Íþróttablaðið


Íþróttablaðið - 01.09.1978, Side 36

Íþróttablaðið - 01.09.1978, Side 36
„f beztu liðunum í síðustu heimsmeistarakeppni voru yfirleitt yngri leikmenn en áður”. ungum leikmönnum, yngri en tíðkast hefur og þarna var afsönnuð að nokkru sú kenning að menn væru beztir svona 27—29 ára. Sovétmenn voru hins vegar með eldri menn í sínu liði — leikmenn sem höfðu gífurlega reynslu, en þeir voru einfaldlega of gamlir og þoldu ekki það álag sem keppninni var sam- fara. Fátt nýtt kom fram á HM — Fannst þér koma margt nýtt fram í heimsmeistarakeppninni? — Það er auðvitað alltaf nokkur þróun, en það kom ekkert fram sem kalla má beinlínis nýtt. Grundvallar- breytingar voru engar og ég held að þær geti heldur ekki orðið neinar meðan reglurnar eru óbreyttar. Kerfi og leik- fléttur sem gefa eitthvað af sér eru komin fram, svo og varnarafbrigði. En í þessari keppni kom fram að nýtingin hefur lagast. Það hefur aldrei verið eins góð sóknarnýting og í þessari keppni, og bendir það auðvitað til þess að „standardinn'4 er alltaf að verða betri og betri. Mörkin voru raunar ekki fleiri, og þýðir þetta það, að sóknirnar standa lengur en áður. Varnir liðanna voru yfirleitt mjög góðar og það er ekkert grín að komast í gegnum 6—0 vörn, þar sem miðjumennirnir eru risar og markverðirnir svo þjálfaðir í að taka öll lágskot. — Þegar maður horfði á Vestur— Þjóðverjana leika í HM fékk maður það á tilfinninguna að um afturhvarf til fortíðarinnar væri að ræða hjá Stenzel, — hann lét leikmenn sína leika meira frjálst en maður átti von á? — Stenzel er í raun og veru mikill kerfismaður en lét þó leikmenn sína leika nokkuð frjálst, það er rétt. En t.d. það sem skeði í úrslitaleiknum við Sovétmenn, er hann setti nýliða inná sem skyndilega skapaði sér svo tækifæri og skoraði þýðingarmikil mörk, var í raun og veru engin tilviljun. Þetta var undirbúið og færin sem þessi maður fékk sköpuðust eftir leik sem Stenzel hefur meira að segja lýst í bók sinni: „Hvernig Júgóslavar urðu Olympíu- meistarar," — þar er þessu nákvæm- lega lýst. Ég er meira að segja ákveðinn í að taka þetta upp hjá íslenzka lands- liðinu og nota þar forskriftina úr bók Stenzels. — Það sem mér fannst hvað athygl- isverðast við Vestur-Þjóðverjana var hversu agaðan handknattleik þeir léku. Uppeldi þessara manna virðist einfald- lega vera þannig að þeir hlíta aga, eru vanir heraganum. Þetta er hins vegar mjög alvarlegt vandamál hjá okkur. ís- lendingar hafa oft náð frábærum leik- köflum í leikjum sínum og staðið í jafnvel beztu þjóðum í heimi, en það hefur verið nokkurn veginn segin saga að í sömu leikjum höfum við átt afleita kafla. Þar kemur til agaleysi og ekkert nema agaleysi. Ég öfunda Þjóðverjana af þessu, og spurningin er hvernig við getum innleitt þetta hjá okkur. Við þekkjum ekki að búa við aga. Það getur enginn ætlast til þess að fullorðnir menn fari allt í einu að leika agaðan handknattleik, ef þeir hafa aldrei á ferli sínum kynnzt honum. — Hvað fannst þér um leikkerfin sem Janus Cerwinski var með? — Þau voru góð, en ég er þó þeirrar skoðunar að hann hafi bundið leikinn hjá okkur í of mikinn klafa. — í heimsmeistarakeppninni virtist t.d. áberandi hvað Sovétmennirnir voru ráðalausir þegar kerfin þeirra gengu ekki upp. Er slíkur kerfishandknatt- leikur sem þeir leika, ekki of mikið af því góða? — Leikur Sovétmanna var dæmi um „maskínuhandbolta", og við vissum um það áður en þessi keppni hófst. Munum t.d. leikinn er við gerðum jafntefli við þá hér heima 11—11, en þá var íslenzka vörnin send í veiði- mennsku langt út á völl, og þeir voru svo ráðalausir vegna þess að kerfin Hj ólbarðasólun, hjólbaröasala og öll hj ólbarða-þj ónusta Nú er rétti tíminn til að senda okkur hjólbaröa til sólningar Eigum fyrirliggjandi flestar stœrðir hjólbarða, sólaða og nýja Mjög gott verð Fljót og góð þjónusta POSTSENDUM U M LAND ALLT GUMMI VINNU STOFAN HF Skiphott 35 105 REYKJAVÍK sími 31055 36

x

Íþróttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Íþróttablaðið
https://timarit.is/publication/1455

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.