Íþróttablaðið - 01.04.1987, Blaðsíða 20
ívar Webster
öfugt farið ennþá allavega. Ef fólk sér
mig á ferðinni snýr það sér við og horf-
ir á eftir mér. Þetta angrar mig ekki en
ég tek eftir þessu. Þetta mundi
örugglega breytast ef ég yrði hér í
einhvern tíma. Það var sagt við mig
áður en ég fór norður að Akureyringar
væru mjög Iokaðir og að það væri
erfitt að kynnast þeim en það hef ég
alls ekki orðið var við. Þvert á móti
hafa þeir verið mjög opnir og vingjarn-
legir. En þetta er líka undir hverjum og
einum einstaklingi komið, hvernig
hann kemur sjálfur fram.“
— Það hefur því ekki verið erfitt
fyrir þig sem svertingja að búa á ís-
landi?
„Nei svo sannarlega ekki en það hef-
ur verið erfitt fyrir mig að vera svona
stór og búa á íslandi. Ég fæ hvorki föt
eða skó á mig hér á landi og verð að
panta þetta allt að utan. Það er eina
vandamálið sem ég hef lent í á íslandi."
SKÍRÐUR í HÖFUÐIÐ
ÁSYNIMÍNUM
— Hvenær fékkst þú íslenskan rík-
isborgararétt?
„Það var 1. júní 1984. Ég held að ég
sé einn af fáum mönnum á landinu sem
er skírður í höfuðið á syni sínum. Son-
ur minn heitir Pálmi ívar og þegar ég
varð íslenskur ríkisborgari tók ég ann-
að nafnið hans. Ég hafði gifst íslenskri
konu og átt með henni börn og ég
hafði mikinn áhuga á því að leika
körfubolta áfram og því tók ég þá
ákvörðun að gerast íslenskur ríkis-
borgari." En hvenær gastu farið að
leika með íslenska landsliðinu?
— Ég spilaði fyrst með liðinu á
Polar- Cup árið 1985 og hef verið í lið-
ívar ásamt eiginkonu sinni Sigurbjörgu
dóru Janet og Pálma ívari.
inu síðan. Landsliðið í dag er það besta
sem ísland hefur átt. Við tökum þátt í
Norðurlandamótinu í Danmörku í apríl
og ég er á því að ísland hafi aldrei átt
jafn mikla möguleika og í ár að vinna
það mót. Mótið verður líka jafnara en
það hefur nokkurn tíma verið.“
ÆTTIAÐ LEYFA
ÚTLENDINGA Á NÝ
— Hefur þá íslenskur körfubolti
verið á uppleið á undanförnum árum?
„Já, alveg síðan Kanarnir fóru að
leika með íslenskum félagsliðum og þá
kannski sérstaklega eftir að þeir voru
bannaðir aftur. Þá þurftu íslensku leik-
mennirnir að sýna hvað í þeim bjó og
gera hluti sem Kanarnir höfðu áður
gert. Ég held að það yrði sterkur leikur
fyrir íslenskan körfubolta að leyfa út-
lendingum að spila hér að nýju. Ég veit
Halldórsdóttur og börnum þeirra, Hall-
að áhorfendur mundu alla vega hafa
gaman af því. íslensku leikmennirnir
eru líka orðnir það góðir að það yrðu
enn skemmtilegri leikir en þegar Kan-
arnir komu fyrst. Það væri alls ekki svo
vitlaust að leyfa útlendinga annað
hvert eða jafnvel þriðja hvert keppnis-
tímabil. íslandsmótið yrði miklu
skemmtilegra fyrrir vikið,“ sagði ívar
Webster að Iokum.
Webster hefur svo sannarlega sett
svip sinn á íslenskan körfuknattleik á
undanförnum árum og vonandi á hann
eftir að gera það í náinni framtíð. Hann
hefur sýnt miklar framfarir síðan hann
kom til landsins, hittnin mjög góð og í
vörninni standast fáir honum snúning
enda er hann 2.10 m á hæð. Það mun
áreiðanlega mæða mikið á honum með
íslenska landsliðinu á Norðurlanda-
mótinu í Horsens á Jótlandi 24.-27.
apríl næstkomandi.
Alhliða íþróttavörur — Fjölbreytt úrval
Don Cano New Sport Adidas Nike H2Q Danskin Speedo Schiesser
VÍSA
Viö seljum aðeins gæöavörur á góöu veröi.
SPORTBÚÐ KÓPAVOGS
HAMRABORG20A
Sími 641000
20