Íþróttablaðið


Íþróttablaðið - 01.07.1979, Síða 58

Íþróttablaðið - 01.07.1979, Síða 58
— Mótið var síðasta keppni sovéska íþróttafólksins fyrir Evrópumeistaramótið í Prag. í fyrstu tilraun setti ég heimsmet. Ég trúði því varla, þegar tilkynnt var, að ég hefði stokkið 7,07 metra. Vindhraðinn var innan við leyfileg mörk þegar stökk- keppnin fór fram. Mér hafði tek- ist að bæta átta sentimetrum við heimsmetið. Satt að segja var þetta erfið raun. Eftir fimm mín- útna hlé hófst keppnin aftur. Ég heyrði að kliður fór um áhorf- endapallana eftir þriðju tilraun mína, — það stökk var einnig 7,07 metrar. Svo komu frétta- mennirnir til þess að eiga viðtöl við mig. Ég sagði þeim, að mér hefði alltaf gengið vel á Kisji- nev-leikvanginum. 1977 hafði ég sett þar sovéskt met. Ég sagði einnig við þá að mig dreymdi um að vinna Evrópumeistaramótið í Prag. En veðrið setti strik í reikning- inn í keppninni í Prag. Það var lágskýjað og gola á leikvanginum er langstökkskeppnin fór fram. Mér finnst erfitt að keppa við slík skilyrði. Aðeins hálfur mánuður var liðinn frá því að ég setti heimsmetið í Kisjinev og ég var taugaóstyrk meðan ég beið eftir að kæmi að mér í stökkröðinni, jafnvel þótt ég hefði stokkið 7,09 metra fremur auðveldlega í und- ankeppninni. Jarmila Nigrinova frá Tékkóslóvakíu hafði boðið mér birginn með 6,60 metra stökki þegar kom að síðustu um- ferðinni, en ég hafði stokkið 6,57 metra. í síðustu umferðinni bætti Jarmila 9 sentimetrum við ár- angur sinn, og Angelina Feugt frá Austur-Þýskalandi bætti svo um betur með því að stökkva 6,79 metra. Þannig stóðu málin þegar ég átti eina tilraun eftir. Ég varð að gera það ómögulega. Að loknu stökkinu sá ég töluna 6,88 á sýningatöflunni. Með þeim ár- angri vann ég Evrópumeistara- titilinn.“ Bardauskine er nú nemandi við uppeldisfræðistofnunina í Vilnius. Hún er gift og á einn son. Segir hún það stærstu stund lífs síns þegar hann fæddist. íþrótt- irnar eiga hug hennar allan og hún eyðir nær öllum tómstund- um sínum til æfinga. Þegar færi gefst grípur hún í handavinnu, og segist hafa unun af því að hekla. Bardauskine er vitanlega einn helsti „kandidatinn“ að gullinu í langstökki kvenna á Ólympíu- leikunum í Moskvu. Hún er samt ekki alltof örugg: — Þar getur hver sem er orðið sigurvegari, hefur hún sagt, — jafnvel einhver stúlka sem nú er algerlega óþekkt. En að mínum dómi eru Brigitta Vujak frá Aust- ur-Þýskalandi, Jody Anderson frá Bandaríkjunum og Anita Stukane frá Sovétríkjunum lík- legastar til þess að keppa við mig um gullverðlaunin. Hversu langt þarf að stökkva til þess að hreppa Framhald á bls. 82. RUBTAN Gerfiefni á Hlaupabrautir og íþróttasali umboðsmaður: Adolf Bjarnason Tryggvagötu 6 Reykjavík 58
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84

x

Íþróttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Íþróttablaðið
https://timarit.is/publication/1455

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.