Íþróttablaðið - 01.09.1978, Blaðsíða 40
Henson
Leikfimisfatnaður
Stutterma — langerma
crepebolir m. röndum
og án.
Allir litir.
í öllum helstu
sportvöruverslunum
landsins.
Henson
sportfatnaður hf.
Sólvallagötu 9. S. 11313—29815.
40
höfðu hlotið heimsmeistaratitilinn í knatt-
spyrnu og þegar hann skoraði fimm mörk í
7—2 sigurleik Englendinga yfir Skotum. Það
var einmitt í þeim leik sem Duncan Ed-
wards Iék sinn fyrsta landsleik. „Strákurinn
hans Busby“ var Edwards kallaður og
margir Englendingar eru sannfærðir enn
þann dag í dag að hann hefði orðið mesti
knattspyrnumaður sem uppi hefur verið,
hefði hann lifað, en Edwards var einn þeirra
er fórst í flugslysinu við Munchen 1958. Þá
var hann 21 árs að aldri og hafði þegar
leikið 18 landsleiki.
En snúum okkur aftur að umræddum
bikarúrslitaleik Blackpool og Bolton
Wanderes. Bolton hafði forystu í leiknum
3—1 þegar 10 mínútur voru til leiksloka í
„úrslitaleiknum hans Stanley“.
En þá tók gamli maðurinn til sinna ráða.
Skyndilega var hann allstaðar á vellinum og
alltaf með knöttinn. Hann dansaði gegnum
vörn Bolton hvað eftir annað, og þótt allt
væri gert sem unnt var að gera til þess að
stöðva hann, bæði löglegt og ólöglegt, var
hann óviðráðanlegur. Það sem eftir var
leiksins voru varnarleikmenn Bolton nánast
sem staðgenglar á þessu stórkostlega sviði.
Tveimur mínútum fyrir leikslok bar barátta
Stanley loks árangur. Hann lék á hvern
Bolton-leikmanninn af öðrum og sendi síð-
an knöttinn hárnákvæmt á höfuð Stan
Mortensens, sem skoraði. Samvinna þess-
ara tveggja leikmanna þótti jafnan framúr-
skarandi. og sendingar Stanleys á Morten-
sen voru svo nákvæmar, að ménn sögðu að
hann væri aðeins að þurrka svitann af enni
félaga síns. Nú var staðan 3—2 fyrir Bolton
og tvær mínútur eftir af leiknum. Dæmd var
aukaspyrna á Bolton sem Mortensen tók og
þrumuskot hans smaug gegnum vörn
Bolton og hafnaði óverjandi í markinu. 3—3
og nú var ekki nema ein mínúta eftir. Hún
nægði líka. Þegar 30 sekúndur voru eftir af
leiknum. náði Stanley knettinu, lék í gegn-
um vörn Bolton og skyldi varnarleik-
mennina eftir liggjandi á vellinum. Að lok-
um sendi hann knöttinn á félaga sinn Bill
Perry, sem þurfti ekki að gera annað en að
renna honum í markið.
Stanley Matthews á blómaskeiði
sínu.
Knattspyrnugarpur sem einnig hefur
verið aðlaður og samtímamaður
Stanleys Matthews á knattspyrnu-
veliinum. Sir Alf Ramsey, sem síðar
varð stjórnandi enska landsliðsins
og leiddi það til sigurs í heimsmeist-
arakeppninni 1966.
Þar með hafði Stanley fengið óskadraum
sinn uppfylltan, og nafn hans var á vörum
allra knattspyrnuunnenda á Bretlandseyj-
um. Sem dæmi um vinsældir hans má nefna
að þegar hann kom aftur til Stoke City árið
1961 jókst áhorfendatala að meðaltali um
10.000 á leik. Og það voru t.d. 33.000
áhorfendur á Victoria Ground dag einn í
maí 1963, þegar Stoke þurfti að ná öðru
stiginu í leik sínum við Luton Town til þess
að komast upp í 1. deild. Luton þurfti hins
vegar á sigri að halda í leiknum, ef félagið
átti að halda sér uppi í 2. deild. Lengi vel var
staðan 1—0 fyrir Luton, en þar kom að
Stanley skoraði, og varð mark þetta síðasta
markið sem hann skoraði í ensku deildar-
keppninni í knattspyrnu.