Íþróttablaðið - 01.07.1979, Síða 28
H vítasun nu kappreiðar Fáks
Það er ekki meiningin að
hafa á þessum vettvangi
fréttaþjónustu af mótum
hestamanna. Hvítasunnu-
kappreiðar Fáks eru jafnan
eitt af stærstu félagsmótum
á hverju sumri, enda er
Fákur stærsta félagið og á
besta völlinn. Þar að auki er
mót Fáks jafnan fyrst hinna
stærri móta. Það er því eðli-
legt að það veki mikla at-
hygli meðal hestamanna.
Hér verða mótinu þess
vegna gerð nokkur skil, ekki
svo mjög tíundaður árangur
í tölum, öllu frekar er þetta
rabb um keppendur,
keppnisgreinar, reglur og
mótahald almennt.
Sigurjón
Valdimarsson
skrifar
um
hestamennsku
I Gæðingar
Gæðingadómar
í A-flokki voru fjórir efstu
hestarnir úr sama hesthúsi, aðrir
fengu ekki yfir 8 í meðaleinkunn.
Garpur Harðar G. Albertssonar
varð efstur með meðaleinkunn
8,76. Hörður á líka Ljúf gamla
(21 v.) sem varð þriðji með 8,22.
Sigurbjörn Bárðarson sat hesta
Harðar en er eigándi Vála sem
varð annar með 8,41 og Víkings,
sem varð fjórði með 8,14. Trausti
Þór Guðmundsson sat Vála en
Kristján Birgisson Víking. Eins
og flestir vita eiga Hörður og
Sigurbjörn saman eitt glæsileg-
asta hesthús landsins, og sumir
segja þótt víðar væri leitað.
B-flokks hestar stóðu sig betur,
ellefu hestar fengu yfir 8 í
meðaleinkunn. Hæstu einkunn
hlaut Máni, sjö vetra hestur, sem
Hrafn Vilbergsson tamninga-
maður hjá Fáki á og sat. Hann
hlaut 8,67 í einkunn (390 stig) en
hinn þekkti Brjánn Harðar G.
Albertssonar varð annar með
8,66 (389,5 stig). All miklar um-
ræður urðu meðal áhorfenda um
einkunnir þessara tveggja hesta
og sýndist sitt hverjum. Margir
Sigurvegararnir í A-flokki, frá vinstri: Sigurbjörn á Garpi, Trausti Þór á Vála og Aðalsteinn Aðalsteinsson
sat Ljúf við verðlaunaafhendinguna.
28