Íþróttablaðið


Íþróttablaðið - 01.09.1978, Page 56

Íþróttablaðið - 01.09.1978, Page 56
Leikmeiuv í Celtic-li&imi Aðallið Celtic verður sennilega skipað eftirtöldum leikmönnum í flestum leikjum liðsins í vetur: MARKVÖRÐUR: Peter Latchford — mjög efnilegur markvörður sem hóf feril sinn með enska félaginu West Bromwich Al- bion, en kom til Celtic á keppnis- tímabilinu 1974—1975 og hefur verið aðalmarkvörður liðsins að undanförnu. Hann er bróðir hins fræga knattspyrnumanns Bob Latchfords sem leikur með Everton, og annar bróðir hans, David, leikur nú með Birmingham. Hefur leikið unglingalandsleiki fyrir England. VARNARMENN Alan Sneddon — ungur leikmaður sem vann sér sæti í aðalliði Celtic á síðasta keppnistímabili. Er „alinn upp“ hjá félaginu. Pat Stanton — lék lengi með Hibernian, en kom til Celtic árið 1976. Hefur átt við meiðsli að stríða að undanförnu, en mun nú vera að ná sér á strik og er talið að hann muni styrkja Celtic- liðið verulega, þegar hann verður í fullu fjöri. Danny McGrain — leik- maður sem hefur leikið með skozka landsliðinu, en var hins vegar lítið með Celtic í fyrra vegna meiðsla. Roddie Mac Donald — kom til Cel- Ronnie Glavin tic frá skozka félaginu Brora Rang- ers, lék fyrst sem framherji, en þykir hafa náð betri árangri sem varnar- maður, ekki sízt vegna þess hve góður skallamaður hann er. Andy Lynch — kom til Celtic frá Hearts árið 1973 og var fyrst kantmaður í liðinu, en var síðan færður aftur. Hefur verið fyrirliði Celtic í flestum leikjum liðsins að undanförnu. Joe Filippi — kom til Celtic frá Ayr United á síðasta keppnistímabili. Mjög fjölhæfur og efnilegur leik- maður. MIÐVALLARLEIKMENN Jóhannes Eðvaldsson — óþarfi mun að kynna hann fyrir íslenzkum knattspyrnuáhugamönnum. Jó- hannes þykir ein traustasta stoð Celticliðsins og jafnvígur í sókn og vörn, svo sem sjá má af því að í fyrra var hann markhæstur Celtic-manna, skoraði 10 mörk í úrvalsdeildar- keppninni. Roy Aitken — ungur og efnilegur leikmaður sem hefur verið hjá Celtic allan sinn feril. Hefur leikið með skozka unglingalandslið- inu og margir spá því að hann vinni sér senn sess í skozka A-landsliðinu. Tommy Burns — ungur leikmaður sem þykir mjög efnilegur. Lék sína fyrstu leiki með aðalliði Celtic á keppnistímabilinu 1975—1976 og var síðan fljótlega valinn í skozka unglingalandsliðið. Alfie Conn — einn traustasti leikmaður Celtic- liðsins. Hann kom til Celtic 1977 en hafði áður leikið með Tottingham Hotspur. Var frá meginhluta keppnistímabilsins í fyrra vegna meiðsla. FRAMHERJAR Joe Craig — kom til Celtic frá Part- ick Thistle árið 1976 og hefur staðið sig mjög vel með liðinu frá upphafi. Hefur leikið með skozka landslið- inu. John Doyle — hann keypti Celtic frá Ayr United fyrir 90.000 pund árið 1976. Hefur leikið með skozka landsliðinu. Ronnie Glavin — marksækinn og áræðinn leik- maður. Hann var markhæsti leik- maður Celtic á keppnistímabilinu 1976—1977 og skoraði þá 19 mörk. Hann var keyptur frá Partick Thistle árið 1974 fyrir 80.000 pund. Hefur leikið með skozka landsliðinu. Jim Lumsden — nýr leikmaður hjá Celt- ic. Hefur áður leikið með Leeds, Morton, St. Mirren og Hiberian. Tom McAdam — kom til Celtic frá Dundee United í fyrra, en hafði áður leikið með Dumbarton. Mjög sterk- ur og snjall skallamaður. George McCluskey — ungur leikmaður sem hefur leikið með Celtic leik og leik Jóhannes Eðvaldsson að undanförnu og þá í ýmsum stöð- um á vellinum. Paul Wilson — kom til Celtic árið 1966 og er því einn af elstu mönnunum í liðinu. Hefur leikið með skozka landsliðinu og einnig verið nokkrum sinnum vara- maður í því. Tommy Burns 56

x

Íþróttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Íþróttablaðið
https://timarit.is/publication/1455

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.