Íþróttablaðið


Íþróttablaðið - 01.04.1987, Blaðsíða 24

Íþróttablaðið - 01.04.1987, Blaðsíða 24
— Hver eru takmörk þín í sumar og hvað er helst framundan? „Heimsmeistaramótið er aðalmótið, þar stefni ég á toppinn. Ég mun einnig keppa á alþjóðlegum Grand-Prix mót- um. Metralega séð stefni ég, ef heilsa leyfir, að verða meðal 10 bestu í heiminum. Fyrst og fremst er ég að þessu vegna ánægjunnar, en það er gaman að gleðja aðra en best að lofa ekkert upp í ermina á sér. En ef ég geri eitthvað með fullum huga, að þá geri ég það eins og mér best gefst kostur. Æfing- arnar ganga vel um þessar mundir. Ég er að vinna í kasttækninni og meiri hraða. í fyrsta skipti hef ég nú æfinga- félaga hér úti sem er Sigurður Matthí- asson og er það mikill munur. Ég hef þjálfaraaðstoð hér og heima þar sem Stefán Jóhannsson hefur verið mér innan handar. Við munum væntanlega vinna mikið með myndband í sambandi við tæknina þegar fjárhagurinn leyfir. Enginn gerir kraftaverk frítt í dag.“ SIGURÐUR MATTHÍASSON ÉG REYNIAÐ HANGAÍ HALANUM Á GULL- KÁLFUNUM TVEIMUR. Sigurður Matthíasson kom á óvart í sumar og kastaði spjóti 73,50 m. Sig- urður er eini nýliðinn í hópnum hér í Alabama, kom um áramótin og er þeg- ar kominn á full í skóla og við æfingar. — Þú varst í Noregi í fyrra Sigurð- ur, hvað veldur því að þú kemur til Alabama í ár ? „Ég og Sigurður Einarsson keppt- um mikið saman síðastliðið sumar og tjáði hann mér þá um þróun mála í Alabama og hvatti mig til þess að koma hingað. Heillaðist ég af frásögn hans og orðsnilli. það var ekki að sökum að spyrja eftir sögu Sigurðar hvert stefna skyldi og því var það ákveðið að ég og konan mín myndum hefja nám hér eftir áramótin." — Hvernig líkar þér svo hér í Ala- bama ? Mér líkar mjög vel við æfingaaðstöð- una og yfirleitt allt skólakerfið í heild sinni. Koman til Alabama var mikil breyting. Veðráttan er t.d. mun betri hér en heima, æfingaálag mun meira en áður, skólakerfið og enskan flókin til að byrja með. Hins vegar hefur þetta allt sinn vanagang, lífið og tilveran hefur góð áhrif á mig og ég er bjart- sýnn á framhaldið.“ — Hvert er takmark þitt í sumar Sigurður? „Ég reyni að hanga í halanum á gullkálfunum tveimur Sigurði Einars- syni og Einari Vilhjálmssyni og ef vel tekst til að þá vildi ég gjarnan verða forystutuddinn á nokkrum mótum í sumar. Þó allir vilji góssið, þá er mikið atriði að við frjálsíþróttalandar vinnum saman sem ein heild.“ EGGERT BOGASON KRINGLAN ER GÖFUGUST GREINA Eggert Bogason náði stórgóðum árangri í kringlukasti í sumar, kastaði 62,42 m. Eggert er að hefja sitt síðasta tímabil í keppni fyrir skólann hér úti eftir undanfarin þrjú góð ár þar sem hann hefur stórbætt árangur sinn. Við hittum þennan öfluga dreng í lyftinga- klefanum þar sem hann var að pumpa járn. — Ert þú ánægður með síðasta keppnistímabil Eggert? „Nei, mér gekk ekki nógu vel þegar á reyndi þ.e. á háskólamótinu hér úti og svo heim í Bikarkeppni FRÍ. Þar átti ég að vera í nokkuð góðu formi eftir að hafa bætt minn persónulega árangur í vikunni áður í 62,42 metra, en kastaði aðeins tæpa 55 metra í Bikarkeppn- inni.“ — Þú hefur náð bestum árangri í kringlukastinu en ert einnig bestur á landinu í kúluvarpi og sleggjukasti. Ætlarðu að leggja einhverja áherslu á þessar greinar? „Þar sem kringlan er göfugasta grein allra greina mun ég eingöngu 24
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Íþróttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Íþróttablaðið
https://timarit.is/publication/1455

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.