Íþróttablaðið - 01.07.1979, Page 10
FJÖLHÆFASTA
EINANGRUNAREFNIÐ ER:
PÓLÝÚRETHAN
JAFNT FYRIR:
★ Frystihús og kæliklefa.
■A Heitavatnslagnir.
•A- Byggingarpanela.
■A Einangrunarplötur.
-A Lambdagildi 0,018 — 0,025
— Hið lægsta fóanlega —
★ Þolir 100° c að staðaldri
og allt að 230 ° c
í skamman tíma.
VERZLUM EINNIG MEÐ ÚRVALS VÖRUR I:
Plaströrum, Plastfittings — Plastlími —
Jórnrörum — Jórnfittings o. fl.
3®SiSa®St S3Í?.
SÍMI 53755 P. BOX 239
HAFNARFIRÐI
nú skilst mér að þeir séu að æfa
undir mót og þetta hefur farið á
meiri ferð eftir að skotsambandið
var stofnað. Þá er sundið í mikilli
framför og nú er blak nýbyrjað,
já, ég gleymdi því vist áðan. Það
verður innan ÍBV.
Óskar í bekkpressuæfingu.
— Er aðstaða til íþróttaiðkana
ekki góð?
— Jú, ekki getur maður annað
sagt. Þó vantar aðstöðu fyrir
frjálsar íþróttir en hún kemur ör-
ugglega þegar þeim vex fiskur
um hrygg. Nýi grasvöllurinn er
mjög góður og erum við ánægðir
með hann.
— Er mikill rígur á milli félag-
anna hér?
— Nei, það get ég ekki sagt.
Það er helst hjá áhorfendum
þegar Þór og Týr eru að spila.
Þetta kemur best í ljós þegar þessi
tvö lið eru að berjast í handbolt-
anum.
— Hvert er hlutverk stjórnar
ÍBV?
— Þetta er nú aðallega fólgið í
fjáröflun og að halda íþróttunum
gangandi á sem öflugastan hátt.
Fjárhagsstaðan hefur verið ágæt
en stöðugt þarf að vera að safna
eða sníkja öllu heldur. Við fáum í
framlag frá bænum um 8 mill-
jónir á þessu ári sem við skiptum
niður á milli deildanna.
10