Íþróttablaðið - 01.09.1978, Blaðsíða 50
I hálfleik
Maraþoiviírslit
Ekki gekk þrautalaust að fá úrslit
fram í dönsku bikarkeppninni í
knattspyrnu i ár. Lið Frem og Es-
bjerg unnu sér rétt til þátttöku í úr-
slitaleiknum, og var það ekki fyrr en
eftir þrjá leiki og 14 vítaspyrnur sem
Frem stóð uppi sem sigurvegari. í
fyrsta leiknum varð jafntefli og
reyndu liðin þá með sér öðru sinni.
Hið sama kom upp á teninginn,
jafntefli eftir framlengdan leik. Þeg-
ar liðin mættust í þriðja sinn hafði
Frem lengst af forystu í leiknum, en
Esbjerg tókst að jafna á 88. mínútu.
Framlengingin var markalaus og því
gripið til vítaspyrnukeppni til þess
að knýja fram úrslitin, og þá loks
marði Frem sigur.
Heynckes þjálfarí
Hinn þekkti knattspyrnumaður
Jupp Heynckes hefur gert samning
við félag sitt Borussia Mönchen-
gladbach um þjálfunarstörf fyrir
það. Heynckes sem nú er 32 ára, var
lengi einn bezti knattspyrnumaður
félagsins og lék hann alls 38 lands-
leiki. I fyrra varð hann fyrir slæmum
meiðslum, og þótti þá sýnt að ferill
hans sem knattspyrnumanns var á
enda. En Borussia Mönchenglad-
bach á örugglega eftir að njóta góðs
af hæfileikum hans í framtíðinni,
þar sem sagt er að Heynckes sé
einnig mjög snjall og útsjónarsamur
þjálfari.
Vcr&ur liðum fækkaö
Búizt er við því að fyrir þing
Knattspyrnusambands íslands sem
haldið verður í byrjun desember
verði lögð tillaga um fækkun liða í 1.
deild. Þykir sennilegt að tillaga komi
um að stofna úrvalsdeild með svip-
uðu fyrirkomulagi og er í Skotlandi,
og yrðu þá væntanlega 6 lið í þeirri
deild. Hvort slík tillaga nær fram að
ganga er hins vegar mjög óvíst.
Rirby og Yuri áfram?
Þótt nú fari í hönd sá tími sem
minnst er um að vera í knattspyrn-
unni hérlendis, eru menn þegar
farnir að hugsa um þjálfaramál
næsta keppnistímabils. Á nýloknu
keppnistímabili höfðu sex 1. deildar
félaganna erlenda þjálfara og fjögur
voru með innlenda þjálfara, og er
sennilegt að hlutfallið verði svipað á
næsta keppnistímabili. Vitað er, að
Akurnesingar hafa mikinn hug á því
að framlengja samning sinn við
George Kirby, enda hefur hann náð
frábærum árangri með Akranesliðið
og öðlast miklar vinsældir á Skag-
anum. Þá þykir líklegt að reynt verði
að halda í landsliðsþjálfarann, dr.
Yuri Ilitchev, þar sem íslenzka
landsliðið á framundan mikil og
erfið verkefni. Líklegt þykir þó að
Víkingar reyni mikið til þess að fá
dr. Yuri til sín, en hann þjálfaði og
stjórnaði liði þeirra í síðustu leikjum
íslandsmótsins við góðan orðstí.
Meðfylgjandi mynd var tekin með-
an á landsleik Islendinga og Dana
stóð í sumar og er landsliðsþjálfar-
inn greinilega að bera sig saman við
formann landsliðsnefndar, Árna
Þorgrímsson frá Keflavík, sem er í
þungum þönkum.
50