Íþróttablaðið - 01.09.1978, Blaðsíða 33
ins — æskilegra hefði verið að taka
þetta í lotum, svipað því sem önnur lið
gerðu og náðu árangri með, t.d. Dan-
mörk og Vestur-Þýzkaland, en þar voru
landsmótin látin ganga nokkuð eðlilega
fyrir sig. Þessar þjóðir byggðu reyndar
upp á miklu lengri tíma en við, grunn-
þjálfun og unglingaþjálfun er þar í
miklu betra horfi en er hérna. Við
héldum að allt myndi takast á tveimur
árum. HSÍ lagði allt í að fá gott A—
landslið, og ég er þeirrar skoðunar að
markið hafi ekki verið sett nógu raun-
hæft. Við vorum náttúrulega óheppnir
líka og er viss um að ef Janus hefði
verið hér í fyrravetur, hefðum við sigr-
að Spánverjana. Ég er hins vegar þeirr-
ar skoðunar að ólíklegt sé að við hefð-
um sigrað Danina. Þeir voru með gott
landslið í fyrra, sennilega sterkasta lið
sem þeir hafa átt. í því liði voru leik-
menn sem hófu landsliðsferil sinn hjá
unglingalandsliðinu og höfðu leikið
lengi saman er að heimsmeistara-
keppninni kom.
Fæ tæpast frið í fjögur ár
— Nú vekur það athygli Jóhann Ingi,
að þú velur yngri menn í liðið, og ætlar
sýnilega að byggja upp til langs tíma.
Eru fjögur ár nógu langur tími?
,,Flestir þeirra leikmanna sem iéku í
heimsmeistarakeppninni í Dan-
mörku eru nú erlendis, og ég efast
um að HSÍ telji sig hafa bolmagn til
að kalla þá heim, jafnvel þótt ég vildi
velja þá."
— Ef ég á að vera hreinskilinn, þá
býzt ég ekki við að fá frið í fjögur ár til
þess að byggja upp lið. Menn eru ekki
nógu samstilltir að ná verulegum ár-
angri. Hér er mikið af hæfileikamönn-
um í handknattleiknum og kringum
íþróttina, en það er hver í sínu horni og
menn geta ekki unnið saman. Ef það
kæmi mjög góð stjórn í HSÍ — menn
sem hafa „diplómatíska“ hæfileika þá
er möguleiki fyrir hendi.
— Ertu með þessu að segja að þú
gerir ekki ráð fyrir að vera þjálfari út
samningstímabil þitt?
— Ég er ekki búinn að sjá það. Að
vísu hef ég ekki fundið neina andúð
ennþá, og menn hafa reynt að standa
vel á bak við mig. Ég hef alltaf sagt það
að þjálfarinn á íslandi fylgir landsliðs-
genginu, og það er óvíst hvert það
verður. Það mun hins vegar ekki standa
á mér að halda áfram við verkefnið, fái
ég frið til þess.
YONEX -
badmintonspaðar
Eru í sérflokki, bæði í útliti og
gæðum. Fullkomin viðgerðar-
þjónusta. Fást í öllum helztu
sportvöruverzlunum
Einkaumboö:
Steinar Petersen
Goðheimar 3, Rvík. Sími 8-55-84
33