Íþróttablaðið - 01.01.1979, Page 31
Eignaðist fyrst pútter
og níu—járn
Golfmaður ársins er
kornungur Keflvíkingur,
Gylfi Kristinsson, sem er 16
ára gamall og stundar nám í
rafiðnaðarbraut við Fjöl-
brautarskóla Suðurnesja.
Gylfi varð drengjameistari
1978 og varð jafn og efstur í
reglulegri keppni í
meistaraflokki ásamt
Gylfi
Kristinsson
Golfmaður
ársins
Hannesi Eyvindssyni, en
tapaði titlinum í bráðabana.
Þá vann Hannes eina holu
af þremur og tvær urðu
jafnar. Gylfi sigraði einnig í
Michellinkeppninni og varð
þriðji í Dunlopkeppninni
svo eitthvað sé talið.
Við spjölluðum stuttlega við
þennan unga afreksmann og
hann sagði okkur að hann hefði
fyrst haldið á kylfu 10 ára. Upp-
hafið var það að hann fór ásamt
vinum sínum út á Leiru til að
draga fyrir keppendur í Suður-
nesjamótinu 1973. Sama ár fékk
hann fjárveitingu til kaupa á
tveimur kylfum, pútter og 9-
járni. Þeir voru tveir félagar, sem
geðru sér tíðreist út á völl til að
slá og pútta, Gylfi og bekkjar-
bróðir hans Magnús Jónsson.
Sagði Gylfi að varla hefði sá
dagur liðið, er viðraði til golfiðk-
unar að þeir hefðu ekki farið út á
völl eftir skóla. Síðan bættust
fleiri strákar í hópinn og kylfun-
um fjölgaði. Einnig fylgdust þeir
mikið með mönnum í keppni og
leik. 12 ára gamall sigraði Gylfi í
innanfélagsmóti Golfklúbbs
Suðurnesja og kepptu þá flestir
beztu menn klúbbsins.
í byrjun var forgjöfin 30. 1974
lækkaði hún í 24. Síðan segist
hann hafa verið nokkuð lengi í
Framhald á bls. 65
31