Íþróttablaðið


Íþróttablaðið - 01.09.1978, Side 15

Íþróttablaðið - 01.09.1978, Side 15
móti hinum þýsku risum. í B-milliriðl- inum þar sem KR í 2. flokki kvenna, Haukar í 3. flokki kvenna og ÍR í 2. flokki karla kepptu, komust bæði ÍR og Haukar í úrslit, Hauka stúlkurnar sigr- uðu, en ÍR-ingarnir töpuðu. Lokaröð íslensku liðanna í þessu móti var því á þessa leið: Víkingur, 2. fl. kvenna KR, 3. fl. karla ÍR, 2. fl. kvenna ÍR, 3. fl. kvenna ÍBK, 3. fl. kvenna Valur, 3. fl. kvenna ÍR, 2. fl. karla Haukar, 3. fl. kvenna KR, 2. fl. kvenna 3.—4. sæti 3.—4. sæti 5.—8. sæti 7.—9. sæti 7.—9. sæti 9.—12. sæti 10. sæti 13. sæti 14. sæti Árangur flestra liðanna frá íslandi verður að teljast nokkuð viðunandi og árangur Víkings og ÍR í 2. flokki kvenna og KR í 3. flokki karla er mjög góður. í þessum liðum er fólk sem ör- ugglega á eftir að gera stóra hluti í framtíðinni, ef svo heldur áfram sem horfir. Ef við lítum aðeins á úrslit mótsins í heild, þá líta þau svona út: Stúlkur fæddar sigurvegarar 66—67 HOLTE, Danmörku 64—65 HJÖRTEN, Danmörku 62—63 GIC EB, Danmörku 59—61 PIOTRCOVIA, Pól- landi Drengir Fæddir sigurvegarar 66—67 KORTEDALA, Svíþjóð 64—65 FREDRIKSBERG, Danm. 62—63 SCHWELM, Þýska- landi 60—61 KORTEDALA, Svíþjóð Þegar þessi úrslit liggja fyrir hjá stúlkunum sést strax að Danir eru þar langsterkastir, þeir sigra í 3 flokkum, pólska liðið sem sigraði í sínum aldurs- flokki var einnig mjög sterkt. Hjá drengjunum voru Svíar sterkir, vinna 2 flokka, en einnig var þýska liðið nokk- uð gott, en það var fyrir því liði sem KR-ingarnir töpuðu í fjögurra liða úr- slitum. Meðan mótið var í fullum gangi lék íslenskt úrvalslið í 2. fl. kvenna við pólskt lið sem þarna var þátttakandi, leiknum lauk með sigri þeirra pólsku 15—7. Það var greinilegt að Pólverjar komu á þetta mót staðráðnir í að sigra hvað sem það kostaði, því að þeir voru með hvorki fleiri né færri en 5 að- stoðarmenn með liðinu sem þarna keppti, þaraf einn lækni, einn túlk og þrjá þjálfara samanborið við íslensku liðin því þar var yfirleitt einn maður með hvert lið. Þetta pólska lið bjó með íslendingunum á skóla og urðu íslend- ingarnir sjaldan varir við þá á milli þess sem keppt var og aldrei eftir klukkan 8 á kvöldin, slíkur var aginn. Samfara þessu móti fer alltaf fram keppni milli fararstjóra keppnisliðanna og núna sendu einnig dómarar sitt lið til keppninnar. Þegar íslendingarnir átt- uðu sig á þvi sér til mikillar undrunar að þeir voru ekki skráðir í þessa keppni, voru Svíar krafðir skýringa og svöruðu þeir því til að því miður gætu ekki öll liðin verið með og voru Hollendingar og Svisslendingar nefndir í því sam- bandi. íslendingarnir bentu þá á að handboltinn á íslandi væri nú heldur hærra skrifaður en í áðurnefndum löndum og sættust menn þá loksins á það að íslendingarnir spiluðu við þá sem ynnu þetta mót. Það kom því í hlut íslendinga að spila við Norðmenn sem* sigurvegara í keppninni en þeir voru Framhald á bls. 58 15

x

Íþróttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Íþróttablaðið
https://timarit.is/publication/1455

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.