Íþróttablaðið


Íþróttablaðið - 01.09.1978, Síða 47

Íþróttablaðið - 01.09.1978, Síða 47
rammann, sem er utan um leikana sjálfa, en síðan kemur alþjóða ráð hverrar greinar, sem stjórnar keppni í þeim og segja fyrir um hvar og hvernig þær fara fram og þessi ráð vildu aðeins hið besta, hið besta, sem hægt væri að fá fyrir peninga. Drapeau hafði áætlað 1970 að kostnaðurinn við leikana yrði 300 mill- jónir dollara. Um 250 milljónum átti að verja til byggingaframkvæmda og 50 milljónum í stjórn og aðra þætti. í Hrunadansinum, sem hafinn var, óx kostnaðurinn í samræmi við hraðann í hrynjandanum. Þegar allt var yfirstaðið og ekki er enn búið að loka bókhaldinu fór kostnaðurinn við byggingar yfir 1 milljarð dollara og kostnaðurinn við stjórnun í 140 milljónir dollara. Afleið- ingin varð sú að í Montreal eru hæstu fasteignaskattar í N-Ameríku og skuld- in verður ekki greidd á þessari öld. Ekki er enn búið að fullganga frá Ólympíu- leikvanginum og Ólympíuþorpið, fall- egt, en illa hannað stendur autt. Montreal er aðeins síðasta dæmið um Ólympíusóttina og það, sem mesta athygli vakti. Það kostaði V-Þjóðverja 650 milljónir dollara að halda leikana í Múnchen 1972 og Japanir eyddu ná- lægt einum milljarði dollara 1968 og frá 1896 hefur aðeins einu sinni orðið hagnaður af leikjahaldinu. í Los Angeles segja menn „Við erum ekki Montreal“. Það er rétt því að rekja má mikið af óhófinu í Montreal til skapgerðar frönsku Kanadamannanna. í áætlun Los Angeles er aðeins gert ráð fyrir 33.5 milljónum dollara til bygg- ingaframkvæmdaogl50milljónumdoll- ara til stjórnunar, eða alls 183.5 millj. dollara en gert ráð fyrir tekjum upp á 184 milljónir dollara, eða 500 þús. dollara hagnaði, sem einkum á að ná gegnum miðasölu og sjónvarpsréttindi. Hugsanlega kunna Los Angelesmenn eitthvað fyrir sér, sem aðrar þjóðir gera ekki því að leikarnir, sem haldnir voru þar 1932 voru þeir einu, sem skilað hafa hagnaði. Hins vegar verður að hafa í huga að sú áætlun, sem þeir lögðu fram var gerð á sl. ári og þar voru einstakir útgjaldaliðir ekki einu sinni sundurlið- aðir. Á tímum okkar verðbólgu eru áætlanir á pappír ekki meira virði en falsaðir peningar. í New Orleans hljóðaði áætlun um byggingu mikillar íþróttahallar upp á 68 milljónir dollara. Lokatölur urðu 163 milljónir dollara. Endurbætur á Yankeeíþróttaleikvang- inum í New York áttu að kosta 23 milljónir dollara, en New Yorkbúar sluppu með skrekkinn eða 45 milljónir dollara. Kunnur hagfræðingur sagði nýlega að eina leiðin til að komast hjá því að verja fjármunum til bygginga væri að byggja ekki. Þetta er það sem ráðmenn í Los Angeles ætla að reyna að gera. Það er aðeins gert ráð fyrir að byggja bráðabirgða róðrartjörn og koma fyrir hringvelli fyrir hjólreiðakeppni í húsi, sem þegar er fyrir. Eina byggingin, sem gert er ráð fyrir er sundhöll. Þannig er hugsanlegt að hægt væri að komast hjá útgjöldum, en gallinn er sá að borgin er ekki í ekilssætinu, aðeins farþegi og ráðamenn eiga von bráðar eftir að komast að því að alþjóðaíþróttir eru ekki fyrir aukvisa. Gott dæmi um þetta er fyrirhuguð sundhöll. Alþjóðasund- sambandið krefst þess að byggð verði yfirbyggð höll, sem taki 15000 manns í sæti. Hvers vegna? Vegna þess að það er greininni til framdráttar segja þeir. Þetta er rétt að vissu leyti, betri aðstaða er þægilegri og gerir einnig meiri kröfur til keppenda. Þetta er þó ekki öll sagan. Stærri og betri mannvirki vekja alþjóða athygli og draga fleiri áhorfendur að