Íþróttablaðið - 01.04.1987, Síða 51
Æfum við vitlaust?
Mesta úrval landsins ...
hjá okkur
5^i t A'
ÚTILÍF"
hvert skipti sem menn koma í mæl-
ingu, þá var þykkt húðfitu mæld á 3
stöðum á líkamanum. Það er, á aftan-
verðum upphandlegg yfir tricepsvöðv-
anum, yfir 12. rifbeini í miðaxlarlínu
og á baki rétt undir herðablaði. Þessar
mælingar eru það sem kallast „skin-
fold" mælingar, þ.e. húðfelling er tekin
milli fingra og þykkt hennar mæld með
þar til gerðri töng.
Þegar þessar húðfitumælingar eru
skoðaðar yfir tíma, þá kemur það fram
að hjá knattspyrnumönnum fara GILD-
IN HÆKKANDI EFTIR ÞVÍ SEM
LENGRA LÍÐUR Á HVÍLDARTÍMA-
BILIÐ. í júlí var meðaltal þessara
stærða 7,6 mm, en í janúar var það 8,1
mm. Annað og ekki síður athyglisvert
er það, að ÞYNGDARBREYTING ÞARF
EKKI AÐ VERA, og er örugglega ekki
alltaf fylgifiskur breytinga í húðfitu.
Það getur t.d. verið, að eftir því sem
lengra líður á hvíldartíma þá sé stöðug
aukning í þykkt húðfitu samfara rýrn-
un á vöðvavef og óbreyttri líkams-
þyngd.
1 mörkum þess sem líkamanum er boðlegt.
til um þol. En þegar um er að ræða
mælingar á súrefnisupptöku, þá er
möguleiki að setja niðurstöður fram á
margskonar formum. Tvö þau mest
notuðu eru annarsvegar sem mesta
súrefnisupptaka (V02 max) þar sem
einingarnar eru lítrar af notuðu súrefni
á mínútu, eða þá hinsvegar sem svo-
kölluð ÞOLTALA, EN ÞÁ ER V02 MAX
STAÐLAÐ MEÐ LÍKAMSÞUNGA og
fæst þá bruni súrefnis í millilítrum á
mínútu per kílógramm líkamsvefs
(mI02/min/kg). Seinni einingin er tal-
in gefa nokkuð góða vísbendingu um
þol viðkomandi, þ.e. eftir því sem hún
er stærri, því betra þol. Þess ber þó að
geta, að þegar verið er að meta þol
manna út frá súrefnisupptöku, þá er
oftast talið réttast að athuga þessi gildi
saman, útkoman úr þeim samanburði
er yfirleitt talin vera nokkuð nærri
sanni.
Eitt af þeim einkennum sem koma
fram hjá íþróttamönnum á hvíldartíma,
eru breytingar í þyngd og á húðfitu. í
51