljón króna. Þurfti
engan að undra þótt Stanley kysi að fara til
Blackpool, þar sem hann átti hótel í þeirri
borg og kunni þar jafnan mjög vel við sig.
Hjá Blackpool var hann síðan í 14 ár og á
þessum árum vann hann það sem alla enska
knattspyrnumenn dreymir um — sigur í
bikarúrslitaleik á Wembley.
Það gekk þó ekki alltof vel fyrir hann að ná
þessum titli. Árið 1948 komst Blackpool í
úrslit á móti Manchester United og tapaði
og 1951 komst liðið í úrslit og þá var New-
castle mótherjinn.
— Þetta er síðasta tækifærið mitt, sagði
Stanley Matthews fyrir þann leik. En New-
castle sigraði í leiknum 2—0, og mörkin
skoraði Jackie Milburn, náfrændi Charlt-
onbræðranna frægu.
Stanley gaf upp vonina að hann fengi
aftur tækifæri til að taka þátt í bikarúrslita-
leik á Wembley, en það óvænta gerðist að
árið 1953 komst Blackpool enn á ný í úr-
slitin, og var sá leikur kallaður „Úrslita-
leikur Stanley Matthews", æ síðan.
Hvort að þetta var hans bezti leikur fyrr
og síðar er erfitt um að segja. Hann lék svo
marga stórleiki, eins og t.d. þegar hann
skoraði þrennuna í landsleiknum við
Tékkóslóvakíu, þegar hann skoraði þrennu
í landsleik við Þjóðverja sem árið áður
Bezti knattspymu-
mabur allra tíma?
Stanley Matthews með verðlaunapeninginn fræga. Sjaldan hefur knatt-
spyrnumaður sýnt annan eins stjörnuleik, og að lokum auðnaðist þessum
fræga knattspyrnugarpi að vinna til eftirsóknarverðra verðlauna.
39