Íþróttablaðið - 01.09.1978, Blaðsíða 37
þeirra gengu ekki, að þeir köstuðu
knettinum oftsinnis langt upp í áhorf-
endasvæðið.
Tek Stenzel mér
til fyrirmyndar
— Tekur þú Stenzel þér til fyrir-
myndar í þjálfuninni?
— Já, það liggur fyrir að ég ber mikla
virðingu fyrir honum sem þjálfara, og
tel að við höfum mikið til ráðlegginga
hans að sækja. Ég hef t.d. þýtt bókina
sem ég minntist á áðan, en þar er hver
einasta æfing júgóslavneska landsliðs-
ins síðasta árið fyrir Olympíuleikana
tekin fyrir og skýrð. Ég byggi mikið á
hans hugmyndakerfi og er ekki einn um
það, þar sem það er grundvöllur að allri
handknattleiksþjálfun í Júgóslavíu. Þar
á ég sérstaklega við líkamlegan undir-
búning, en ég hef ekki haft nein tæki-
færi til þess að sinna þeim þætti þjálf-
unarinnar ennþá. Þá er margt í sam-
bandi við tækni og hraða sem hann
kemur með og má nefna að í upphitun
hefur hann notað mikið körfuknattleik.
Tilgangurinn er að þjálfa menn í
knatttækni og eins að leika stíft „maður
á mann“ vörn, Stenzel var ekki fyrstur
til þess að sækja til körfuknattleiksins.
Þegar veldi Rúmena var sem mest, þá
stálu þeir hugmyndum sínum beint úr
körfuknattleiknum, þ.e.a.s. „blokker-
ingunum“. Þótt ég taki Júgóslava mest
til fyrirmyndar mun ég reyna að vera
opinn fyrir öllu og hef núna fengið
pólska handknattleikskennslubók og
rúmenska og er að reyna að glugga í
þetta.
9.—12. raunhæft markmið
— Að lokum Jóhann Ingi: Fáir þú
frið með íslenzka landsliðið í fjögur ár
og náir því fram sem þú ætlar þér, hvar
verðum við þá staddir árið 1982?
— Það liggur náttúrlega fyrir að ég
fæ aldrei það sem ég myndi helzt kjósa
mér í sambandi við aðstöðu og annað
slíkt. Ég breyti ekki þeim sem ráða í
þeim efnum. Ég vil að við setjum okkur
raunhæft markmið og er þeirrar skoð-
unar að það hefði átt að vera keppikefli
íslendinga í síðustu heimsmeistara-
keppni að komast í 9.—12. sætis
keppnina og ná þar sem beztum ár-
angri, t.d. 9. sæti. Það er það markmið
sem ég tel raunhæft fyrir keppnina
1982. Formaður tækninefnda alþjóða
handknattleikssambandsins sagði við
mig, að það væri útilokað fyrir íslend-
inga að gera kröfu til þess að lið þeirra
væri eitt af átta beztu, — við getum ekki
staðizt „austantjaldsþjóðunum“ snún-
ing nema með gjörbreyttu kerfi og það
mun ekki breytast að ráði, á hverju sem
gengur. Kunst sagði að það hefði verið
hálfgerð þjóðarsorg í Rúmeníu, vegna
þess að lið þeirra lenti í 7. sæti í FIM.
Hér hefði það næstum jafngilt heims-
meistaratitli hefðum við náð því sæti.
NÝJUNG!
VATNSNUDDTÆKIÐ FRÁ
GROHE
ER BYLTING
Þaö er eins og aö hafa sérstakan nuddara i baðherberginu heima hjá sér,
slík eru áhrif vatnsnuddtækisins frá Grohe.
Frábær uppfinning sem er oröin geysivinsæl erlendis.
Tilvaliö fyrir þá sem þjást af vöðvabólgu, gigt og þess háttar. Hægt er aö mýkja
og herða bununa að vild, nuddtækið gefur 19-24 lítra meö 8.500 slögum á mínútu.
Já, þaö er ekkert jafn ferskt og gott vatnsnudd.
En munið að þaö er betra aö hafa „orginal“ og það er GROHE.
Grohe er brautryöjandi og leiöandi fyrirtæki, á sviöi blöndunartækja.
BRBYGGINGAVÖRUR HE
SUÐURLANDSBRAUT 4. SÍMI 33331. (H. BEN. HÚSIO)
37