Íþróttablaðið - 01.09.1978, Blaðsíða 34
ágætu mönnum. Hann var á Spáni
þegar þetta lið var valið og hefur tæpast
komist inn í Valsliðið ennþá. Ólafur
Benediktsson er víst á förum aftur til
Svíþjóðar. Árni Indriðason fór ekki
með til Færeyja. Hann var í þeirri
stöðu, atvinnu sinnar vegna að þurfa að
velja og hafna í sambandi við keppnis-
ferðirnar, og ég lái honum það ekki þótt
hann veldi aðrar ferðir fram yfir þessa.
Aðrir sem voru í Danmerkurliðinu og
eru hér heima voru flestir í liðinu einnig
nú. Hitt er ekkert launungarmál að með
þvi að velja kornunga leikmenn í liðið
nú, er ég að stefna að framtíðarliði. Það
verður meginverkefni þessa fyrsta árs
hjá mér að reyna að byggja upp kjarna
framtiðarliðs. Það liggur líka ljóst fyrir
að í keppnina á Spáni er nauðsynlegt
fyrir okkur að tefla fram okkar allra
sterkasta liði, og því munu ekki allir
þessir ungu menn fara þangað. En þeir
verða að fá sín tækifæri og öðlast
reynslu — þeir fá hana ekki með því að
horfa á eða bíða eftir því að verða
gamlir.
„Útlendingarnir“
verða að vera betri
— Hvað með þá leikmenn sem leika
með erlendum liðum — „útlending-
ana“ okkar?
— Það er erfitt mál. Það sem ég tel að
við þurfum að gera, er það að þegar
stórmót eru í vændum, þá verði HSÍ að
setja reglur um það að leikmenn megi
ekki gera samninga við erlend félagslið
fyrr en eftir slíka keppni. Það verður
bókstaflega að gera eitthvað i þessu
máli. Það skapast meira en lítið vanda-
mál, ef sú staða kemur t.d. upp að við
missum okkar beztu leikmenn þegar
við erum í miðjum undirbúningi með
liðið, — leikmennina sem við ætluðum
að byggja á.
Hvað varðar leikmennina sem leika
erlendis núna, þá mun ég nota ein-
hverja þeirra, en ég hef sagt það að ekki
verða valdir aðrir leikmenn en þeir sem
eru áberandi betri en þeir sem við eig-
um hérna heima. Þeir verða að vera það
þar sem þeir geta ekki tekið nema tak-
markað þátt í undirbúningum. Þeir
þurfa að geta komizt inn í það sem
verið er að gera og það sem búið er að
gera. Ég hef áður lýst þeirri skoðun
minni og ítreka hana hér, að ég tel
marga þeirra leikmanna sem eru er-
lendis aðeins vera jafngóða þeim sem
,,Allt í lagi að eldri leikmenn fari utan og endi þar sinn feril, eins og t.d.
Björgvin Björgvinsson."
Landsliðsþ jálf arinn
verður að velja liðið
— Nú verður þú „einvaldur“ líka.
Telur þú það réttu stefnuna að lands-
liðsþjálfarinn velji einnig liðið?
— Já, ég held að hann eigi að formi
til að vera „einvaldur“, en æskilegt er
að þjálfarinn hafi menn sér til aðstoðar
sem hann getur ráðfært sig við. Helzt
liðsstjóra sem væri honum mjög náinn,
— maður sem hann getur algjörlega
treyst og leitað til í sambandi við val á
liðinu. Einvaldur er svolítið miðalda-
legt orð í mínum huga, en ég held þó að
það sé óhjákvæmilegt að þjálfarinn beri
einnig ábyrgð á vali landsliðsins, því
annars er hætt við því að hann lendi í
deilumálum og hafi ekki í liði sínu þá
leikmenn sem hann telur bezta. Þjálf-
arinn á einnig að standa og falla með
vali sínu.
liggur það ljóst fyrir að þeir leikmenn
sem léku þar eru flestir erlendis, og ég
efast stórlega um það að HSÍ hefði
bolmagn til þess að kalla þá heim til
leikja við Færeyinga, jafnvel þótt ég
hefði áhuga á að fá þá. Geir Hall-
steinsson gaf ekki kost á sér til þessarar
ferðar, þar sem hann er ekki kominn í
æfingu, og er auk þess að fást við þjálf-
un. Jón Karlsson var einn af þessum
Margt sem kemur
inn í valið
— Nú hefur þú þegar valið landslið
og stjórnað því í leikjum. Mörgum
fannst byltingarbragur á því vali þínu.
Var það grundað á því sem þú sagðir
áðan um framtíðarmarkmiðin?
— Það er auðvitað margt sem spilar
þarna inn í. Byltingin hefur í sjálfu sér
ekki orðið svo mikil. Ef við horfum til
landsliðsins sem lék í Danmörku, þá
,,Ber mikla virðingu fyrir Stenzel og
tel að við höfum margt til hans að
sækja í þjálfuninni. “
34