Íþróttablaðið - 01.09.1978, Blaðsíða 12
Haukar fylgdu KR-ingum óvænt
upp í 1. deild. Óvænt, vegna þess að
þegar síðasta umferð mótsins hófst
höfðu bæði ísfirðingar og Þórsarar á
Akureyri einnig góða möguleika á að
berjast um það sæti. Haukarnir voru vel
að þessum áfanga komnir, ekki sízt
vegna þess að í fyrra voru þeir alveg á
þröskuldinum. Nú er ekkert framund-
an hjá Haukunum nema barátta og
aftur barátta, ef þeir ætla að tryggja sig í
sessi í 1. deildinni, og þarf varla að efa
að svo verður, þar sem félagið er í
miklum uppgangi um þessar mundir á
fleiri vígstöðvum en í knattspyrnunni.
Það voru svo Völsungar og Ármenn-
ingar sem féllu í 3. deild og er líklegt að
Ármenningar minnist þessa árs sem
mikils hrakfallaárs. Lið félagsins féll í 2.
deild bæði í handknattleik karla og
kvenna., það komst ekki í úrvalsdeild-
ina í körfuknattleik og loks féll knatt-
spyrnulið þess í 3. deild.
Ekki verður sagt svo skilið við 2.
deildar keppnina, að ekki sé minnzt á
frammistöðu Austfjarðaliðsins Austra,
er vann sér sæti í deildinni í fyrra.
Komu fá lið eins á óvart og Austri, en
flestir höfðu búizt við að það færi rak-
leiðis til þess staðar sem það kom frá.
Þvert á móti var Austri að berjast á
toppnum í 2. deild lengst af sumri og
KR-ingar endurheimtu sæti sitt í 1.
deild með miklum glæsibrag —
unnu flesta leiki sína með yfirburð-
um. Urðu andstæðingarnir oftast að
lúta lágt fyrir þeim.
velgdi beztu liðunum í deildinni ræki-
lega undir uggum.
Úr 3. deild koma svo lið Selfoss og
Magna frá Grenivík. Selfyssingar eru
þar hagvanir, en Magni hefur hins
vegar ekki náð svo langt á knatt-
spyrnusviðinu til þessa.
Kvennaknattspyrnan
Minna fór fyrir kvennaknattspyrn-
unni í sumar, en undanfarin ár, og
virðist hún smátt og smátt vera að
leggja upp laupana. Er slæmt til þess að
vita, þar sem knattspyrna er vel við
kvennahæfi. Þyrfti KSÍ sennilega að
geta aukið átak í útbreiðslu kvenna-
knattspyrnunnar og freista þess að taka
höndum saman við forráðamenn félaga
og umráðamenn fjölmiðla til þess að
lyfta kvennaknattspyrnunni á nýjan
leik. Væri slæmt til þess að vita ef
kvennaknattspyrnan lognaðist útaf, þar
sem hún stefndi um tíma í það að verða
hin blómlegasta. Sigurvegarar í
kvennakeppninni, og þar með íslands-
meistari, var lið Vals, en það var mál
þeirra er fylgdust með keppninni að
mikið jafnræði hefði verið með þremur
þátttökuliðanna: Val, Breiðabliki og
FH.
Skeiðklukkur með milli- og biðtíma
kr. 37.530.-
HELGI SIGURÐSSON
URSMIÐUR
SKÓLAVÖRÐUSTÍG 3
S11133
Félagsheimili Kópavogs
í hjarta Kópavogsbæjar.
Sími 41391 Kvöldsími 20442
ÁRSHÁTÍÐ
Tökum að okkur árshátíðir og mannfagnaði
hverskonar í veislusal okkar á 2. hæð hússins.
Leikið upplýsinga.
Starfrækjum einnig mötuneyti alla virka daga
frá kl. 9.00 — 16.00 fyrir hópa og einstaklinga.
Góður matur á góðu verði.