Íþróttablaðið - 01.09.1978, Blaðsíða 5
f Maðinu
íslandsmótið í knattspyrnu
Stærsta [þróttamót sem haldið er árlega hérlendis er
íslandsmótið í knattspyrnu. Því er nú nýlega lokið
með sigri Valsmanna, en Akurnesingar fylgdu þeim
jafnan sem skuggi. Mótið var að venju mjög við-
burðaríkt og skemmtilegt og fór þar margt á annan
veg en ætlað var. íþróttablaðið fjallar um mótið, lið og
leikmenn.
Ragnar skrifar um golf
Ragnar Ólafsson golfmaður skrifar þátt um golf og
kemur þar víða við. Ragnar náði óvenjulega glæsi-
legum árangri í sumar og varð í 5.—6. sæti í Evrópu-
meistaramóti unglinga og var síðan valinn í Evrópulið,
og er hann sennilega fyrsti íslendingurinn sem nær
því marki. I grein sinni segir Ragnar m.a. að íslenzkir
golfmenn séu nú í mikilli sókn, og telur að ekki líði á
löngu unz þeir standa jafnfætis Norðmönnum og
Dönum.
Ronnie Petterson
Grein er um sænska kappakstursmanninn Ronnie
Petterson sem lézt af völdum meiðsla sem hann hlaut
er bifreið hans lenti í árekstri á Monza brautinni á
ítalíu ísumar. Brautþessi hefur jafnan verið talin mjög
hættuleg, og voru vomur á kappakstursmönnunum
að keppa. Þetta hörmulega slys hefur orðið til þess að
víða er nú rætt um það að banna eigi kappakstur.
ÍSÍ — íþróttahreyfingin
íþróttaþing fSÍ var haldið fyrir skömmu og segir blaðið
frá helztu samþykktum þingsins. Fjallað er einnig um
iðkendafjölda hinna ýmsu íþróttagreina, en jöfn og
þétt aukning íþróttaiðkenda hefur verið hin síðari ár.
Þá er rætt við Sigurgeir Guðmannsson, fram-
kvæmdastjóra íslenzkra getrauna, en mikill áhugi
hefur verið á getraunastarfinu það sem af er starfs-
árinu.
Jóhann Ingi
Viðtal er við Jóhann Inga Gunnarsson sem nú hefur
tekið að sér landsliðsþjálfunina í handknattleik.
Kemur Jóhann Ingi víða við í viðtalinu, lýsir hug-
myndum sínum og þeim markmiðum sem hann telur
að íslenzkir handknattleiksmenn eigi að stefna að.
Stanley Matthews
Sennilega er brezki knattspyrnumaðurinn Stanley
Matthews einn bezti knattspyrnumaður sem uppi
hefur verið fyrr og síðar. í grein (þróttablaðsins er lýst
keppnisferli þessa frábæra íþróttamanns, sem enn
leikur knattspyrnu, þótt hann sé nú kominn á sjö-
tugsaldurinn.
Celtic
Mikið má vera ef skozka liðið Celtic er ekki það brezkt
knattspyrnulið sem flestir fslendingar fylgjast með,
enda leikur íslenzki landsliðsfyrirliðinn Jóhannes Eð-
valdsson með því. í greinum fþróttablaðsins um þetta
fræga lið er saga þess rakin lauslega, og þeir leik-
menn sem nú leika með því lauslega kynntir.