Íþróttablaðið - 01.04.1987, Page 14
Atli Hilmarsson
Þýskalandi, hjá Bayer Leverkusen? Hve
mikið þarftu að vinna og hversu oft er
æft?
„Þar sem Leverkusen er í 2. deild
þarf ég að vinna meira heldur en leik-
menn í 1. deild því greiðslurnar eru
ekki eins háar. Ég fer í vinnu klukkan
sjö á morgnana og vinn til fjögur. Þá
sæki ég æfingatöskuna mína og æfi
milli klukkan sex og átta. Eftir æfingar
segir þreytan til sín og farið er snemma
í rúmið. Þetta er mjög erfitt og ekki
eins mikill dans á rósum og margur
heldur. Við þurfum að vinna mjög mik-
ið og þá ekki við það að sleikja frí-
merki heldur að taka til hendinni. Hjá
Bergkamen þurfti ég að vinna minna
því liðið var í 1. deild. Ég vinn hjá stóru
efnafyrirtæki sem heitir Bayer og er
einn af 40.000 starfsmönnum. — Nei,
ég þekki ekki alla með nafni. Hins veg-
ar veit ég hvað allir borða í morgun-
mat!, “ segir Atli glottandi. „Ég er í út-
flutningsdeildinni og samhliða þessu
er æft 4 sinnum í viku, 2 tíma í senn.
Síðan er leikið á laugardögum.“
— Er íslenskur handbolti mikils
metinn í Þýskalandi?
„Hann er mjög mikils metinn enda
hefur árangur íslenskra leikmanna ver-
ið mjög góður. Siggi Sveins hefur verið
markakóngur í l.deild. Alfreð er búinn
að standa sig frábærlega vel með Essen
og ég tala nú ekki um Jóhann Inga sem
kjörinn var besti og vinsælasti þjálfari
Þýskalands. Það sem skiptir líka miklu
máli er að íslendingarnir lenda aldrei í
vandræðum eins og gerist oft með út-
lendinga í Þýskalandi. Okkur er oft
strítt á þvi að íslenskir leikmenn í
Þýskalandi séu eins og mafía. Við hitt-
umst alltaf við ýmis tækifæri, og munar
okkur þá ekki um að keyra langa vega-
lengd til að gleðjast með félögunum.
Bjarni varð þrítugur um daginn og
lagði ég af stað til hans klukkan hálf
tíu, eða þegar æfingin var búin. Félög-
um mínum í liðinu þótti ég stórfurðuleg-
ur að leggja á mig langa keyrslu til
þess að fara í afmæli því flestir í liðinu
fara að sofa milli klukkan tíu og ellefu.
Annars eru þýskir handboltamenn
alveg sér kapítuli. Þeir hringja og segj-
ast vera fárveikir með 37,3 gráðu hita.
Síðan liggja þeir þangað til þeir nenna
að mæta aftur á æfingar. Það er ekki
hægt að ná árangri með svona hugsun-
arhætti og er oft ótrúlegt hvað þeir
geta leyft sér. í liðunum eru ekki það
margir leikmenn að ef tvo til þrjá vant-
ar eigum við í erfiðleikum með að ná í
tvö lið á æfingum. Leikmenn notfæra
sér það hispurslaust að láta lækna
skrifa upp á veikindi fyrir sig.
Svo er annað sem er mjög spennandi
fyrir þýska leikmenn, það eru þessar
blessuðu hárþurrkur sem menn hand-
fjatla eftir æfingar. Eftir eina æfingu
kom þjálfarinn inn í klefann til okkur
og sagði að við ættum allir að þurrka
okkur vel um hárið því það væri svo
mikið frost úti. Ég vissi að þessum orð-
um var beint til mín því ég var sá eini
sem ekki þurrkaði hárið með hár-
þurrku. Ég sagði þjálfaranum að ég
myndi ekki taka upp á þessum sið á
gamals aldri og hefði lifað harðari vet-
ur á íslandi og komist af án hárþurrku.
Strákarnir höfðu gaman af þessu og
voru stoltir af því að ég skyldi ekki
beygja mig undir þetta. Einhverju sinni
bauð ég leikmönnum í heimsókn í til-
efni þess að ég var að flytja í nýja íbúð.
Strákarnir færðu þá konunni minni
blóm en gáfu mér örlítinn pakka. Þegar
ég opnaði hann kom í ljós lítil barna-
hárþurrka sem gengur fyrir batteríum.
Húmorinn er því í lagi þegar við á í
Þýskalandi.“
— Hver eru laun leikmanna í
Þýskalandi?
„Peningamál get ég ekki rætt en
flestir leikmenn fá bíl og íbúð til af-
nota. Greiðslur til leikmanna nægja vel
til að kosta nám eða framfleyta fjöl-
skyldunni. Ef leikmenn eru ekki í námi
vinna þeir með en sárafáir leika ein-
göngu handknattleik. Menn eins og
Klempel eru í þeim hópi. Stærsti hluti
leikmanna hefur það gott en maður
verður ekki milli á því að leika hand-
bolta í Þýskalandi.
— Hvernig er félagsskapurinn í lið-
inu?
„Hann er töluvert frábrugðinn því
sem maður átti að venjast hér heima.
Margir leikmenn koma langt að og
gera því fátt annað en að æfa og leika
með okkur. Til að mynda er ég sá eini
sem hef boðið öllum heim til mín. Ef
þú þarft að heimsækja einhvern þarftu
að láta viðkomandi vita með 10 daga
fyrirvara. Þú kíkir ekki í heimsókn án
þess að láta vita af þér eins og við ger-
um heima. “
— Er handbolti í Þýskalandi langt á
eftir fótboltanum hvað vinsældum
viðkemur?
„Handboltinn líður fyrir það hve
fótboltinn er vinsæll. Kielar liðið sem
Jóhann Ingi þjálfaði í fyrra er eina liðið
sem fær mikinn áhorfendafjölda. Að
Verðlaunagrípir
og verðlaunapeningar
ímikluúrvafí
FRAMLEIÐI OG UTVEGA
FÉLAGSMERKI
PÓSTSENDUM
Imebal
Magnús E.Baldvinsson sf.
V_Langholtsvegi 111 simí31199_^
14