sér. Fleiri áhorfendur þýða fleira fólk, sem sambandsstjórnin þarf að hafa af- skipti af. Um er að ræða hina sígildu byggingu keisaradæmisins. Skrifstofu- blókirnar, sem stjórna íþróttasam- blækurnar, sem stjórna íþróttasam- mannvirkjum, sem eru þau beztu, sem fást fyrir peninga, annarra manna pen- inga. í beinum tengslum við þetta er metaofstækið, sem er aukaverkun Ól- ympíuhitasóttarinnar. Betri íþrótta- mannvirki, þýða meiri hraða, meiri hraði þýðir ný met. í dag er það meta- sláttur, sem dregur fólkið að, áhorf- endur eru einnig með hitasótt og það skiptir ekki máli í hvaða grein er von á meti. Metasláttur dregur að sér athygli fjölmiðla, athygli fjölmiðla þýðir fleiri áhorfendur og keisaradæmið vex án afláts. Inn í þetta fléttast valdabaráttan milli IOC og hinna ýmsu sérsambanda einstakra greina. En í dag er það meira en völd, sem eru í húfi. Sjónvarpspeningar eru hið nýja Ólympíugull. Hér áður fyrr voru það skrifstofumenn hins opinbera í Evrópu, sem ákváðu hve mikið skyldi greitt fyrir útsendingarrétt frá heims- meistarakeppnum. Það voru ekki háar fjárhæðir. Á íþróttaleikvöngum í Ev- rópu eru það auglýsingaskiltin á völl- unum, sem gefa tekjur, ekki sjónvarps- auglýsingar. Bandarísku sjónvarps- stöðvarnar breyttu þessu öllu, einkum ABC. Stöðin keypti sjónvarpsréttinn frá Múnchenarleikunum fyrir 12 mill- jónir dollara, Montrealréttinn fyrir 32 milljónir dollara og sýndi fram á að nægur markaður var fyrir sjónvarps- sendingar og einnig að hægt var að fá áhorfendur til að horfa á aðra þætti dagskrárinnar í leiðinni. NBC stöðin hefur nú keypt réttinn til Moskvuleik- anna fyrir 100 milljónir dollara. Ráða- menn í Los Angeles gera ráð fyrir 66 milljón dollara nettótekjum frá sjón- varpi. Ýmsir efast um að stöðvarnar bjóði svo hátt, en Roone Arledge yfir- maður íþrótta og frétta ABC er því ósammála segir að Ólympíuleikarnir séu mesti íþróttaviðburður á jörðu og virði hvers dollars, sem greiddur sé fyrir sjónvarpsréttinn. Þessum viðburði fylgir böggull skammrifi. Þjóðir heims hafa frá end- urreisn leikanna 1896 notað þá til að vekja athygli á einhverju ákveðnu. V-Þjóðverjar vildu fá leikana og fengu þá til að sýna að þeir væru ekki lengur nazistar. Tókíó fékk þá til að Japanir gætu opinberlega haldið innreið sína á ný á heimsmarkaðina. Bretar 1948 til að sýna að þeir hefðu rétt við eftir heims- styrjöldina, Hitler 1936 til að sýna veldi Þýzkalands og svona mætti lengi halda áfram. Með það í huga að leikarnir eru tákn veldis og reisnar hverju sinni, sem miðast að því að draga athygli heimsins að ákveðnum atriðum gegnum fjöl- miðlaveldið er ef til vill ekki að undra þótt hryðjuverkamenn og aðrir öfga- hópar hafi áhuga á að notfæra sér tækifærið. Minnumst harmleiksins í Múnchen. Öryggismál eru því gífurlega kostnaðarsamur þáttur í leikjahaldinu. í Montreal var 100 milljónum dollara eytt í öryggismál og 14000 manns skip- uðu lögreglu- og öryggissveitirnar. Þessir menn komu úr löggæzluliðum hina ýmsu borga og sveitarfélaga og kanadíska hernum. Nákvæm rannsókn með aðstoð tölvu var gerð á öllum þeim 80 þúsund manns, sem á einhvern hátt tengdust leikunum. Hér var um að ræða mestu hernaðaraðgerð í Kanada frá lokum heimsstyrjaldarinnar. Allt var tekið með í reikninginn, jafnvel möguleikinn á því að hryðju- Framhald á bls. 58 47

x

Íþróttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Íþróttablaðið
https://timarit.is/publication/1455

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.