Íþróttablaðið - 01.07.1979, Blaðsíða 53
Þegar leikmenn Barcelona komu helm með Evrópubikarinn íár var þeim
fagnað sem þjóðhöfðingjum og um 50 þusund manns kom á völl fé-
lagsins til þess eins að sjá leikmennina hlaupa nokkra hringi með hinn
eftirsótta bikar.
helmingi þess sem Barcelona
greiddi fyrir Cruyff.
Þegar Johan Cruyff kom til
Barcelona var liðið í fallhættu.
En hann sneri dæminu gjörsam-
lega því í vil, og þegar upp var
staðið varð meistaratitillinn þess.
Tryggði félagið sér hann með því
að sigra Real Madrid 5—0 í mjög
eftirminnilegum leik sem fram
fór á heimavelli Madridsliðsins,
Estadio Santiago Bernabeu. Það,
hvað Johan Cruyff var liðinu
mikilvægur sást best í bikar-
keppninni þetta ár, en þá var
hann ekki gjaldgengur. Þá mætti
Barcelona Real Madrid í úrslita-
leik og tapaði 0—4. Var að von-
um að Johan Cruyff fékk fljót-
lega viðurnefnið „E1 Salvador“
þ.e. frelsarinn meðal áhangenda
FC Barcelona.
Hennes kom — og fór
Þegar samningstími Rinus
Michels rann út fór hann frá fé-
laginu, en annar lítt ófrægari
framkvæmdastjóri tók við,
Hennes Weisweiler. Það kom
hins vegar fljótlega í ljós að þeir
áttu ekki skap saman hann og
Johan Cruyff og Weisweiler lenti
strax í svipuðum útistöðum við
hinn fræga leikmann og hann
hafði átt í við Gúnter Netzer,
þegar hann var framkvæmda-
stjóri Broussia Mönchenglad-
bach. Það var ekki rúm bæði fyrir
Weisweiler og Cruyff hjá FC
Barcelona og það gat ekki þýtt
nema eitt. Félagið sagði „adios“
við senór Hennes.
Rinus Michels var ráðinn aftur
til félagsins og var fyrsta verk
hans að laga vörn liðsins. Fyrsti
maðurinn sem hann setti út úr
liðinu var Joaquin Rifé, sem nú
er orðinn aðalþjálfari félagsins.
Nýr liðsauki var sóttur til Hol-
lands, Johan Neeskens, en þótt
hann ynni fljótt hylli manna
á Spáni, gekk illa að fella hann
inn í liðsheildina og voru það
til að byrja með slæm skipti
fyrir félagið að fá hann í stað-
inn fyrir Hugo Sotil. Það var
fyrst í fyrra að liðið féll vel
saman að nýju, og þá vann það
sigur í spænsku bikarkeppn-
inni, og fylgdi þessum sigri síðan
eftir með því að bera sigur úr
býtum í Evrópubikarkeppni
bikarhafa. Úrslitaleikurinn í
bikarkeppninni á Spáni var jafn-
framt síðasti leikur Johans Cru-
yffs með liðinu. Nýr maður kom í
hans stað, Austurríkismaðurinn
Hans Krankl, sem þegar á sínu
fyrsta tímabili með Barcelona
varð markhæsti leikmaðurinn á
Spáni og skoraði 29 mörk.
Neeskens til Bandaríkjanna
Það kom gífurlega á óvart þegar
tilkynnt var úr herbúðum Barce-
lona að félagið hygðist ekki
endurnýja samning sinn við
Johan Neeskens. Fyrsta spurn-
ingin sem menn spurðu var hvort
Neeskens væri óánægður hjá fé-
laginu. Svo reyndist ekki vera. —
Mér er það mjög á móti skapi að
fara, sagði Neeskens. — Ég er
búinn að leika með þessu félagi
um árabil og hef kunnað ein-
staklega vel við mig á Spáni.
Barcelona er stórkostlegt félag,
og þá ekki síður áhorfendur fé-
lagsins — hér finnst mér sem allir
séu vinir mínir.
Þegar fréttist að Johan Neesk-
ens yrði seldur frá Barcelona
hugsuðu margir gott til glóðar-
innar. Sjálfur hefði hann helst
kosið að vera áfram á Spáni og
fara þar til einhvers annars félags
en reglur knattspyrnusambands-
ins útilokuðu slíkt. Til þess að
Neeskens hefði aftur orðið gjald-
53