Íþróttablaðið


Íþróttablaðið - 01.09.1978, Síða 20

Íþróttablaðið - 01.09.1978, Síða 20
 sem var á þeim. Hannes varð því maður mótsins og var mjög ánægjulegt að hann skyldi sigra, þar sem fáir eða engir íslenzkir golfmenn hafa lagt annað eins á sig við æfingar í sumar. Gylfi kom skemmtilega á óvart og er maður sem á eftir að láta að sér kveða í framtíðinni, hann er kornungur og á því nokkuð í land með að ná þeim þroska sem þarf til þess að vera á toppnum í hverju mótinu af öðru. Björgvin Þorsteinsson, sem unnið hefur titilinn undanfarin ár, féll þarna fyrst og fremst á því hvað hann „pútt- aði“ illa. Virðast „púttin“ vera komin á sálina á honum. Það eru svo margir búnir að segja honum að hann „pútti“ illa, og hann er farinn að trúa því. Svo ég víki að mótum sem íslend- ingar tóku þátt í erlendis í sumar, þá var Evrópumeistaramót unglinga auðvitað hápunkturinn fyrir sjálfan mig. Þar tókst mér að leika á 151 höggi, lék á 75 og 76, en par vallarins var 73. Ég má vera ánægður með þennan árangur, þótt eftir á finnist mér að ég hefði getað gert enn betur. Ástæða þess að mér gekk svona vel á mótinu var fyrst og fremst sú, að ég var alveg óhræddur. Völlurinn var mjög þröngur og lék ég þarna 36 holur með Svía sem er mjög góður golfmaður. Hann notaði aðeins þrisvar „driver“, sem mér þótti nokkuð merkilegt. Fannst honum völlurinn of þröngur fyrir sig. Ég notaði hins vegar alltaf „driver“ og fékk því betri upp- hafshögg en hann og var alltaf á braut. Stemmningin var mjög góð hjá ís- lenzka liðinu í þessari keppni, og átti það ekki lítinn þátt í því hvað okkur gekk vel, en þarna tókst okkur að kom- ast í A-riðil í keppninni, en það hefur aldrei tekizt áður, þótt stundum hafi munað litlu. Til þess að komast í A— riðilinn þurftum við að skjóta Þjóð- verjum og írum aftur fyrir okkur og megum við vera stoltir yfir því, ekki sízt vegna þess að írar hafa jafnan átt mjög góða golfmenn og t.d. unnu þetta mót í fyrra. Eftir mót þetta var ég valinn í Evrópulið unglinga sem var afskaplega ánægjulegur viðburður fyrir mig, m.a. af því að ég held að ég hafi þar með orðið fyrsti íslendingurinn sem valinn er í Evrópulið. Islenzka landsliðið tók svo þátt í Norðurlandamótinu og náði þar betri árangri en nokkru sinni áður. Er greinilegt að við stöndum nokkurn

x

Íþróttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Íþróttablaðið
https://timarit.is/publication/1455

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.