Íþróttablaðið - 01.04.1987, Side 15
Atli Hilmarsson
meðaltali mæta þar um 7.000 áhorf-
endur á heimaleikina. Eins er töluverð-
ur áhorfendafjöldi hjá Essen. Hjá okkur
eru áhorfendur á bilinu 50-100, 94 að
meðaltali á síðasta ári. Höllin tekur um
1500 manns. Málið er að 16 Bundesli-
gulið eru í Leverkusen, þá eru um að
ræða fótbolta-, körfubolta-, blaklið. Við
erum mjög aftarlega á merinni hvað
vinsældum viðkemur. “
Atli er á heimleið eins og flestum er
kunnugt. Hann leikur með Fram á
næsta keppnistímabili. En af hverju er
Atli á heimleið? „Ég er búinn að fá
meira en nóg. Fimm ár er líka ágætis
tími en nú verð ég að fara að huga að
framtíðinni. Hildur fær enga vinnu úti
og hún hefur staðið í baráttunni með
mér í 5 ár. Hún hefur fætt mig og klætt
þennan tíma en nú viljum við snúa
heim. Tíminn úti hefur verið frábær og
mikil reynsla sem maður hefur öðlast.
Á íslandi veit maður hvar maður hefur
hlutina og hægt er að ganga að þeim
vísum.“
— Þegar þú ákvaðst að snúa til ís-
lands varstu ekki búinn að gera upp
hug þinn hvaða lið yrði fyrir valinu.
Varstu ekki óbeint að láta bjóða í þig -
að bíða eftir tilboðum?
„Ég er í handbolta fyrir sjálfan mig
og vitanlega gerist það óbeint ef mað-
ur er ekki viss í sinni sök, að nokkur lið
koma til greina. Ég hugsaði mikið um
það hvað liðin ætluðu að gera á næsta
keppnistímabili. Til dæmis með Fram -
á að rífa það félag upp, fá góðan þjálf-
ara og stefna að einhverju? Ég er það
metnaðargjarn að ég vil vera í félagi
þar sem áhugi er mikill á því að standa
sig. Annars er ekkert gaman að standa
í hlutunum. Ég hefði ekki farið í Fram
við óbreytt ástand. Ég hugsaði um Vík-
ing, topplið sem er í Evrópukeppni og
allir leggja sig fram. Það er ekkert
launungarmál að fjögur lið höfðu sam-
band við mig - Fram, Víkingur, ÍBV og
KA. Fljótlega stóð vaiið á milli Fram og
Víkings því við erum orðin leið á flakki
og viljum setjast að í Reykjavík. Fram
er með ákveðnar hugmyndir í gangi
sem mér líkar vel við.“
— Eru peningar í spilinu?
„Nei, en þeir ætla að aðstoða mig
við flutningana heim.“
— Heldurðu að það verði viðbrigði
að koma heim?
„Ég reikna fastlega með því - hér
þarf maður að hafa meira fyrir lífinu.
I Ég hlakka til að takast á við hlutina og
hef trú á Framliðinu. Ég hef fundið
meðbyr eftir þá ákvörðun að leika með
Fram og það styrkir mig. Nei, ég er
ekki hræddur um að verða lakari leik-
maður þótt ég komi heim. Ef menn
leggja sig fram í Fram þá er ég hvergi
banginn. Ef ég held mínu sæti í lands-
liðinu og tek þátt í æfingaáætlun þess
þá treysti ég Bogdan fullkomlega til að
halda okkur á toppnum. Það er geysi-
leg barátta framundan í landsliðsmál-
unum og menn ætla að leggja allt í söl-
urnar til þess að ná góðum árangri á
Ólympíuleikunum. Hópurinn er góður
en tíminn fram að Seoul verður að öll-
um líkindum mjög erfiður. Þetta verð-
ur síðasta stórmótið sem margir okkar
taka þátt í og því ætlum við að Ieggja
allt í sölurnar. Vitanlega reynum við að
halda okkar sæti frá síðustu heims-
meistarakeppni og þar af leiðandi að
halda okkur meðal A-þjóða. Það er trú
mín að sæti okkar í Sviss gefa rétta
mynd af stöðu okkar í handknattleiks-
heiminum í dag. Kröfurnar eru orðnar
rosalegar, samhliða góðum árangri
okkar og ætlum við að reyna að standa
undir þeim væntingum sem gerðar eru
til okkar,“ sagði Atli að lokum.
Viö förum aldrei í sturtu án |
DOPPEL DUSCHwáU)
-sjampó og sápa í sama dropa!